Skinfaxi - 01.02.2017, Blaðsíða 36
36 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Sigríður Hjálmarsdóttir er boðberi
hreyfingar í Grundarfirði. Hún
segir bæjarbúa verða meðvitaðri
um gildi hreyfingar með hverju
árinu sem líður og að upplagt sé
að nýta vikuna til að kynna alla
þá möguleika sem bjóðast í
hreyfingu.
„Hreyfivikan var rosalega skemmtileg,“ segir
Sigríður Hjálmarsdóttir. Hún hefur verið boð-
beri hreyfingar í Hreyfiviku UMFÍ í Grundar-
firði síðan hún flutti í bæinn fyrir þremur
árum. Hún skráði 20 viðburði í bænum fyrir
alla aldurshópa. Þetta var álíka mikill fjöldi
og margir stóðu fyrir víða um land. Sumir við-
burðirnir féllu reyndar niður sökum veðurs
en aðra var hægt að flytja inn í hús. Á meðal
þeirra voru hjólaferð og útileikir.
Sigríður segir þátttökuna hafa verið góða.
Í Grundarfirði búi 900 manns og hafi margir
tekið þátt og margir stýrt viðburðum þótt
ekki hafi þeir endilega verið margir í hverjum
viðburði. „Bæjarbúar verða meðvitaðri um
gildi hreyfingar með hverju árinu og eldri
borgarar eru sérstaklega duglegir. En það get-
ur verið af því að Elsa Árnadóttir, sem skipu-
leggur viðburði fyrir þann aldurshóp, er ein-
stök og alltaf til í að vera með. Ástæðan fyrir
því að við getum boðið upp á svona marga
viðburði er sú að í bænum býr fólk sem vill
leggja mikið á sig og taka þátt í svona
skemmtilegu verkefni,“ segir hún en bætir
við að reynt hafi verið að hafa flesta viðburð-
ina fyrri part vikunnar fyrir skólaslit í grunn-
skólanum auk þess sem margir voru uppteknir
við fermingar sunnudaginn 4. júní og því
gert ráð fyrir færri þátttakendum.
HREYFIVIKA UMFÍ: FRÁBÆRT TÆKIFÆRI
TIL AÐ FINNA UPPÁHALDSHREYFINGUNA
Magnús sýnir ungum golfara
fyrstu handtökin á vellinum.
Sigríður tók þátt í mörgum
viðburðanna sem boðið var
upp á í Grundarfirði.
Á meðal þeirra var þriggja
klukkustunda ganga í góðu
veðri undir leiðsögn farar-
stjóra frá Ferðafélagi Snæ-
fellsness að Hrafnafossi í
Kolgrafarfirði laugardaginn
3. júní. Fimm fóru í gönguna.
„Ég vonaðist eftir fleirum,
en svona er þetta bara,“
segir hún.
Á meðal viðburðanna í Grundarfirði var kynn-
ing á golfi fyrir börn og unglinga. Golfklúbb-
urinn Vestarr stóð fyrir kynningunni undir
handleiðslu PGA-golfkennarans Magnúsar
Birgissonar. Golfklúbburinn á útbúnað fyrir
byrjendur og setti Magnús græjurnar upp á
skólalóðinni í Grundarfirði.
„Þetta var frábær vettvangur fyrir kennsluna
og mætingin rosalega góð,“ segir Sigríður og
bætir við að áhugafólk um frisbígolf hafi líka
nýtt tækifærið í Hreyfiviku UMFÍ til að kynna
sitt sport fyrir íbúum bæjarins.
Sigríður segir Hreyfiviku UMFÍ kjörið tæki-
færi til að hvetja fólk til þess að hreyfa sig og
vikan sé einmitt fyrir þau sem séu tvístígandi
og viti ekki hvað þau langi til að gera. „Ef þú
vilt fara að hreyfa þig en veist ekki hver uppá-
haldshreyfingin þín er þá er þetta kjörið tæki-
færi til að finna hana,“ segir Sigríður.
PGA-kennari kynnti golf