Jökull - 01.01.2020, Side 115
Hrafnhildur Hannesdóttir
Lónið framan Skaftafellsjökuls heldur áfram að
stækka og gerir mælingafólki erfitt fyrir að mæla
stöðu sporðsins. Fjarlægðarkíkirinn hvílir á mælinga-
vörðunni. – The lagoon in front of Skaftafellsjökull
outlet glacier continues to increase in size, making
measurements problematic. The laser rangefinder lies
on one of the reference cairns. Ljósm./Photo: Svava
Björk Þorláksdóttir, 20. október, 2019.
„Mælilínan okkar liggur til suðausturs innan við
Smáfjöll. Til þess að komast þangað höfum við ekið
til suðurs milli Stórkonufells og Smáfjalla eftir gam-
alli bændaslóð, sem liggur suður að brún við Entu-
jökul, en við höfum farið út af henni til austurs að
mælilínunni okkar. Norðaustan við Stórkonufell ligg-
ur slóðin niður árbakka ofan í kvísl sem ég held að
sé nafnlaus, en við höfum stundum kallað Smáfjalla-
kvísl. Þaðan hefur verið ekið góðan kafla upp eftir
ánni, sem svo lengi sem við þekkjum hefur verið algjör
kettlingur og auðveld viðfangs. Nú er hins vegar kom-
in foráttu jökulá í farveginn. Hún hefur rofið bakkana
og ummerki eru um að hún hafi flæmst eitthvað um
áður. Við gengum niður að ármótum kvíslarinnar og
Innri-Emstruár norðan Smáfjalla. Mun minna vatn er
nú í Innri-Emstruá en Smáfjallakvíslinni.“
Það virðist sem að framgangur í Entujökli hafi haft
áhrif á árfarvegina með ofangreindum hætti. Því var
kannað hvort sjá mætti ummerki um þetta framhlaup
í Sentinel-2 skriðhraðgögnum og reyndist svo vera.
Fjarkönnunargögnin sýna greinilega árstíðasveiflu í
skriðhraðanum og jafnframt að hraðinn haustið 2018
var e.t.v. meiri en ætla mætti út frá árstíðasveiflunni
einni saman þegar gögnin frá 2018 og 2019 eru borin
saman. Munurinn er þó ekki afgerandi. Jökulsporður-
inn gekk fram um 100–300 m, frá 2018 til 2019.
Hér liggur bændaslóðinn milli Stórkonufells og
Smáfjalla sem farinn er þegar haldið er til mælinga á
Sléttjökli. Nú rennur mun meira vatn í farveginum en
áður. – The mountain track (mainly used by farmers)
between Stórkonufell and Smáfjöll, which is used to
access Sléttjökull. Due to a sudden advance of Slétt-
jökull between 2018 and 2019, the meltwater chann-
els changed, and now this gorge contains considera-
bly more water than before. Ljósm./Photo: Ingibjörg
Kaldal, 9. október, 2019.
112 JÖKULL No. 70, 2020