Skinfaxi - 01.03.2017, Side 10
10 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Ungmennaráð Árborgar
er öðrum fyrirmynd
U ngmennaráð Árborgar hefur vaxið
mikið síðastliðin fimm ár. Gunnar
Eysteinn Sigurbjörnsson, tómstunda-
og forvarnafulltrúi Árborgar, segir
mikilvægt að nefndarmenn fái krefjandi
verkefni og viti að á þá sé hlustað.
Hvernig á að virkja ungt fólk?
Svarið við því veit Gunnar Eysteinn. Hann
tók við starfi tómstunda- og forvarnafulltrúa
Árborgar árið 2012. Um helmingur starfsins
átti að vera fyrir ungmennaráð Árborgar. En
þegar Gunnar kom til starfa var starfsemi
ráðsins lítil.
„Ungmennaráðið fundaði einu sinni í mán-
uði, skipulagði einn opinn fund á ári og svo
var setið á einum bæjarstjórnarfundi. Damp-
urinn datt úr starfinu á milli funda og því var
krafturinn ekki mikill. Það þurfti að ýta við
þeim sem sátu í ráðinu og fá þau til að funda,“
segir Gunnar og bætir við að gripið var til
nokkurra gagnlegra ráða til að tendra neista
nefndarmanna og viðhalda honum. Fyrsta
ráðið var að fjölga fundum. Eftir það fór bolt-
inn að rúlla.
„Við ákváðum að hittast tvisvar í mánuði
og skipuleggja eitt stórt verkefni á ári. Um
leið og fundunum fjölgaði og verkefnið
komst á dagskrá fór boltinn að rúlla. Nú er
þetta orðin heilmikil vinna enda ungmenna-
ráðið orðið mjög sjálfstætt og farið að sækj-
ast eftir kröftum þess og álitum,“ segir Gunnar.
Hann áréttar samt að þótt ráðið sé sjálfstætt
leggi hann mikið á sig til að viðhalda ráðinu
og sinna störfum fyrir það, móta dagskrá fyrir
ráðstefnur og sinna annarri umsýslu. Ung-
mennaráð Árborgar á nú fulltrúa í ungmenna-
ráði Menntamálastofnunar, samráðshópi í
menntamálaráðuneyti, heldur fundi með
öðrum ungmennaráðum og fulltrúar ráðsins
hjálpa öðrum til að koma sér af stað og hjálpa
líka ungu fólki til að hafa áhrif.
Þetta gerði Ungmennaráð Árborgar
• Tveir fundir í mánuði.
• Árleg ráðstefna: Tveggja daga ráðstefna fyrir ungt fólk á Suðurlandi haldin í lok september 2016
á Hótel Hvolsvelli. Á ráðstefnuna komu 120–130 ungmenni úr fjórðungnum, sveitarstjórnarfólk,
þingmenn og forseti Íslands. Fyrri dagurinn var vinnudagur fyrir ungt fólk, málstofur og erindi.
Á seinni deginum komu gestir, þar á meðal forseti Íslands.
• Markmið ráðstefnunnar var að virkja og styðja við ungmennaráð á Suðurlandi, láta sveitarstjórnir
taka eftir starfi ungmenna, hvetja sveitarfélög til að stofna ungmennaráð,
• Þriggja landa verkefni sem Evrópa unga fólksins hefur styrkt. Ungmennin fóru til Kanaríeyja og
Svíþjóðar. 50 manns var boðið hingað í vikudvöl á ráðstefnu um innflytjendamál og heilbrigð samfélög.
• Eftir því sem verkefnin stækka fjölgar þeim sem taka eftir störfum ungmennaráðsins.
• Eftir ráðstefnuna voru stofnuð ungmennaráð í Bláskógabyggð, Hveragerði, Flóahreppi og
Skaftárhreppi.
Gunnar og ungmenni úr ung-
mennaráði Árborgar sóttu
Ungmennaráðstefnu UMFÍ
sem haldin var í Miðfirði í maí.
Árangur ungmennaráðsins
vakti mikla athygli þar.
Leiðarvísir
íþróttafélaganna
Það er að mörgu að huga þegar kemur
að því að undirbúa og skipuleggja verk-
efni eða viðburði á vegum ungmenna-
félaga. Hér er að finna nokkur atriði sem
gott er að hafa á hreinu þegar verkefni
er undirbúið.
• Er verkefnið afmarkað og skýrt?
• Hefur verkefnið skýr markmið?
• Er kostnaðaráætlun tilbúin?
• Hver er markhópur verkefnisins?
• Hver er líftími verkefnisins?
• Er ljóst hver á að gera hvað?
• Hver er fjöldi þátttakenda?
• Hvernig á að tryggja sýnileika
verkefnisins?
• Hvernig á að meta árangur
verkefnisins?