Ský - 01.04.2010, Qupperneq 18
RÚV veturinn 1999-2000 ásamt leikaranum
Hjálmari Hjálmarssyni.
Undirbúningur Heru Bjarkar fyrir úrslita-
keppnina í Osló var mikill og í mörg horn að
líta. Hún naut dyggrar aðstoðar systur sinnar,
Þórdísar Lóu, eiganda Pizza Hut, sem varð
eins konar framkvæmdastjóri fyrir Heru og
stýrði öllum undirbúningi svo Hera gæti
einbeitt sér að söngnum og atriðinu í Ósló.
Hera Björk segir að þau Örlygur Smári haíi
ákveðið að breyta laginu svolítið og poppa
það upp fyrir úrslitakeppnina í Ósló. „Við
stækkuðum það aðeins fyrir þessa keppni ef
svo má að orði komast."
Auk þess sem þau Örlygur Smári tóku lagið
í gegn og breyttu því var unnin hefðbundin
vinna fyrir svona keppninr eins og að búa til
kynningarefni, ganga frá sviðsetningu, leik-
mynd, myndatökum og gerð myndbands.
KVIKMYNDASKÓLINN
GERÐI MYNDBANDIÐ
Ekki stóð til í fyrstu að gera myndband með
laginu, en þegar þau tíðindi bárust inn i Kvik-
myndaskóla Islands þótti mönnum þar á bæ
Undirbúningur í Ósló. Óformlegir tónleikar í garði íslenska sendiráðsbústaðarins í Ósló.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir sendiherra bauð. Gestir voru mest erlendir blaðamenn.
mikla íslenska söngkona hefði þá verið með
besta lagið en allt kom fyrir ekki. Hún tók
hins vegar þátt í undankeppninni hér heima í
vetur með lagið Je Ne Sais Quoi.
Hera Björk er mikill Eurovison reynslubolti
og hefur farið tvisvar áður í stóru keppnina
en þá sem bakraddasöngkona. Hún segir að
auðvitað sé erfitt að keppa í tónlist þar sem
fólk hafi mismunandi smekk á tónlist.
Hera Björk er 38 ára, fædd 29. mars 1972 í
Reykjavík og ólst upp í Breiðholti. Hún gekk
í Ölduselsskóla og síðar í Fjölbrautarskólann
í Breiðholti.
Hún byrjaði ung að syngja og söng meðal
annars inn á auglýsingar og barnaplötuna
Göngum við í kringum fyrir 12 ára aldur.
Hún hóf nám í Söngskólanum í Reykjavík
haustið 1989 og lærði söng hjá söngvurunum
Rut Magnússon, Bergþóri Pálssyni, Elínu
Ósk Óskarsdóttur, Ernu Guðmundsdóttur
og fleirum.
Hera Björk sigraði í sinni fyrstu söngkeppni
þegar hún keppti í Hæfileikakeppni Suður-
lands árið 1998 og vann þá keppni; tók fyrsta
sætið með laginu Perfect sem hljómsveitin
Fairground Attraction gerði frægt á sínum
tíma. Seinna keppti Hera Björ í Söngkeppni
framhaldsskóla fyrir hönd Fjölbrautarskólans
í Breiðholti og lenti þar í öðru sæti með lagið
An þín.
Hún hefur tekið þátt í uppfærslum á Rocky
horror picture show, Evitu, Litlu hryllings-
búðinni og Kysstu mig Kata. Hún lék og
söng í sýningunni Sirkús Skara skrípó í Loft-
kastalanum á árunum 1996 til 1997.
Þá hefúr hún m.a. sungið með hljómsveitun-
um Orgil, Sweetý og 17 Vélum. Hún hefur
sungið inn á fjölmargar plötur, bæði sóló sem
og bakraddir. Hún gaf út sína fyrstu sóló-
plötu árið 2000, Ilmur af jólum. Þá stjórnaði
hún sjónvarpsþættinum Stutt í Spunann á
Smári unnu samhliða unnið að nýrri plötu —
eða diski öllu heldur.
„Það er engu logið um það að nóg hefur
verið að gera hjá mér að undanförnu,“ segir
Hera Björk en þrátt fyrir mikið álag kveðst
hún furðu brött. „Þetta er skemmtilegt og
gefandi og þess virði að leggja alla þessa
vinnu á sig.“
Nýja platan heitir einfaldlega Je Ne Sais
Quoi. „Þetta er létt og skemmtileg plata,
uppistaðan partýlög af ýmsu tagi, ef frá eru
talin tvö lög í rólegri kantinum."
Auk lagsins Je Ne Sais Quoi er einnig lagið
Someday, sem Hera Björk flutti í undan-
keppni danska sjónvarpsins í fyrra og lenti
í öðru sæti. Þá eru þarna gamlir og þekktir
diskósmellir í nýjum útsetningum, m.a. lagið
Knock on Wood sem Amy Stewart gerði
frægt á sínum tíma.
EYJ AFJALLAJ Ö KULL
Systir Heru Bjarkar, Þórdís Lóa, eigandi
Pizza Hut, var hennar hægri hönd í undir-
búningi fyrir keppnina og sá um allt sem
viðkemur viðskiptahliðinni, enda gamalreynd
á því sviði sem athafnakona í fremstu röð.
Valgeir Magnússon, umboðsmaður Heru
Bjarkar, sá einnig um ýmislegt sem upp
á kom í daglegu amstri og létti af henni
álaginu.
Miklar vangaveltur voru um það hvort Eyja-
fjallajökull myndi ekki sjá um allt kynningar-
starf fyrir Heru. Eftir úrslitin í Óslól eru allir
fullvissir um að gosið hafi skemmt fyrir.
Um 15 manns voru í fylgdarliði hennar,
fólk sem tók þátt í keppninni með einum
eða öðrum hætti. En síðan bættist við
drjúgur hópur; eins og makar, fjölskylda og
stuðningsmenn.
Hera Björk undirbjó sig andlega og líkam-
lega fyrir keppnina með stífum æfingum í
Rope-Yogasetrinu hjá Guðna Gunnarssyni,
„Það er mikilvægt að vera með gleði í hjarta og vel stemmdur
þegar stigið er á svið og tekið þátt í keppnum."
það algerlega óviðunandi. Nemendur við
skólann buðust til að gera myndbandið og
það varð úr.
Hera segir að gerð myndbandsins hafi verið
góður skóli fyrir nemendur sem hafi fengið
tækifæri til að vinna verkefni sem væri í um-
ræðunni.
Undirbúningsvinna vegna þátttökunnar
í Ósló var eðlilega tímafrek hjá Heru. En
þar með var ekki öll sagan sögð því Örlygur
þar sem hún var í svonefndum „Glow Motion“
tímum. Það er blanda af hægu og slakandi
ropeyoga og þrekæfingum.
„Það er mikilvægt að vera með gleði í
hjarta og vel stemmdur þegar stigið er á
svið og tekið þátt í keppnum og því eru
þrekæingar og ropeyoga mikilvægt,“ segir
Hera Björk. SKÝ
18 ský 2.tbl. 2010