Skinfaxi - 01.03.2017, Side 6
6 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 3. tbl. 2017
Skinfaxi er tímarit Ungmennafélags Íslands.
Það hefur komið út samfleytt síðan árið 1909.
Blaðið kemur út ársfjórðungslega. Tímaritið
dregur nafn sitt af hestinum fljúgandi er
dró vagninn sem goðsagnaveran Dagur ók
um himinhvolfið í norrænum sagnaheimi.
Ritstjóri: Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
Ábyrgðarmaður: Haukur Valtýsson,
formaður UMFÍ
Ljósmyndir: Haraldur Jónasson, Gunnar
Gunnarsson, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson,
Hafsteinn Snær Þorsteinsson, Sabína Steinunn
Halldórsdóttir, Lars Holm, Søren Malmose, o.fl.
Umbrot og hönnun: Indígó
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja
Prófarkalestur: Helgi Magnússon
Auglýsingar: Miðlun ehf. o.fl.
Ritnefnd:
Gunnar Gunnarsson formaður, Örn Guðnason,
Birgir Örn Sigurðsson, Jón Páll Hreinsson og
Vigdís Diljá Óskarsdóttir.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ, Sigtúni 42,
105 Reykjavík, sími: 568-2929
umfi@umfi.is – www.umfi.is
Starfsfólk UMFÍ:
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, kynningar-
fulltrúi og ritstjóri Skinfaxa
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi og
framkvæmdastjóri Landsmóta
(með aðsetur á Sauðárkróki)
Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi
og verkefnastjóri
Ragnheiður Sigurðardóttir, landsfulltrúi og
verkefnastjóri
Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari
Starfsfólk UMFÍ á Laugum í Sælingsdal
Anna Margrét Tómasdóttir, forstöðukona
Jörgen Nilsson, tómstundaleiðbeinandi
Gunnar Már Gunnarsson, tómstundaleið-
beinandi og starfsmaður Sælingsdalslaugar
Hrönn Jónsdóttir, tómstundaleiðbeinandi
Marta Sigurðardóttir, matráður
Vladimir Babic, tómstundaleiðbeinandi
Céline Castel, matráður
Tomáš Hub, tómstundaleiðbeinandi
Stjórn UMFÍ:
Haukur Valtýsson, formaður
Örn Guðnason, varaformaður
Hrönn Jónsdóttir, ritari
Helga Jóhannesdóttir, gjaldkeri
Ragnheiður Högnadóttir, meðstjórnandi
Gunnar Gunnarsson, meðstjórnandi
Björn Grétar Baldursson, meðstjórnandi
Varastjórn UMFÍ:
Þorgeir Örn Tryggvason, Kristinn Óskar
Grétuson, Sigurður Óskar Jónsson og
Guðmundur Sigurbergsson.
Forsíðumynd:
Myndina á forsíðu Skinfaxa tók Hafsteinn
Snær Þorsteinsson af keppni í motocrossi
á Unglingalandsmóti UMFÍ í Borgarnesi 2016.
Ungmennafélag Íslands, skammstafað UMFÍ,
er landssamband ungmennafélaga á Íslandi.
UMFÍ var stofnað á Þingvöllum 2. ágúst 1907.
Sambandsaðilar UMFÍ er 29 talsins. Í hreyfingunni
eru í dag um 160.000 félagar í rúmlega 300 ung-
menna- og íþróttafélögum um land allt.
Fögnuðu 100 ára afmæli með stæl
Ungmennafélag Borgarfjarðar (UMFB) á
Borgarfirði eystri fagnaði 100 ára afmæli nú í
júlí. Haldið var upp á stórafmælið með vegleg-
um hætti. Framleiddar voru húfur og glös
með merki félagsins, blásið til Dyrfjallahlaups
og ýmsar aðrar uppákomur í nafni félagsins.
Þar á meðal var öllum í bænum boðið frítt
á tónleika þeirra Jónasar Sigurðarsonar og
Ómars Guðjónssonar í Fjarðarborg.
Aðalfögnuðurinn var laugardaginn 15. júlí.
Þá var haldið í skrúðgöngu að íþróttavelli
bæjarins og var þar heilmikil leikjadagskrá.
Um kvöldið bauð UMFB í afmælisveislu í
Fjarðarborg. Þar voru ræður fluttar, stiklað á
stóru í sögu UMFB og dansað inn í nóttina
með tónlistarmanninn og UMFB-manninn
Magna í fararbroddi.
Óttar Már Kárason, formaður UMFB, segir
afmælisveisluna hafa tekist afar vel. Á milli
140–150 manns hafi mætt í teitið. „Það var
ánægjulegt,“ segir hann og bendir á að til
samanburðar búi í kringum 100 manns á
Borgarfirði eystri.
Óttar segir ungmennafélagið hafa verið
öflugt á árum áður. „Íþróttastarfið er ekki mik-
ið enda ekki mikið af krökkum hér lengur. En
við erum samt montin yfir því að taka þátt í
utandeildarkeppnum í knattspyrnu og erum
með æfingar á sumrin. Það er meira um við-
burði og skemmtun og reglulega tónleika en
íþróttir,“ segir hann og telur félagið standa
fyrir um tíu viðburðum á ári.
Flestir viðburðir á vegum Ungmenna-
félags Borgarfjarðar, sem ekki eru á vellinum,
fara fram í Fjarðarborg. Það voru einmitt sjálf-
boðaliðar á vegum UMFB sem reistu húsið
á sínum tíma og það er menningarmiðstöð
bæjarins, þar fara fram tónleikar í aðdrag-
anda Bræðslunnar og margir fleiri tónlistar-
menn troða þar upp allt árið um kring. Ung-
mennafélagið átti húsið lengi en það er nú í
eigu sveitarfélagsins.
Formaður
í báða liði
Óttar Már Kára-
son er nátengd-
ur UMFB.
Hann er vert-
inn í Fjarðar-
borg og afar
hans, bæði í
föðurlegg og
móðurlegg,
voru formenn
UMFB. Af þeim
sökum hefur
hann réttilega
sagst vera
fæddur for-
maður.