Muninn - 01.05.2016, Blaðsíða 127
125
Hvernig eignast maður maka?
Ef maður ætlar að eignast maka þarf maður bara að að ákveða að maður vilji eignast maka og standa við það! Næsta skref
er að finna sér manneskju sem heillar mann (target) og taka af skarið. Hjá mér var þetta basic, bara add á snappinu, byrja
að tala saman og svona. En svo er það það besta, og það er að hjálpa henni með heimanám. Ég s.s hjálpaði henni með
heimadæmi í stærðfræði. ÉG REIKNAÐI ÖLL HEIMADÆMIN og sendi henni. Svo bauð ég henni út að borða á RUB og
þá er mikilvægt að bjóðast til þess að borga. Ég var ekki byrjaður að betta á þessum tíma svo ég átti lítinn pening en ég
leysti það með því að biðja mömmu bara um pening. En þá er líka mikilvægt að segja ekki alveg strax frá því að (tengda)
mamma hafi í raun borgað.
Hvernig heldur maður sambandinu ungu?
~Samfélagsmiðlar eru eyðni fyrir sambönd, ekki vera alltaf að setja eitthvað á samfélagsmiðla - ekki skrifa takk fyrir að
þola mig- það á ekki að gera.
Ekki vera of mjúk/ur. Alltaf að vera góð/ur en passa sig að vera ekki of ástfangin/n - það er hárfín lína á milli ástarelda og
þráhyggju
~Samband við tengdaforeldra verður að vera gott, alls ekki vera feimin/n.
~PASSA AÐ KÚRA EKKI OF MIKIÐ - ég er kúrari en það má ekki kúra of mikið. Kúr=sambandsfita og það vill enginn,
það verður að halda sér í sama forminu
~Afbrýðisemi er mjög slæm en viðgengst þó í öllum samböndum.
~FARA Í ALVÖRU SLEIK, ekki bara svona mömmu koss heldur alvöru sleik.
~Mjög sniðugt að elda saman.
~Ekki vera feimin/n: t.d. áttu að geta borað í nefið á hinum aðillanum.
~Gefa gjafir! Makar heillast af gjöfum þær sýna ákveðið veldi. Og blóm, blóm eru mjög mikilvæg.
~Út að borða á RUB a.m.k. einu sinni í viku
Hvað er bannað í samböndum?
1.) Ekki leiðast í skólanum
2.) Bannað að kyssast í kvosinni en það má kyssast mömmukoss í skólanum en EKKI i kvosinni og EKKI sleikur.
3.) Ekki deita bekkjarfélaga
4.) Ekki trúlofa sig!
En prumpa?
Það má alveg en er ekki nauðsyn - sumir prumpa bara ekkert það mikið.
Myndirðu segja að það væri gott að vera í Svima? Eða Stemma? Eða Klemma?
Já ég myndi segja það, sérstaklega þegar maður er að næla sér í maka, en of mikil athygli frá öðrum gæti þó skemmt
sambandið.
Myndirðu segja að það væri mikilvægt að vera vegan?
Já ég myndi segja að það væri mikilvægt, allavega þannig að annar aðillinn í sambandinu borði ekki kjöt.
Hvort myndirðu segja að væri mikilvægara dansa eða syngja?
Ég myndi segja dansa - það er hægt að binda tilfinningar betur í dansi. Erótískum dansi.
Astarrad
Ulfars