Árbók Reykjavíkurborgar - 01.08.1975, Page 246
236
27. gr.
Heimilt er sveitarstjórn að lækka útsvar gjaldanda:
a.
b.
c.
sem nýtur bóta samkvæmt
kafla (Slysatrygginga)
breytingum.
sem stundar nám í skóla
af ástæðum, sem upp eru
nr. 68/1971 með síðari
II. kafla (LÍfeyristrygginga) og IV.
laga nr. 67 20. apríl 1971 með síðari
sex mánuði eða lengur á ári:
taldar í 1. - 7. tölulið 52. gr. laga
breytingum.
28. gr.
Skattstjóri skal hafa samráð við hlutaðeigandi sveitarstjórn við
rannsókn og úrskurðun framtala til útsvarsálagningar. Sama gildir um áætlun
tekna þeirra, sem ekki hafa skilað framtali innan lögboðins frests.
Sveitarstjórn ákveður, hvernig beita skuli ákvæðum 27. gr. um
lækkun útsvara, og tilkynnir skattstjóra þar um, áður en hann leggur út-
svörin á.
Skattstjóri eða umboðsmaður hans skal veita sveitarstjórnum aðgang
að skattframtölum.
Sveitarstjórn getur falið einum eða fleiri mönnum að annast störf
þau, sem um ræðir í grein þessari.
Þeim, sem annast störf þessi, er bannað, að viðlagðri ábyrgð eftir
ákvæðum almennra hegningarlaga um opinbera starfsmenn, að skýra óvið-
komandi mönnum frá því, er þeir komast að í störfum sínum og varðar hagi
gjaldþegna.
Skattstjóri semur skrá um útsvör í hverju sveitarfélagi í skatt-
umdæmi sínu, þegar hann hefur lokið álagningu útsvaranna. Skrá þessa skal
hann síðan senda hlutaðeigandi sveitarstjórn eigi síðar en 20. júní ár
hvert. Sveitarstjórn annast innheimtu útsvara.
29. gr.
Gjalddagar útsvara skulu vera tveir. Annan helming útsvara skal
greiða fyrir 15. júlí, en hinn helminginn fyrir 15. október.
Sveitarstjórn getur þó ákveðið aðra gjalddaga á útsvörum eftir
þessum reglum:
a. Með fimm jöfnum greiðslum, sem falla í gjalddaga 1. febrúar,
1. marz, 1. apríl, 1. maí og 1. júní, má innheimta til greiðslu
upp í útsvar yfirstandandi árs hjá hverjum gjaldanda fjárhæð,
sem nemi allt að 60% þess útsvars, sem honum bar að greiða
næstliðið ár, eða sama hlutfall og á ári hverju er heimilað að
innheimta fyrir fram upp í þinggjöld til rxkissjóðs skv. 4. mgr.
46. gr. laga nr. 68/1971, um tekjuskatt og eignarskatt, sbr.
4. mgr. 8. gr. laga nr. 60/1973, um breyting á þeim lögum.
Sveitarstjórn setur fyrir 20. janúar ár hvert nánari reglur um
þessar greiðslur og auglýsir þær á þann hátt, sem venjulegt
er um almennar auglýsingar á hverjum stað.
NÚ hafa tekjur gjaldanda á útsvarsárinu verið lægri en á næsta
ári áður, svo að nemi 3C% eða þar yfir, eða ástæður hans versnað
með öðrum hætti svo mjög, að vænta megi þess, að mun lægra
útsvar verði lagt á hann en árið áður, og getur hann þá krafizt
lækkunar á útsvarsgreiðslum samkvæmt þessum staflið. Sveitar-
stjórn eða nefnd, sbr. 4. mgr. 28. gr., ákveður lækkunina.