Skinfaxi - 01.03.2017, Page 4
4 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Unglingalandsmóti UMFÍ var úthlutað til
ÚÍA fyrir um tveimur árum. Reyndar
hófst undirbúningurinn fyrr, mótinu
var ekki úthlutað austur í fyrstu atrennu.
Áður en við sóttum um að halda mótið hafði
farið fram ákveðin vinna.
En hvers vegna sækjumst við svo eftir að
halda Unglingalandsmót? Hvað fáum við út
úr því? Að baki slíkum viðburði eru þúsund-
ir vinnustunda hjá mörg hundruð sjálfboða-
liðum. Fjárhagslegur ávinningur er takmark-
aður.
Það gerir okkur á félagssvæðinu stolt að
halda Unglingalandsmót. Það gefur okkur
tækifæri til að bjóða fólki í heimsókn og sýna
hvað við höfum fram að færa. Það nær ekki
bara til íþróttanna heldur þjónustunnar á
svæðinu, náttúrunnar og samfélagsins. Það
skiptir líka máli fyrir okkur, sem yfirleitt þurf-
um langt að sækja mót, að þurfa ekki alltaf
að vera á faraldsfæti.
Mót sem þessi skapa þekkingu heima í
héraði í að halda utan um stór íþróttamót.
Þau kveikja líka áhuga. Árið áður en UÍA hélt
Unglingalandsmót í fyrsta sinn, árið 2011,
mætti sambandið með 20 manna hóp í
Borgarnes. Á Egilsstöðum voru keppendur
UÍA tæplega 200. Sú tala hefur vissulega ekki
haldist en UÍA hefur undanfarin ár átt stærsta
hópinn á Unglingalandsmótum. Austfirðing-
ar kynntust mótinu og héldu tryggð við það
í kjölfarið því að þetta var svo frábær
skemmtun.
Af hverju skiptir Unglingalandsmót
UMFÍ Austurland máli?
Stærsti ávinningurinn af mótshaldinu er
kannski sá að Unglingalandsmót UMFÍ gefur
héraðssambandinu tilgang. Það gefur því og
félagsmönnum ögrandi verkefni. Frá skrif-
stofu UMFÍ fylgir líka ærinn stuðningur og
kennsla sem verður að reynslu og þekkingu
til frambúðar í heimabyggð.
UMFÍ stendur undir einkunnarorðunum
„Ræktun lands og lýðs“ með fjölbreyttum
verkefnum sem dreifast út um landið. Ungl-
ingalandsmótið er þar ekki eina dæmið.
Landsmót 50+, ráðstefnan Ungt fólk og lýð-
ræði, Landsmótið, þing sambandsins, vor-
fundir og formannafundir eru allt dæmi um
stór verkefni á vegum sambandsins sem ferð-
ast reglulega um landið. Með því að skiptast
reglulega á heimsóknum kynnumst við
hvert öðru og öðlumst skilning á mismun-
andi áskorunum og lausnum.
Á þennan hátt skipta Unglingalandsmót
UMFÍ ekki bara UÍA máli heldur eru þau líka
mikilvæg fyrir önnur héraðssambönd. Þau
skipta þjóðina máli. Vegna þess að stefna
UMFÍ skiptir miklu máli.
Gunnar Gunnarsson
stjórnarmaður í UMFÍ og formaður UÍA
Leiðari Skinfaxa:
Efnisyfirlit
Sigurður Arnar:
Gaman og gott
að vinna fyrir UÍA 37
Ráð fyrir foreldra:
Vertu fyrirmynd
á vellinum 38
Guðríður Aadnegard:
Vill sjá yngri
keppendur 39
Ólafur Snorri:
Fjölskyldan
hreyfir sig saman 14
3 Af hverju skiptir Unglingalands-
mót UMFÍ Austurland máli?
6 Fögnuðu 100 árum með stæl.
8 Hollustan í fyrirrúmi hjá Blikum.
10 Ungmennaráð til fyrirmyndar.
10 Leiðarvísir íþróttafélaganna.
Það voru 565 sunnlenskir bændur sem stofnuðu
Sláturfélag Suðurlands 28. janúar 1907 við gömlu
hengibrúna yfir Þjórsá. Stofnun félagsins var eitt
þeirra framfaraskrefa sem markað hafa tímamót fyrir
matvælaframleiðslu í landinu og um leið neytendur.
Nú 110 árum síðar er félagið enn í eigu bænda sem
daglega leggja grunninn að úrvals matvælavinnslu
félagsins í sveitunum um allt Suður- og Vesturland.
Íslenska sveitin og SS fyrir þig.
565 bændur stofnuðu
Sláturfélag Suðurlands
PI
PA
R\
TB
W
A
12 Stjórnendur rýna í lýðheilsu-
vísana.
16 Myndir frá Landsmóti UMFÍ 50+
í Hveragerði.
19 Já og amen í Japan.
20 Nýjar greinar á landsmóti DGI.
22 Samvinna og vinskapur UMFÍ og
DGI.
24 Eitthvað sem allir þurfa að kynnast.
26 Mótahald UÍA og UMFÍ.
28 Viðtal við Björn bæjarstjóra.
31 Áhugaverðir staðir á Héraði.
34 Nike og Adidas áberandi á
æfingum hjá íþróttakrökkum.
32 Formaðurinn er alltaf að læra.
36 Keppnisgreinar á Egilsstöðum.
37 Eldheitir fljúgandi Danir.
41 Vaxtarverkir fylgja stækkun félags.
Birna Varðardóttir:
Taktu safa, flatköku og ávöxt
með á mótin 8–9
Þetta þarftu að vita um
Unglingalandsmót UMFÍ
á Egilsstöðum 24–38