Muninn - 01.05.2016, Blaðsíða 65
63
Þú þarft að pissa en þú ert ekki heima hjá þér. Hvað gerir þú? Þú ferð
á almenningsklósettið auðvitað. Ef þú ert karl eins og ég, notarðu
kannski pissuskál og spýtir útum allt. Þetta kvöld var svolítið þannig
en samt ekki alveg eins og þú hefðir ímyndað þér það...
Þú gengur inná salernið. Færð strax ógeð. Krot um alla
veggi. Spegillinn er svo skítugur að það sést lítið af sjálfum þér þegar
þú lítur framan í hann. Rauðu básarnir eru meira gulir en rauðir af
einhverjum ógeðslegum ástæðum. Samt gengurðu inná einn þeirra
í von um að fá smá frið. En nei. Klósettið stíflað og það er saurskán
á gólfinu. Hinn básin er læstur. Æiii, þú notar bara skálina. Þær eru
þrjár. Ein er smágerð og er gerð fyrir krakka, ein með tyggjóklessu
og önnur með sígarettustubb. Þú velur tyggjóið því þú heldur að það
sé skemmtilegra skotmark.
Óhh nei. Þarna kemur versta martröð allra karlmanna.
Annar, fullur, karlamaður sem plantar sér við hlið þér og lætur vaða.
Ekki líta. Ekki líta. Og þú leist. Hmm frekar fín stærð. Pínu þrútið
og... Guð hvað ertu að hugsa. Einbeittu þér að verkinu. Meðan þú ert
ennþá edrú þá skaltu nota tækifærið og ekki míga á skóna þína aftur.
Hún komst að því síðast og hún mun komast að því aftur.
Bíddu... leit hann á þinn. Umm áttu að segja eitthvað...
„Hvernig gengur hjá félaganum.“ Ropar hann uppúr sér.
„Uuuu... hehe. Bara svona ágætlega.“ Segir þú loks eftir alltof
vandræðilega þögn.
„Já það er fínt. Minn er ekki jafn duglegur. En það get ég sagt þér að
þegar hann kemst á skrið er hann hörkutól.“
Afhverju í andskotanum er hann að tala við þig. Þú þekkir hann ekki
baun og hann er að tala við þig um drjóla. Kannski þú ættir bara að
þegja og sjá hvort hann hætti.
Tvær langar mínútur líða og þið eruð ennþá að míga.
„Lengi mega sáttir míga“ eins og skáldið sagði en þú ert ekki sáttur.
Reyndar ef pissið þitt væri skot í Duckhunt og tyggjóið endur þá
værirðu líklega búinn að toppa highscoreið þitt. En loks þagnar allt.
Tankurinn er tómur.
Ljósin flökta. Miklar drunur heyrast fyrir utan klósettið og
um leið fer allt herbergið að hristast. Básarnir skjálfa. Beinin skjálfa.
Litli fellinn skelfur. Djöfulsins! Áður en þú veist af er maðurinn
búinn að pissa á nýju buxurnar þínar. Skjálftin verður kröftuguri.
„Æiii sorry memmig. Ég er bara búin að fá mér svolítið mikið í
kvöld. Mér finnst eins og allt sé að hristast.“
„Veistu. Ég er ekki fullur og það er allt að hristast hjá mér líka.“ Segir
þú.
Allt verður hljótt í svona mínútu en þá fer loftið að braka, mikill
hávaði og læti berast að ofan og allt fer aftur að skjálfa en ekki á sama
hátt. Það myndast sprungur í loftinu og þér líður eins og þú sért í
frjálsu falli.
„Hvað í andskotanum er að gerast!!“ öskrar þú. Svo manstu eftir því
að þú býrð á Íslandi. En þú manst ekki mikið meira.
Þú vaknar einhverjum tíma seinna. Engin leið að segja til um hvað
þú hefur verið rotaður lengi þar sem engin klukka er á klósettinu.
Bara þú og tvær aðrar manneskjur sem standa yfir þér. Aðra þeirra
kannast þú við. Klósettið er í rúst. Meiri rúst en það var í áður.
Veggirnir eru sprungnir og vatn lekur í gegn. Gólfið er rennandi
blautt en ekki er allt vatn sem bleytir. Þarna er líka blóð, þvag og
skítur. Það eina sem þú ert samt að hugsa um er óþefurinn.
