Skinfaxi - 01.03.2017, Síða 9
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 9
Jafnframt eru auglýsingar frá gosdrykkja- og
skyndibitaframleiðendum oft áberandi bæði
á keppnisvöllum og í æfingaaðstöðu. Þá kom
sterkt fram í rannsókn okkar hve sterkar fyrir-
myndir þjálfarar eru og töldu foreldrar áhrifa-
ríkt að ráð varðandi næringu og heilbrigt líf-
erni kæmu frá þeim. Fram undan er frekari
úrvinnsla í formi greinaskrifa og kynninga,
meðal annars á Menntakviku sem er ráð-
stefna sem haldin verður á menntavísinda-
sviði Háskóla Íslands í byrjun október og er
opin öllum.“
Hvert verður framhaldið á þessu?
„Stefnt er að því að halda áfram með verk-
efnið á haustmánuðum í samstarfi við íþrótta-
félagið, með markvissum heilsueflandi
aðgerðum auk þess sem vonandi verður
framhald á rannsóknum af þessu tagi.“
Hverju myndir þú ráðleggja ungu fólki að
huga að varðandi næringu?
„Það er afar mikilvægt að ungt íþróttafólk
borði fjölbreytt og næringarríkt fæði sem upp-
fyllir þarfir þess fyrir orku- og næringarefni.
Staðgóður morgunverður, hádegisverður og
heimilismatur að kvöldi, auk millibita yfir dag-
inn og í tengslum við æfingar, er til að mynda
ágætis viðmið. Flestir þurfa að nærast 1–2
klukkustundum fyrir og eftir æfingar því að
það er vont að vera tómur í átökum en að
sama skapi ekki gott að vera of saddur.
Þegar æfingar eru eftir skóla vill stundum
gleymast að fá sér bita milli hádegis og kvöld-
verðar. Það er því gott að venja sig á að stinga
til dæmis ávöxtum, smurðri brauðsneið eða
jógúrt í töskuna og snæða í kringum æfingar.
Þegar best lætur er neyslu á sykurríkum
vörum og mikið unnum vörum stillt í hóf
enda ekki æskilegt að slík fæða taki mikið
pláss frá hollri og næringarríkri fæðu. Á með-
an áreynslan er ekki þeim mun meiri eða
lengri er vatn svo alltaf besti svaladrykkurinn.
Fullkomið nesti á íþróttamót?
„Dagarnir á slíkum mótum eru oft langir og
krefjandi. Þar kemur sér því vel að vera með
gott nesti. Dæmi um flotta kosti eru ávextir,
flatkökur, samlokur með góðu áleggi, vefjur,
núðlusalöt, safar, mjólkurvörur og heimagert
snarl. Fyrir æfingar og keppni er um að gera
að fá sér léttan bita 1½ –2 klst. fyrir keppni
en að íþróttaiðkun lokinni skyldi reyna að fá
góða blöndu af kolvetnum og próteinum.
Dæmi um snarl, sem ég gríp stundum til fljót-
lega eftir æfingu, er flatkaka, smurð með
hnetusmjöri og bananabitum, og mjólkur-
glas.“
Birna Varðardóttir
næringarfræðingur
Símamót Breiðabliks er með
stærstu knattspyrnumótum
landsins. Mótið þetta árið fór
fram dagana 13.–16. júlí og voru
um 2.000 stelpur skráðar til leiks
frá 38 félögum. Um 300 lið
spiluðu þar næstum 1.200 leiki.
Á mótinu vakti athygli hversu góða og
heilnæma næringu keppendum og gest-
um var boðið upp á í Símamótssjoppunni.
Helga Jónsdóttir er móðir keppanda á
mótinu og situr í foreldraráði Breiðabliks.
Hún segir að nokkur ár séu liðin frá því að
ákveðið var að bjóða upp á heilnæmt
snarl í stað súkkulaðis.
„Breiðablik byrjaði með Landsbanka-
mót fyrir 5. flokk fyrir sex árum og þar var
lagt upp með að hafa hollustu að leiðar-
ljósi, enga sjoppu heldur boozt og ávexti.
Fyrstu árin gengum við reyndar svo langt
að allir goskælar voru fjarlægðir og fólki
með gosflöskur var vísað út. Þetta hefur
þróast í að við bjóðum alltaf upp á þenn-
an valkost. Við höfum meðal annars boðið
upp á kjötsúpu á heimaleikjum ef kalt er í
veðri,“ segir hún og bætir við að keppend-
ur fái hefðbundinn mat, kjötbollur og
lasagna en ávallt er boðið upp á ávexti
með. Lagt upp úr því að hafa morgunmatinn
fjölbreyttan. Það er mikilvægt enda voru 670
stelpur í mat.
„Hugmyndin kviknaði fyrir um sjö árum
þegar ég var ásamt öðru foreldri heila helgi
á fótboltamóti. Þar var aðeins boðið upp á
nammi og sæta drykki. Allir voru komnir
með í magann af því. Við settumst niður með
þjálfara og stjórn og úr varð Landsbankamót-
ið þar sem boðið var upp á hollustu. Hollust-
an hefur síðan breiðst áfram og var nú í boði
á Símamótinu,“ segir Helga.
En hvernig taka keppendur þessu?
„Mjög vel. Hjá Breiðabliki er þetta fram-
boð orðið svo eðlilegt að við tökum ekki
eftir því að það er öðruvísi en hjá öðrum.
Allir vilja hafa hollt nesti og ef það er í boði
velur fólk það með sætindunum,“ segir
Helga og tekur fram að ef vatn sé í boði
klárist það fyrr en gosdrykkirnir. „Það þarf
alltaf að hafa meira fyrir hollustunni. Hjá
Breiðabliki er einvala lið foreldra sem
vilja leggja aðeins meira á sig til að hafa
þennan valkost.“
Hollustan í fyrirrúmi hjá Blikum