Jökull - 01.01.2020, Qupperneq 160
Jöklarannsóknafélag Íslands
á vegg í skálanum á Grímsfjalli. Veður var hagstætt
og tókst að bera á öll hús og ditta að mörgu.
Helgina 13.-15. september fór 17 manna hópur
hefðbundna 13. septemberferð í Jökulheima. Ferðin
heppnaðist vel með gönguferðum og grilli.
GJÖRFÍ göngur voru nokkuð reglulega annan
hvern fimmtudag yfir veturinn. Misjafnt er hve marg-
ir mæta en ferðirnar eru öllum opnar og auglýstar í
fréttabréfinu.
SKÁLAMÁL
Skálanefnd fór nokkra ferðir í Jökulheima og sinnti
venjulegu viðhaldi. Ástandið á húsunum er almennt
gott. Á Grímsfjall var farið 29. ágúst ? 1. september
eins og nefnt var hér að framan. Auk málunar á öllum
húsum voru þau yfirfarin, dælubúnaði fyrir dieselolíu
úr útitanki var komið í lag og áfyllingarkerfi uppfært.
Viðhald og rekstur rafstöðvarinnar er í samstarfi við
Neyðarlínuna. Til stóð að smíða kamar fyrir Esjufjöll,
en styrkur fékkst til þess úr Uppbyggingarsjóði ferða-
mannastaða. Ekki voru þó tök á því að ljúka verkinu
síðastliðið vor þar sem tími til stefnu var of skammur,
en vegna aðstæðna þarf að fara í Esjufjöll ekki seinna
en í lok mars eins og aðstæður eru nú orðnar. Stefnt
er á að klára verkefnið nú á árinu 2020, fyrir lok mars
ef aðstæður leyfa.
Bragginn Breiðá á Breiðamerkursandi er elsta hús
sem enn er uppistandandi hér á landi og byggt með
þarfir jöklarannsókna í huga. Nokkur umræða hef-
ur verið á síðustu misserum um framtíð þess, en vilji
stendur til þess að varðveita húsið, helst í samvinnu
við Vatnajökulsþjóðgarð. Það mál er enn sem komið
er í biðstöðu.
BÍLAMÁL
Bíll félagsins stendur ennþá fyrir sínu og reyndist vel
í þeim ferðum sem hann tók þátt í. Bílanefnd sinnir
bílnum vel með fyrirbyggjandi viðhaldi. Komin er af
stað umræða um endurnýjun bílsins en hann er nú orð-
inn rúmlega 20 ára gamall. Ekkert hefur verið ákveð-
ið í þeim efnum en það er stefna stjórnar að endurnýja
þegar aðstæður til þess eru hagstæðar.
SAMSTARF VIÐ LANDSVIRKJUN
Samningur hefur verið við Landvirkjun um stuðning
við verkefni félagsins. Síðasti samningur rann út í
árslok en hann hefur verið endurnýjaður. Stuðningur
Landsvirkjunar er mikilvægur þar sem hann tryggir
afnot af öflugum snjóbíl í vorferðum, sem er grund-
vallaratriði fyrir þá ferð, sem er í senn umfangsmikil
og fjölbreytt rannsóknaferð og ferð sem sér um flutn-
inga á eldsneyti og birgðum fyrir skálana og tækin á
Grímsfjalli.
ÁRSHÁTÍÐ
Árshátíðin var haldin laugardaginn 16. nóvember.
Allt gekk vel, þátttaka var góð en gestir voru tæplega
70. Fordrykkur var í þetta sinn í boði Háskóla Íslands
og fór hann fram í Öskju. Guðmundur Jónasson flutti
okkur svo út í óvissuna, í þetta sinn í ágætan sal úti á
Seltjarnarnesi.
LOKAORÐ
Starfsemi JÖRFÍ hefur vakið verulega athygli á síð-
ustu árum og hefur hún farið vaxandi frekar en hitt.
Sú athygli nær langt út fyrir landsteinana, eins og sjá
má af mörgum viðtölum og fréttum um sjálfboðastarf
hér á landi við jöklarannsóknir. Mig langar að lokum
að nefna þrjú dæmi þar sem félagið og starfsemi þess
hefur verið getið að góðu:
1. Bók Andra Snæs Magnasonar, Tíminn og vatnið,
en þar kemur félagið og starf afa og ömmu Andra
Snæs, Árna Kjartanssonar og Huldu Filippusdóttur
innan þess mjög við sögu.
2. Unglingabók Kristínar Helgu Gunnarsdóttur,
Fjallaverksmiðjan, en hún gerist að stórum hluta í
Breiðá, skála félagsins á Breiðamerkursandi.
3. Í nýlegri grein í Fréttablaðinu tók menntamála-
ráðherra Jöklarannsóknafélagið sem gott dæmi um
þátttöku almennings í rannsóknum og tiltók sérstak-
lega sporðamælingarnar.
Framundan er afmælisár, þar verður ýmislegt gert
til að minnast tímamótanna og vonandi verður þetta
70. ár félagsins farsælt.
Flutt á aðalfundi 25. febrúar, 2020.
Magnús Tumi Guðmundsson
JÖKULL No. 70, 2020 157