Skinfaxi - 01.03.2017, Page 3
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 3
Engjavegi 6, 104 Reykjavík
Sími 580 2500 | www.lotto.is
Íslensk getspá er í eigu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands,
Öryrkjabandalagsins og Ungmennafélags Íslands.
ÍSLENSK
GETSPÁ
ÞAÐ ER ALDREI AÐ VITA
Í HVAÐA ÍÞRÓTT BARNIÐ
ÞITT BLÓMSTRAR.
ÞESS VEGNA STYÐJUM
VIÐ ÞÆR ALLAR.
Júlíus Sigurbjörnsson
segir gott að vera í
gönguhópi sem hreyfi
sig reglulega.
H ópur fyrrverandi kennara og mæður
fyrrverandi nemenda við Hvassaleitis-
skóla í Reykjavík hefur hist reglulega
í samfleytt 35 ár og stundað leikfimi,
göngur, skokk og aðra útivist. Allar konurnar í
hópnum eru öðru hvorum megin við sjötugt.
Júlíus Sigurbjörnsson, maður einnar konunn-
ar í hópnum, segir það afar ánægjulegt að
tengjast svona skemmtilegum kvennahópi
sem hreyfir sig reglulega.
„Við karlarnir fáum að slást í hópinn þegar
meira stendur til eins og t.d. göngu- og menn-
ingarferðir á erlendri grundu,“ segir hann.
Svo skemmtilega vill til að nemendur við
Hvassaleitisskóla settu einmitt Hreyfiviku
UMFÍ vorið 2016.
Gönguhópurinn hreyfir sig jafnt innanlands
sem utan. Vikulega er gengið um nærum-
hverfi Hvassaleitisskóla. Annað hvert ár er
svo farið í lengri göngur og menningarferðir
á Íslandi en hitt árið erlendis. Í Hreyfiviku
UMFÍ, í júní sl., var hópurinn á átta daga ferða-
lagi um Írland með íslenskum fararstjóra og
buff merkt Hreyfivikunni á höfði.
Júlíus segir þetta ekki hafa verið beint við-
burð tengdan Hreyfivikunni. „Ég sá þessa
strokka áður en við fórum út og leist vel á þá,
vildi auðkenna hópinn. Ég hafði því sam-
band við þjónustumiðstöð UMFÍ og fékk um
20 stykki. Það var mjög gott að hafa þá bæði
á höfði og um hálsinn,“ segir Júlíus og leggur
áherslu á að hann kjósi frekar að nota orðið
„strokkur“ yfir buffin.
Fondurnar hafa stundað leikfimi
og gengið saman í 35 ár
Konurnar í gönguhópnum komu fyrst saman
í íþróttahúsinu í Hvassaleitisskóla árið 1982.
Íþróttahúsið var nýlegt á þessum tíma. Þar
æfðu þær leikfimi eftir kerfi bandarísku
leikkonunnar Jane Fonda sem var gríðarlega
vinsælt um þetta leyti.
Eins og sést í umfjöllun DV vöruðu læknar
engu að síður við æfingunum. Rifjað er upp
að bandarískir læknar hafi sagt þær stór-
hættulegar og slysadeildir fullar af „slösuðum
Fonda-fíklum“. Karitas Karlsdóttir lýsir því í
samtali við DV að henni hafi ekki orðið meint
af æfingunum. Kerfið hafi byggst að miklu
leyti á teygjum og góðum æfingum fyrir alla
vöðvahópa og það sé gott fyrir líkamann
sé hófs gætt í æfingum.
Hópurinn stillti sér upp með buffin á höfði fyrir framan Woodbridge-hótelið, eitt elsta hótel Írlands, en það
hefur verið í samfelldum rekstri síðan árið 1906.
Aðalstyrktaraðilar Unglingalandsmóts UMFÍ á Egilsstöðum 2017