Úrval - 01.10.1944, Blaðsíða 50
48
ÚRVAL
samt ekki setjast — því enga
nauðsyn ber til þess. Þegar flug-
völlurinn nálgast, losar „for-
maðurinn“ skip sitt úr tengslum,
en það lækkar flugið og sezt
hægt og líðandi. Svifflugulestin
heldur áfram ferð sinni, eins og
ekkert hafi í skorizt. Hraði
hennar og hæð er óbreytt. Svif-
flugan, er var næst á undan í
röðinni, dregur inn dráttar-
taugina, sem nú er ónotuð.
Fyrir ekki mörgum nánuðum
síðan, mundi slíkt ferðalag, ef á
góma hefði borið, verið talið af
mörgum hlægileg fjarstæða.
Stríðið hefir sannfært okkur um
framtíðarmöguleika þessarar
fjarstæðu. Menn ættu að hafa
það í huga, að það voru svif-
flugulestirnar er ráku fyrsta
fleyginn í Evrópuvirki Hitlers,
er innrásin í Normandi hófst.
Sumar lestirnar voru allt að
fimmtíu enskar mílur á lengd.
Það voru svifflugur er lentu
heilum herdeildum alvopnuðum
ásamt birgðum. Hamilcar svif-
flugan brezka ber jafnvel heiian
skriðdreka í ,,nefinu“ og þeir
voru fluttir þannig svo hundruð-
um skifti. Við sjáum fyrir okk-
ur svifflugu, sem er að lenda —
hún opnar nef sitt og út brunar
skriðdreki með allri áhöfn,
reiðubúinn að taka þátt í hildar-
leiknum. í einu tilfelli, sem sagt
er frá, hafði skriðdreki lokið við
að eyðileggja þýzkt vélbyssu-
hreiður hálfri þriðju mínútu
eftir að svifflugan lenti með
hann. Af þessu getur þú ráðið,
að hjal okkar um svifflug-
ur, er flytja munu þig og
föruneyti ásamt vagni fjöl-
skyldunnar í sumarleyfið, er
engin fjarstæðukennd draum-
sýn. Sennilega verður það eink-
ar hverdagslegur atburður eftir
stríð. Hingað til höfum við séð
fátt eitt af því, sem svifflugur
megna. Þess verður skammt að
bíða að þeim fjölgi og þá fáum
við að sjá stærri og fullkomn-
ari gerðir. Svifflugan hefir
reynst stríðsþjóðunum ómetan-
leg við stríðsreksturinn. Engu
minna gagn mun hún gera á
friðartímum. Hún verður til
þess að lækka svo farmgjöldin
loftleiðina, að flugfélögin verða
fær um að keppa um flutninga
við járnbrautar- og bifreiða-
félög. í samkeppninni um far-
þegaflutning ættu þær að standa
einkar vel að vígi. Við skulum
stuttlega athuga rekstur þeirra.
Miðlungsstór flutningavél
getur flutt 21 farþega auk skips-
hafnar. Án erfiðismuna getur