Mennirnir tveir sem standa yfir þér eru blóðugir í framan.
„Er í lagi með þig, maður?“
„Ég veit það ekki. Er í lagi með ykkur?“ Segir þú.
„Svona lala.“ Segir maðurinn sem þú kannast við. „Ég vil biðjast
aftur fyrirgefningar á að hafa pissað á buxurnar þínar. Alveg
hræðilegt.“
„Ekkert mál maður. Það skiptir engu núna.“
Þú stendur upp með naumindum. Það er einhver helvítis verkur
í fætinum á þér.
„Erum við fastir hérna inni?“
„Já maður,“ segir hinn maðurinn.„Hurðin er pikk föst.“
„Hvað erum við búnir að vera hérna lengi?“
„Hef ekki hugmynd maður. Síminn minn brotnaði. Hans er
dauður.
Þú sest ofan á vaskinn og bölvar því að hafa ekki tekið síman
þinn með. Haugur af spurningum hellist yfir þig. Hvað ætli sé
í gangi fyrir utan? Hvar er vinkona þín? Eruð þið einir eftir á
landinu? Er Katla byrjuð að gjósa? Hvernig kemst ljósið hingað
inn? Hvernig kemst ljósið hingað inn?
„Hey gaurar hvernig kemst ljósið hingað inn?“
Þeir líta vandræðalega á hvorn annan. Höfðu greinilega ekkert
pælt í þessu.
„Uhh er það ekki bara í gegnum sprungurnar hehe. Við komumst
ekkert í gegnum þær.“
Þeir hafa líklega rétt fyrir sér. Við erum glataðir.
Það líður dagur. Þú ert líklega komin með Trench foot
eftir að hafa vaðið skít og drullu allan dagin. Hungrið er að drepa
þig. Þú hefur ekki náð nema um 3 tíma svefn. Félagar þínir
eru samt ágætasta fólk. Nema annar þeirra er þunnur og segir
ekki mikið. Hinn er samt nokkuð skemmtilegur. Hann er svo
jákvæður að hann lætur eins og hann sé ekkert svangur. Næstum
of jákvæður...
„Strákar ég er að deyja úr þorsta. Þarf annar hvor ykkar að pissa?“
Þú vildir ekki að það kæmi að þessu en þorstin er yfirsterkari.
„Ehhh mér er pínu mál.“ Segir sá sem hafði verið fullur daginn
áður. „Ertu alveg viss um að þú viljir gera þetta?“
„Þetta er ekki spurning um að vilja. Þetta er spurning um að
þurfa. Ég krefst þess að fá að drekka.“ Hann stendur upp og
þú sest fyrir framan hann. Þetta er versta augnablik lífs þíns.
Ekki nóg með það að það litla sem þú færð var verra en lyktin í
hergberginu heldur hitti hann mestri bununni framhjá. Framan
í þig!
„Takk fyrir að reyna.“ Segir þú fúll.
Mennirnir tveir springa úr hlátri.
„Ég trúi ekki að þú hafir fallið fyrir þessu.“ Þeir hlæja hátt, þeir
hlæja dátt. Það er eins og þeir séu búnir að missa vitið. Þú botnar
ekki neitt í neinu. Rétt í þessu opnast hurðin á baðherberginu svo
saurinn flæðir út og inn kemur maður sem heldur á hljóðnema.“
„And here you go. People who get stuck in earthquakes can be so
desperate that they actually drink someone's pee.“
„HVAÐ ER Í GANGI!“
„Ohh yeah it's a prank bro. There's a camera there, behind the
mirror, one in the corner and also inside that man's tie.“
„Hvað... What are you talking about man. Are you telling me i
have been locked up in here. You broke my leg and infected it
with shit and, and...“
„Dude come on don’t be so salty. Its just social experiment. We
are gonna feed the homeless with all this shit man. Arent you
happy?“
Reiðin blossar uppí þér. Eina svarið sem hann á skilið er hnefi í
andlitið svo þú ræðst á manninn.
„Hey dude what are you doing. Dude! Dude, Its a prank bro.
Dude! Don’t kill me bro, it’s a prank!“
Klósettferðin
smásaga eftir Gillzarann