Skinfaxi - 01.02.2017, Síða 30
30 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
M argt er hægt að gera í Hveragerði
þegar keppni er ekki í gangi á
Landsmóti UMFÍ 50+. Bærinn er
gamall og gróinn og hefur verið
þekktur um áratugi sem bær blóma og græn-
metisræktunar.
Einstakar náttúru- og útivistarperlur
Blómabærinn Hveragerði er vinsæll áningar-
staður ferðamanna og hefur lengi verið. Þar
má finna einstakar náttúru- og útivistarperl-
ur sem laða að sér gesti.
Tvær hátíðir hafa verið haldnar að sumar-
lagi í bænum og kemur ekki á óvart að þar
koma blóm við sögu. Annars vegar er það
garðyrkju- og blómasýningin Blóm í bæ í lok
MARGT AÐ SKOÐA
Í HVERAGERÐI
júní og hins vegar er bæjarhátíðin, Blómstr-
andi dagar, 17.–20. ágúst. Báðar hátíðirnar
hafa verið vel sóttar.
Sjóða egg í hver og áhugaverðar sýningar
Ferðamenn hafa úr ýmsu að velja þegar þeir
staldra við í bænum. Fjöldi fólks leggur leið
sína í verslunarmiðstöðina Sunnumörk til að
skoða sýninguna Skjálftinn 2008, en þar er
hægt að fræðast um Suðurlandsskjálftann
og afleiðingar hans.
Margir gestir heimsækja Hveragarðinn
sem er í hjarta bæjarins, sjóða egg í hver og
bragða á hverabökuðu rúgbrauði en mörg-
um þykir það mikil upplifun. Gaman er að
líta inn í Listasafn Árnesinga sem er framsæk-
ið listasafn er setur árlega upp fjölda metn-
aðarfullra sýninga. Einnig eru sýningar í bóka-
safni bæjarins í Sunnumörk.
Fjölbreyttir göngustígar
Mikið er lagt upp úr gerð göngustíga og
kunna bæði heimamenn og gestir þeirra vel
að meta þá. Skemmtilegur göngustígur ligg-
ur frá Reykjafossi upp með Varmá. Einnig
liggur heilsustígur með æfingatækjum frá
Sundlauginni í Laugaskarði með fram Reykja-
fjalli. Söguskilti eru víða um bæinn og geta
ferðalangar kynnt sér sögu bæjarins og
staldrað við á áhugaverðum stöðum.
Heilsusamleg sundlaug
Sundlaugin í Laugaskarði laðar að sér fjölda
baðgesta og síðan eru víða volgar laugar og
litrík hverasvæði í Reykjadal sem áhugafólk
um útivist ætti ekki að láta fram hjá sér fara á
ferð sinni um Hveragerði.
Sundlaugin í Laugaskarði er sælureitur
á sólskinsdögum og hefur þrekbrautin
mikið aðdráttarafl.
Blómaregnhlíf,
skreyting á Blóm í
bæ, en bærinn er
blómum skrýddur
allt sumarið.
Mannlíf á Fossflötinni
á Blómstrandi dögum.