Árbók Reykjavíkurborgar - 01.08.1975, Síða 248
238
g. Allir kaupgreiðendur skulu, þegar sveitarstjórn krefst þess,
skyldir til að láta henni í té skýrslu, munnlega eða skriflega,
eftir því sem sveitarstjórn óskar, um nöfn starfsmanna, sem
taka kaup hjá þeim, stöðu þeirra, fæðingardag og ár, heimilis-
fang, launakjör, upphæð kaups, hvernig kaup er greitt, gjald-
daga og önnur atriði, sem sveitarstjórn óskar að fá vitneskju
um vegna innheimtu útsvara af kaupi. Sveitarstjórn getur krafið
um framangreindar skýrslur með munnlegri kröfu eða skriflegri
svo og með almennri auglýsingu, og setur sveitarstjórn kaup-
greiðendum frest til að skila skýrslum.
h. Allir, sem hafa með höndum atvinnurekstur með aðkeyptu vinnu-
afli verkafólks, skulu að kröfu sveitarstjórnar skyldir til að
senda henni kaupskrár sínar eða afrit af þeim það snemma, að
unnt sé að gera kröfu um útsvarsgreiðslur þeirra, er við kaupi
eiga að taka, áður en til útþorgunar kemur
i. Kaupgreiðandi, sem skyldur er að halda eftir af kaupi samkvæmt
þvx, er í grein þessari segir skal við hverja útborgun, þar með
taldar hvers konar greiðslur upp í kaup, draga af kaupi útsvars-
gjaldanda fjárhæð, er nægir, til greiðslu samkvæmt a-lið og
heimilt að draga af kaupi samkvæmt e- og f-liðum, svo og 1 Cflo
af kaupi daglaunafólks, þó ekki af lægri kaupupphæð en 1.000
krónum, og skila sveitarstjórn því, sem þannig er haldiðeftir,
innan tveggja virkra daga frá útborgunardegi, og er sú greiðsla
bindandi fyrir útsvarsgjaldandann. NÚ er kaup greitt að ein-
hverju leyti í öðru en peningum, svo sem með fæði, húsnæði eða
öðrum hlunnindum, og skulu þá þessi hlunnindi talin með kaup-
greiðslu á því verði, sem þau eru almennt metin til skatts á
hverjum stað.
j. NÚ hættir útsvarsgjaldandi að taka kaup hjá kaupgreiðanda, er
krafinn hefur verið um greiðslu upp í útsvar hans, áður en um-
krafin útsvarsskuld er að fullu greidd, og skal kaupgreiðandi
þá tafarlaust tilkynna sveitarstjórn brottför útsvarsgreiðanda.
k. Otsvarsgjaldandi og kaupgreiðandi mega ekki slíta vinnusamningi
fyrir það eitt, að krafizt hefur verið útsvarsgreiðslu af kaupi
gjaldanda.
l. Ef kaupgreiðandi:
1. v'anrækir að láta sveitarstjórn í té umkrafðar skýrslur og
upplýsingar um útsvarsgjaldendur innan tiltekins frests.
2. greiðir útsvarsgjaldanda kaup án þess að halda eftir þeirri
fjárhæð, sem skylt er samkvæmt þessari grein.
3. skilar eigi til sveitarstjórnar eða umboðsmanna hennar, svo
sem hé* segir í i- og j-liðum.
4. tilkynnir ekki brottför útsvarsgreiðanda, svo sem segir í
j-lið, þá ábyrgist hann sem geymslufé þá fjárhæð, sem var
haldið eftir hjá útsvarsgjaldanda upp í skuld hans, en sem
eigin útsvarsskuld það, sem halda hefði mátt eftir, ef
kaupgreiðandi hefði ekki vanrækt skyldur þær, sem honum
bar að rækja samkvæmt þessari grein. Má gera lögtak hjá
kaupgreiðandatil tryggingar þessum skuldum eftir sömu
reglum og gera hefði mátt lögtak hjá útsvarsgjaldanda sjálfum.
m. Sveitarstjórn getur ekki krafið gjaldanda um þá fjárhæð, sem
kaupgreiðandi hefur haldið eftir af launum hans til greiðslu
útsvars, þó að kaupgreiðandi hafi ekki staðið skil á greiðslunni