Jökull - 01.01.2020, Page 104
Að fóstra jökul
Jón Eyþórsson skrifar í framhaldi: „Þetta er gott
dæmi þess, hve miklum erfiðleikum það getur verið
bundið fyrir einn mann að framkvæma mælingar við
jökulsporða, sem liggja fram á flata sanda“, (Jón Ey-
þórsson, 1960).
Stundum truflar sporðamælingarnar að jökullinn
getur skilið eftir dauðísfláka (ís sem missir tengingu
við jökulinn og hættir að skríða) misgrafna í möl og
sandi við sporðinn. Þá getur verið erfitt að greina
dauðís frá jöklinum sjálfum og meta hvort um raun-
verulegan jökuljaðar sé að ræða. Helsta lausnin er
staðþekking sporðamælingafólks sem kemur að sama
jökuljaðrinum ár eftir ár. Þó erfitt sé að marka jað-
arinn tiltekið ár er líklegt að ári seinna megi sjá hvar
breytingar séu að eiga sér stað og hvað sé raunveru-
legur jaðar jökulsins.
Mælingamenn eru hvattir til að taka ljósmyndir
af jökulsporðinum í hverri ferð frá sama sjónarhorni
og hafa nokkrar mjög áhugaverðar myndaraðir litið
dagsins ljós (16. og 17. mynd). Ljósmyndir sem sýna
Figure 15. left. – The line of reference points in front of Breiðamerkurjökull has repeatedly been shifted since
the start of the terminus monitoring; to the left: west of Jökulsárlón glacier lagoon (at Nýgræður), to the right:
east of the lagoon (west of Stemma). The glacier front has retreated by 5–6 km during this period. Blue circles
indicate terminus positions determined from satelite images and GPS measurement in the field. Green and red
circles mark positions of cairns. Source: Base Map data of the National Land Survey of Iceland (is50v).
16. mynd. Samanburðarmyndir af jökulsporðum. Ofar: Sýn norður yfir sporð Sólheimajökuls frá Jökulhaus.
Neðar: Falljökull og Virkisjökull. – Photographic comparison of measured termini at different times. Top:
View towards north over Sólheimajökull from Jökulhaus. Below: Falljökull and Virkisjökull. Ljósmynd-
ir/Photographs: Ofar/Top: Einar Gunnlaugsson, 20. október 2000 og 25. nóvember 2018. Neðar/Below: Jón
Eyþórsson 1930, Hrafnhildur Hannesdóttir, 3. júlí 2019.
JÖKULL No. 70, 2020 101