Jökull - 01.01.2020, Page 105
Hrafnhildur Hannesdóttir og fl.
17. mynd. Samanburðarmyndir af jökulsporðum. Ofar: Horft austur yfir Fjallsjökul og Breiðamerkurjökul.
Neðar: Svínafellsjökull og Hrútsfjallstindar í fjarska. – Photographic comparison of measured glacier termini
at different times. Top: Looking east towards Fjallsjökull and Breiðamerkurjökull. Below: Svínafellsjökull and
Hrútsfjallstindar in the distance. Ljósmyndir/Photographs: Ofar/Top: Kvískerjabræður, 1938, Snævarr Guð-
mundsson, 27. september 2016. Neðar/Below: Ólafur Magnússon, 1925–1940, Hrafnhildur Hannesdóttir, 1.
október 2019.
breytingar ár frá ári eru mikilvægar, bæði til þess að
koma á framfæri auðskiljanlegum upplýsingum um
jöklabreytingar, og ekki síður fyrir vísindalega skrá-
setningu. Best er að myndir séu teknar frá nákvæm-
lega sama sjónarhorni, í sömu stefnu og með sama
aðdrætti (sömu brennivídd). Algengt er að mæling-
unum fylgi lýsing á breytingum á svæðinu við jökul-
sporðinn. Lýsingar sem þessar eru gagnlegar viðbót-
arupplýsingar í vöktun jökla landsins og ljóst að ekki
er hægt að skrásetja allar breytingar út frá fjarkönnun-
argögnum einum saman.
Undanfarin ár hafa orðið miklar framfarir í stað-
setningartækni og nú skila venjuleg GPS leiðsögutæki
og snjallsímar með GPS-móttakara láréttri staðsetn-
ingu með nákvæmni upp á ±5 m. Þessi tæki má því
nota til árlegra mælinga á jökulsporðum með viðun-
andi nákvæmni. Þetta gefur einnig möguleika á frek-
ari gagnaöflun til viðbótar við fyrri mælingar á fjar-
lægð jökuljaðars frá föstu merki. Hægt er að skrá-
setja mæliferil af stöðu sporðsins með því að ganga
eftir jaðrinum með GPS-tæki. Með skilgreiningu á
viðmiðunarlínu þvert á miðjan jökulsporðinn má þá
draga fram árlega breytingu sem eina tölu fyrir hop
eða framgang í samræmi við fyrri mælingar eftir eldri
mælilínunni og tryggja með því samfellu gagnasafns-
ins. Mikilvægt er að mælilínur (varðaðar og skil-
greindar út frá GPS-punktum) (i) liggi samsíða meg-
inskriðstefnu jökulsins, (ii) liggi þvert á jökulsporð-
inn á stað sem er lýsandi fyrir breytingar á honum á
nokkuð stóru svæði, (iii) séu aðgengilegar og (iv) séu
nýtilegar án endurskilgreiningar fyrir talsverðar breyt-
ingar í stöðu sporðsins.
102 JÖKULL No. 70, 2020