Jökull - 01.01.2020, Blaðsíða 124
Jökulsá á Breiðamerkursandi
2. mynd. Breiðamerkursand-
ur. Hæðarlínur með eins metra
millibili draga fram lögun aur-
keila Jökulsár og Breiðár (neðst
t.v.). Jökulsá fór að grafa sig
niður í aurkeilu sína á seinni
hluta 19. aldar en flæmdist þó
í ýmsum farvegum uns hún var
komin í fastan farveg laust fyr-
ir miðja 20. öld, í þann mund
sem lón voru farin að myndast
framan við Breiðamerkurjök-
ul. Appelsínugula línan markar
hvar sporður Breiðamerkurjök-
ull var í lok litlu ísaldar, nálægt
1890.
– The Breiðamerkursandur plain. Contour lines, with one meter interval underline the smooth angled alluvial
fans of Jökulsá and Breiðá (not shown on map) at lower left. The Jökulsá started to reshape the centre of the fan
in late 19th century, however it meandered in several different riverbeds until the development of the terminal
lake in front of Breiðamerkurjökull, in the 1930s. The river settled in a single channel near the center of the
20th century. The orange line depicts the late LIA ∼1890s extent.
og Breiðá. Af aurkeilu Jökulsár að dæma gæti áin hafa
flæmst um svæði sem er a.m.k. átta km breitt, á síð-
ustu öldum. Jökulsá hefur svo sorfið farvegi í aurkeil-
una, eins og sjá má af lögun hæðarlínanna á 2. mynd.
Farvegirnir eru frá 19. og 20. öld. Það er því einungis
um ∼2 km breið og 8–9 km löng landspilda eftir, sem
í er skráð saga Jökulsár á Breiðamerkursandi. Lítið
er vitað um hvar Jökulsá rann nákvæmlega fyrr á öld-
um en þó er víst að hún skipti löndum jarðanna Fells
(austan ár) og Breiðár (vestan ár). Í Landnámu segir
m.a. (84 kafli): „Þórður illugi son Eyvindar eikikróks
braut skip sitt á Breiðársandi; honum gaf Hrollaugur
land milli Jökulsár og Kvíár, og bjó hann undir Felli
við Breiðá“ og „Ásbjörn fór til Íslands og dó í hafi,
en Þorgerður, kona hans, og synir þeirra komu út og
námu allt Ingólfshöfðahverfi á milli Kvíár og Jökuls-
ár...“
Engin forn kort né ritheimildir gefa í skyn að
stöðuvatn hafi verið á Breiðamerkursandi, áður en
Breiðamerkurjökull gekk fram á litlu ísöld (Knoff
1734; Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson 1978;
Sveinn Pálsson 1945). Tiltölulega flöt og nokkurra
km breið aurkeila byggðist upp fyrir framan jökulinn,
því að Jökulsá og aðrar kvíslar sem streymdu frá hon-
um, flæmdust um með töluvert af seti. Lögun aurkeil-
unnar, eða það sem eftir er af henni, sést greinilegast
á fremur mjórri landræmu á milli sjávar og fremstu
jökulgarða við Nýgræður (nefnd Háalda vestri) og Út-
JÖKULL No. 70, 2020 121