Úrval - 01.10.1945, Page 28
26
ÍXRVAL
Má þá sjá, að bylgjulína kemur
fram á myndfleti bakskauts-
geislahylkisins, og eins og áð-
ur er sagt, eru öldurnar um 10
á sekúndu. Þeir, sem ekki vita
hvernig bakskautsgeislahylki
lítur út, geta ímyndað sér gler-
rúðu, sem ljósdepill hreyfist
yfir eftir bylgjulínu. Ég gat
þess, að maðurinn þyrfti að
hafa aftur augun og hætta að
hugsa um nokkuð sérstakt. Ef
hann svo opnar augun eða fer
að hugsa um eitthvað ákveðið,
breytist hin reglubundna
bylgjulína í óreglulega línu og
hinn reglubundni bylgjusláttur,
10 á sekúndu, greinist ekki
lengur.
Þegar maður hugsar, eiga sér
stað vélrænar (mekaniskar)
breytingar, sem hægt er að
athuga.
Sp.: Valda allar hugsanir
sömu breytingum á raföldun-
rnn?
Sv.: Ekki er það. Ég tók einu
sinni þátt í tilraunum af þessu
tagi, sem gerðar voru með stærð-
fræðing. Við komumst að þeirri
niðurstöðu, að væri hann spurð-
ur að einhverju einföldu, t. d.
hvað er 7 sinnum 6, gat hann
svarað án þess, að það hefði
nokkur sjáanleg áhrif á raf-
öldumyndina. En væri hann
spurður um eitthvað vanda-
samara, t. d. hvað er fimmtán
sinnum nítján, varð breyting á
reglu bylgjulínunnar.
Sp.: Hefir nokkuð svipað
komið í ljós í sambandi við efna-
breytingar, sem eru hugsuninni
samf ara ?
Sv.: Nei, ég er hræddur um að
svo sé ekki. Að vísu mætti segja
sitt af liverju um þær efna-
breytingar, sem eiga sér stað í
taugaþráðum og taugafrumum
heilans, en það yrði of langt
mál hér.
Sp.: Hvað getið þér sagt um
þá eggjendur, sem framkalla
hugsun.
Sv.: Við því má gefa nokkurn
veginn afdráttarlaus svör. Öli
starfsemi miðtaugakerfisins,
þar með talinn heilinn, virðist
geta orðið fyrir áhrifum frá
umheiminum. Það, sem þar er
að gerast, verkar þá á eitthvert
skynfærana, og boð berast eftir
taugunum til miðtaugakerfis-
ins.
Sp.: Er þetta svo að skilja,
að ef mér dettur eitthvað frum-
legt í hug, þá sé það alls ekki
frá sjálfum mér komið, heldur
megi rekja það til utanaðkom-
andi áhrifa.