Jökull - 01.01.2020, Side 161
Society report
Óvenjuleg vorferð JÖRFÍ 2020
Hrafnhildur Hannesdóttir1 og Þórdís Högnadóttir2
1Veðurstofu Íslands, Bústaðavegi 7–9, 108 Reykjavík; hh@vedur.is
2Jarðvísindastofnun Háskólans, Öskju, Sturlugötu 7, 101 Reykjavík
Vegna Covid faraldurs varð að aflýsa hefðbundinni
vorferð JÖRFÍ enda engin leið að virða fjarlægða-
mörk sóttvarnarreglna í tveggja manna kojum Nýja
skálans á Grímsfjalli. Það voru engu að síður fyrir-
liggjandi viðhaldsverkefni og reglubundnar mælingar
sem ekki hefði verið gott að fresta. Því var ákveðið að
farið yrði í fámenna vinnuferð á vegum Jarðvísinda-
stofnunar Háskólans og Veðurstofu Íslands. Vegna
aurbleytu í Jökulheimum lá leiðin upp Skálafells-
jökul, líkt og árið á undan. Leiðangur Veðurstofufólks
var 1.–9. júní, með viðkomu á Vagnsstöðum í gist-
ingu en starfsfólk Jarðvísindastofnunar lagði af stað
snemma morguns 2. júní og kom til byggða aðfaranótt
5. júní, fóru þau milli Reykjavíkur og Grímsfjalls í
einum legg. Á jökli var notast við 2 bíla og 7 véls-
leða. Þátttakendur frá Veðurstofu voru Baldur Bergs-
son, Benedikt Ófeigsson, Bergur Hermanns Bergs-
son, Hrafnhildur Hannesdóttir, Melissa Pfeffer og Vil-
hjálmur Kjartansson. Frá Jarðvísindastofnun fóru Eyj-
ólfur Magnússon, Sveinbjörn Steinþórsson og Þórdís
Högnadóttir. Talsverð hagræðing var af sameiginlegu
matarfélagi og munaði þar mest um fjölbreytt úrval af
engiferöli og rjómatertubotnana sem komust heilu á
höldnu upp á Grímsfjall.
Verkefnalisti vorferðar var fjölbreyttur og verð-
ur hér farið yfir það helsta. Íssjármælingar í Eystri
Skaftárkatli og þyngdarmælingar á Bárðarbungu til að
fylgjast þar með breytingum, sem orðið hafa í kjöl-
far öskjusigsins 2014–2015. Farið var til gasmælinga
í sigkötlum Bárðarbungu og í Grímsvötnum. Ýmis
GPS-tæki voru sett í gang aftur; á Rótarfjallshnjúk
þurfti að grafa nokkra metra niður á tækið og í Skaft-
Uppsetning á nýju GPS-tæki Veðurstofunnar í Grímsvötnum, Benedikt Ófeigsson í lokafrágangi á köplum.
Ljósmynd/ Photo : Hrafnhildur Hannesdóttir, 5. júní 2020. – Installation of the new GPS instrument in Gríms-
vötn, Benedikt Ófeigsson connecting the cables.
158 JÖKULL No. 70, 2020