Úrval - 01.10.1945, Síða 57
RÓMANTlSKIR GLÆPIR 1 FRAKKLANDI
55
ástúðleg, hlýðin og nægjusöm
— hugsjónamanneskja, sem
verðskuldaði kærleika og skiln-
ing.“
Gabrielle Bompard, ástleitin
götudrós í París, — ,,með hóp
elskhuga á hælum" — fellst á
þá skoðun eins þeirra, er hét
Michel Eyraud, að ekki sakaði
að hafa meira fé með höndum.
Þau ákveða síðan að myrða
fyrsta ókunna manninn, sem
þeim lízt arðvænlega á. Gouffé
nokkur verður fórnardýrið, og
Gabrielle, tuttugu og tveggja
ára að aldri, er heila nótt ein
með líkinu í herbergi, meðan
sökunauturinn er að undirbúa
flótta þeirra. ,,Það var ekki
skemmtilegt að vera ein með
Iíkinu,“ sagði hún síðar ólund-
arlega.
Þau ferðuðust síðan með lík-
ið til Lyons, en þar köstuðu þau
því fram af björgum, og lögðu
svo af stað til Englands og
Ameríku, til þessaðnjótafengs-
ins. Þegar hún var tekin föst,
svaraði hún spurningurn ,,hálf
glettnislega" og gaf til kynna,
að hún hefði verið dáleidd.
Þannig eru svipmyndir þriggja
franskra afbrotakvenna frá
síðustu áratugum nítjándu
aldarinnar; þær vekja ekki
neina þrá til frekari rannsókna,
þær eru duttlungafyrirbrigði og
ófreskjur, og það er ekkert
varið í að fylgjast með hinum
auðnulausa æviferli þeirra. Það
er ekki heldur neitt leyndar-
dómsfullt við þær; þær voru
dæmdar fyrir glæpi, sem þær
játuðu á sig, þær vöktu ekki
samúð menntamanna samtíðar
sinnar, enginn barðist fyrir
málstað þeirra og þær ollu
engum deilum; hverdagslegir
harmleikir þeirra voru leiknir á
óskáldlegu raunsæistímabili
síðari helmings 19. aldarinnar.
Við skulum hverfa fimmtíu
ár aftur í tímann. Þá er aldar-
andinn allur annar og róman-
tíkin í fullu fjöri.Þaðeráfyrstu
ríkistjórnarárum Louis Philippe
Frakkakonungs, en á stjórnar-
tímabili hans var framinn
fjöldi stórglæpa.
Á byltingarárunum, sem
komu hertoganum af Orléans
til valda í Frakklandi, fannst
hinn aldraði Condé prins, einn
af auðugustu mönnum Norður-
álfu, hengdur í hinni skrautlegu
höll sinni. Sjálfsmorð! hrópa
konungssinnar. En ljótur orð-
rómur kemst á kreik. M. de
Condé var eins og barn í hönd-
um á frillu sinni. Sophie Dawes,