Úrval - 01.08.1953, Blaðsíða 63
MALTA — VIRKIÐ 1 MIÐJARÐARHAFI
61
undir sig árið 1090. Hann kaus
henni rauða og hvíta litinn að
þjóðartákni, og þeir litir eru enn
í fána hennar, og hann reisti
einnig margar kirkjur og kast-
ala, sem ferðamenn dást að enn
1 dag.
Árið 1120 var sonur Rogers
krýndur sem Roger I. konungur
Sikileyjar og Möltu, og báðar
eyjarnar komu síðar sem
erfðagóss í eign Spánverja. Unz
Karl V. gaf Jóhannesarreglunni
hana árið 1530. Jóhannesarridd-
ararnir voru upphaflega félags-
skapur, sem stofnaður var í
Jerúsalem á tímum krossferð-
anna. Nú voru þeir kallaðir
Mölturiddarar, og urðu íb'úum
eyjarinnar til blessunar. Hún
hafði verið blómleg á tímum
Rómverja, en síðan höfðu sigur-
vegararnir farið þar með ráni
og gripdeildum, og fólkinu hafði
fækkað mjög vegna drepsótta.
En með komu Mölturiddar-
anna hófst nýtt tímabil. Möltu-
riddararnir, sem nutu styrks
auðugra manna í Norður-
álfu, bættu ekki einungis lífs-
kjör fólksins, þcir reistu einnig
virki, sjúkrahús og skóla.
í»egar þeir misstu Trípolis í
hendur arabísku sjóræningj-
anna, gerðu þeir Möltu að aðal-
bækistöð sinni. Þeir slógu sína
eigin mynt og reistu hin ramm-
gerðu vígi St. Angelo og St.
Elm.
Þegar La Valette, sem höfuð-
borgin er kennd við, varð stór-
meistari reglunnar árið 1557,
voru Tyrkir að undirbúa árás
á eyna. Öllum var kunnugt um
það, það var aðeins óvissa um
hvenær árásin yrði gerð, og all-
ur hinn kristni heimur beið í
ofvæni.
Að morgni hins 18. maí árið
1565 var skotið af fallbyssun-
um í St. Elm og St. Angelo-
virkjunum, og var það merki
um að tyrkneski flotinn væri
að nálgast eyna. í þessum flota
voru 130 herskip og 50 birgða-
skip og innrásarliðið 40 þús-
und manns, en eyjarskeggjar
höfðu ekki nema 8000 manns
undir vopnum.
Foringi Tyrkja, Mustafa
pasja, beindi aðalárásinni að
virkinu St. Elm, sem varði inn-
siglinguna. En virkið stóðst
áhlaupið og Tyrkir neyddust
til að hefja umsát. Eftir rúm-
an mánuð varð St. Elm að gef-
ast upp, en þá voru 1300 af
verjendunum fallnir. En sigur-
inn kostaði árásarliðið 8000
manns. Þegar St. Elm var fall-
ið, varð Mustafa pasja að orði:
„Úr því að dóttirin varð svona
dýr, hvað ætli móðirin muni
þá kosta?“
Umsátin hélst frá 18. maí og
til ágústloka. I byrjun septemb-
er virtist svo sem baráttuþrek
verjendanna væri á þrotum.
En á síðustu stundu barst þeim
liðsauki. Floti frá Sikiley
stefndi til Möltu, og þegar
Tyrkir komu auga á hann létu
þeir undan síga. Þá átti Must-
afa pasja ekki eftir nema