Úrval - 01.10.1945, Side 2
Ferðir farfuglanna.
Dr. Albert Wolfson, kennara
við Northwestern háskólann,
mun einum hafa tekizt að lokka
farfugla til norðurflugs á miðj-
um vetri.
Rannsóknír hans hafa leitt
margt nýstárlegt í ljós og stór-
um aukið þekkingu vora á or-
sökunum til ferða farfuglanna.
Menn hafa gert sér í hugar-
lund, að þegar veður hlýna með
komandi vori og hækkandi sól,
þá segt einn fugl við annan:
„Mér leiðist hér. Við skulum
leita norður á bóginn.“ Og það
verður að ráði.
Rannsóknirnar sýndu hins-
vegar, að fuglarnir búa sig und-
ir leiðangurinn mánuðum sam-
an, með þvi að safna fitu sem
eldsneyti. A þeim tíma þyngjast
þeir sem svarar einum fimmta
hluta af þunga þeirra. Þessi
fitusöfnun er óháð fæðunni og
stafar af kirtlastarfsemi, enda
fitna fuglarnir þó þeir fái ekki
nóga næringu.
Fróðir menn hafa álitið að
kynhvötin réði þessum ferðum,
en dr. Wolfson sannaði að þeir
fuglar, sem gerðir eru kynlaus-
ir með læknisaðgerð, fara engu
síður í hina árlegu leiðangra
heldur en hinir sem eru 1 fullu
fjöri.
1 þrjú ár fékkst dr. Wolfson
við þessar tilraimir og byrjaði
þær alltaí í desember mánuði.
Fuglarnir voru hafðir í búri og
dagamir voru smám saman
lengdir, með rafmagnsljósi, um
nokkrar mínútur dag, kvölds og
morgna. Fuglamr bitu á agnið'
og tóku í gríð og erg að safna
fitu til flugsins.
Seint í janúar þóttust þeir
vita að sumarið væri komið og
voru óðir og uppvægir að kom-
ast af stað. Dr. Wolfson merkti
þá alla og sleppti þeim svo.
Það eru harla litlar likur fyrir
þvi að fuglar náist á meðan þeir
flytja búferlum. En einn fugl
náðist er hann hafði farið 350
km. leið norður. Það var köttur
sem náði honum og stendur
dr. Wolfson í mikilli þakklætis-
skuld við kisa, sem gerði honum
kleift að færa sönnur á kemúng-
av sinar.
— The Chicago Daily News.
ÚRVAL tímaritsgreina í samþjöppuðu forml.
Ritstjóri: Gísli Ólafsson, Leifsgötu 16. Afgreiðsla Tjamargötu 4,
pósthólf 365, Reykjavík. Kemur út sex sinnum á ári. Verð kr. 8,50
hvert hefti. Utanáskrift tímaritsins er: Urval, pósthólf 365, Reykjavík.
Sent til allra bóksala á landinu, og taka þeir við áskriftum. Einnig
sent gegn póstkröfu til áskrifenda, sem ekki búa I nágrenni bóksala.
ÚTGEPANDI: STEINDÓRSPRENT H.F.