Jökull - 01.01.2020, Blaðsíða 91
Hrafnhildur Hannesdóttir og fl.
1. mynd. F.v. Tveir af umsjónarmönnum sporðamælingaverkefnisins, þeir Sigurjón Rist vatnafræðingur og Jón
Eyþórsson veðurfræðingur. Með í för eru Guðmundur Jónasson öræfabílstjóri, Jean Martin franskur vísinda-
maður og Jón Kjartansson alþingismaður og sýslumaður Skaftfellinga, en þeir eru staddir í Sólheimakoti eftir
þykktarmælingaferð á Mýrdalsjökul. – From left: Two of the scientists responsible for the terminus monitoring
programme; Sigurjón Rist, hydrologist and Jón Eyþórsson, meteorologist, together with Guðmundur Jónasson,
mountain driver, Jean Martin, French scientist and Jón Kjartansson, member of parliament and county magi-
strate of Skaftafellssýslur, after an expedition to the Mýrdalsjökull ice cap. Ljósmynd/Photograph: Sigurjón
Rist, 27. júní 1955.
Sporðamælingar Jóns Eyþórssonar og Jöklarann-
sóknafélagsins
Undir lok 19. aldar byrjuðu Alpaþjóðir og Norð-
menn skipulegar mælingar á jökulsporðum til þess
að fylgjast með breytingum á þeim. Jón Eyþórs-
son veðurfræðingur (1. mynd) og stofnandi Jökla-
rannsóknafélags Íslands kynntist slíkum mælingum á
námsárum sínum í Noregi. Hann hóf að mæla reglu-
bundið árlegar breytingar íslenskra jökulsporða árið
1930 með styrk frá Náttúrufræðideild Menningarsjóðs
(2. mynd).
Fyrsta skýrsla um mælingarnar kom út ári síðar
(Jón Eyþórsson 1931) og eru þar birtar nokkrar falleg-
ar skissur af jökulsporðum og afstöðu mælingavarða
eins og sjá má dæmi um á 3. mynd.
Fyrsta árið mældi hann skriðjökla frá Snæfells-
jökli, Eyjafjallajökli, Drangajökli og Mýrdalsjökli.
Örfáum árum síðar bættust við skriðjöklar sunnan
Vatnajökuls og einnig Loðmundarjökull í Kerlingar-
fjöllum, nokkrir skriðjöklar Hrútfells, skriðjöklar í
austanverðum Langjökli og sunnanverðum Hofsjökli.
Náði kerfið strax á fyrstu árunum til flestra jökulsvæða
88 JÖKULL No. 70, 2020