Jökull - 01.01.2020, Qupperneq 95
Hrafnhildur Hannesdóttir og fl.
Aðalsteinn Jóhannsson (1909–1993) á Skjaldfönn
í Skjaldfannardal sem mældi einna lengst allra, skrif-
aði einnig löng bréf (6. mynd), en oft á tíðum bárust
Jóni þéttskrifaðar 8–10 blaðsíður. Í seinni tíð hafa
bréf sonar hans, Indriða Aðalsteinssonar á Skjald-
fönn, borið af í náttúrulýsingum, að öðrum ólöstuð-
um. Auk framvindu sporðabreytinga á Kaldalóns-
jökli, eru þar lýsingar á músagangi, fjölda rjúpna,
berjasprettu, veðri og fallþunga dilka hver árs. Ein-
ar Gunnlaugsson og fjölskylda tóku við mælingum á
sporði Sólheimajökuls árið 1997 og hafa lengi skil-
að nákvæmum skýrslum sem skreyttar eru fjölda ljós-
mynda og korta.
6. mynd. Mælingaskýrsla Aðalsteins Jóhannssonar á
Skjaldfönn frá 1936. – The measurement report of
Aðalsteinn Jóhannsson farmer at Skjaldfönn since
1936.
Nokkrir bændur sinntu mælingum í marga áratugi
og mældu sumir fleiri en einn jökulsporð. Guðlaug-
ur Gunnarsson (1924–2013), fyrrum bóndi í Svína-
felli, sinnti sporðamælingum lengst allra, eða sam-
fellt í 60 ár (tafla 1 og 9. mynd). Hann hóf að mæla
stöðu Svínafellsjökuls árið 1947. Hann mældi jökul-
inn lengst af á fimm stöðum, en einungis ein mælilína
hefur verið notuð frá árinu 1981. Guðlaugur sinnti
einnig sporðamælingum á Skaftafellsjökli, Falljökli
og Virkisjökli. Hann notaði garnspotta sem festur var
við járnpípu og rakti að jökli. Á þennan hátt var vega-
lengdin mæld að sporði og hvort jökullinn hafi hop-
að eða skriðið fram hvert ár. Í töflu 1 er yfirlit um
þá sem lengst hafa sinnt sporðamælingum. Vert er
að taka fram að í nokkrum tilfellum hefur hafa mæl-
ingar haldist innan sömu fjölskyldu frá upphafi, t.d. á
Reykjarfjarðarjökli og Skeiðarárjökli vestanverðum.
7. mynd. Gjöld vegna jöklamælinga árið 1935, reikn-
ingur sem Jón Eyþórsson sendi til Náttúrufræði-
deildar menningarsjóðs. – Expenses for glacier mea-
surements during the year 1935, which Jón Eyþórs-
son sent to the Natural Science Department of the
Cultural Fund.
Nú fylgjast sjálfboðaliðar Jöklarannsóknafélags-
ins með breytingum á um 50 mælistöðum á hverju
ári. Þéttbýlisfólki hefur á síðari árum fjölgaði
í liði sporðamælingamanna en bændum að sama
skapi fækkað. Er skrá yfir starfsstéttir í þeim hópi
mjög fjölbreytt: bifvélavirki, bóndi, húsfreyja, hæsta-
92 JÖKULL No. 70, 2020