Skinfaxi - 01.02.2017, Síða 40
40 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
UMFÍ hefur gert samning við fyrirtækið Greiðslumiðlun
um notkun á vefgreiðslu- og skráningarkerfinu
Nóra. Búist er við því að kerfið einfaldi mótahald UMFÍ. Í samningn-
um felst að allir sambandsaðilar UMFÍ geta fengið aðgang að kerf-
inuog notað það í daglegum rekstri og fyrir viðburði tengdum
félögunum.
Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) og Greiðslumiðlun hafa gert
samning til fimm ára um afnotarétt af skráningarkerfi fyrir lands-
mót UMFÍ og leyfi aðildarfélaga UMFÍ til að nota skráningarkerfið
Nóra. Samningurinn gerir UMFÍ kleift að skrá allt móta- og við-
burðahald í framtíðinni auk þess sem sambandsaðilar UMFÍ geta
fengið aðgang að kerfinu fyrir rekstur sinn. Samkvæmt samningn-
um mun Greiðslumiðlun, móðurfélag Nóra, hanna og skrifa skrán-
ingarkerfi fyrir landsmót UMFÍ og önnur mót og viðburði UMFÍ
sem byggja á tengdum kerfum. Stefnt er á að nota kerfið í fyrsta
sinn á Landsmóti UMFÍ 50+ í Hveragerði.
Margir þekkja greiðslumiðlunarkerfi Nóra en mörg ungmenna-
og íþróttafélög nota það ásamt skólum, sveitarfélögum og félaga-
samtökum. Kerfið auðveldar utanumhald um uppsetningu móta
og viðburða, skráningu þátttakenda á mót og aðra viðburði, greiðsl-
ur, uppgjör og býður upp á marga aðra möguleika. Stjórnendur
félaga þekkja kerfið líka en yfir 130 íþróttafélög nota það. Það sem
af er þessu ári eru notendur kerfisins yfir 60.000 talsins.
UMFÍ notar
greiðslu-
miðlunar-
kerfið Nóra
Forsvarsmenn UMFÍ og Greiðslumiðlunar þegar samningur var undirritaður um afnotaréttinn í byrjun sumars.
Velja hvaða félag er keppt fyrir, svara val-
spurningum um nafn liðs og kennitölur,
annar keppandi í grein, velja greiðslumáta,
samþykkja skilmála og smella á „Áfram“.
Skráningu er ekki lokið fyrr en búið að
smella á „skrá greiðslu“ og efst á síðu „yfirlit“
er komið. Síðan kemur „kvittun send á
netfang“, þetta á við hvort heldur greiðsla er
ákveðin upphæð eða 0 krónur.
Smella á „Skrá inn“.
Hægt að nota Íslykill eða Rafræn skilríki
Samþykkja skilmála og smella á „Áfram“.
Fylla út netföng og símanúmer, þetta er not-
að til að senda tilkynningar um skráningar
og breytingar.
Einnig fá þátttakendur aðgang að „appi“,
snjallforriti í síma þeirra sem nýtast fyrir upp-
lýsingar um greinar og mótstjórar geta sent
skilaboð á þátttakendur.
Smella á „Skráning í boði“ – þá kemur listi yfir
hvaða greinar eru í boði miðað við kyn og aldur.
Velja grein.
Hvernig á að nota Nóra?
Hér eru leiðbeiningar: