Úrval - 01.10.1945, Side 44
42
tÍRVAL
eftirvæntingu eftir þeim tíma,
þegar „nýi heimurinn, með allt
sitt veldi og mátt, kæmi á vett-
vang til björgunar og lausn-
ar hinum gamla.“ Og mælska
hans og hin hetjulega fram-
ganga Bretlands flýtti mjög
fyrir þeirri stundu. Þegar
Hitler æddi suður á Balkan-
skaga, hélt hann þegar til hjálp-
ar Grikklandi, þótt hann vissi,
að það hefði rneiri siðferðilega
en hernaðarlega þýðingu. Þeg-
arHitler sendiherskara sínainn
í Rússland, tilkynnti Churchill
strax: „Sérhver maður og sér-
hvert ríki, sem heldur áfram
baráttunni við nazismann, mun
njóta stuðnings okkar.“ Þegar
Japan réðist á Bandaríkin, var
hann strax kominn á vettvang
og var nokkrum klukkustundum
á undan Bandaríkjastjórn að
birta stríðsyfirlýsingu. Upp frá
því hefir hann verið jafn-ákveð-
inn í að heyja Asíu-stríðið sem
Evrópu-stríðið af öllu afli.
Hann hefir tekið þátt í öllum
þeim hernaðarákvörðumun, sem
nú hafa fært okkur sigurinn.
Nú eru næstum f jögur ár síð-
an Churchill gerði þetta heit.
„Við eigum aðeins eitt mark-
mið og einn óafturkallanlegan
tilgang. Við erum staðráðnir í
að gera út af við Hitler og upp-
ræta nazismann. Ekkert skal
hagga okkur frá þessari ákvörð-
un. Við skulum herja á hann á
landi, við skulum herja á hann
á sjó, við skulum herja á hann
í lofti, unz við höfum með guðs
hjálp losað jörðina við skugga
hans og frelsað þjóðir hennar
undan oki hans.“
Það var sannarlega ein af
áhrifamestu stundum sögunnar,
þegar hann kvaddi sér hljóðs í
þinginu til að tilkynna, að heitið
hefði verið efnt. Hann leit þá yf-
ir farinn veg, til hættustundar-
innar fyrir 5 árum, þegar hann
greip um stjórnvölinn. Hann
minntist þess stoltur, að á þeim
raunadögum, þegar hann gat
aðeins lofað landi sínu blóði,
striti, svita og tárum, hafði
hann einnig heitið því, að hinn
góði málstaður myndi hrósa
sigri að lokum.
Bretar hafa farið langan og
hættulegan veg síðan, veg'
sem oft hlýtur að hafa virzt
endalaus. Churchill stóð óbifan-
legur og einbeittur meðan her-
vél nazista óð frá sigri til sig-
urs, æddi yfir Holland og
Belgíu, bugaði Frakkland, rudd-
ist suður Balkanskaga, undir-
okaði hina hugprúðu Grikki,.