Skinfaxi - 01.03.2017, Síða 13
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 13
Sigríður Lára
Gunnlaugsdóttir
framkvæmdastjóri Héraðssambands
Vestfjarða (HSV).
„Við höfum skoðað lýðheilsuvísana nokk-
uð vel. Báðir starfsmenn HSV, formaður
og varaformaður, tóku þátt í vinnustofu
um heilsueflandi samfélag fyrir sveitar-
félög á Vestfjörðum sem haldin var á veg-
um landlæknis í maí síðastliðnum. Þar
var farið vel yfir heilsuvísa fyrir Vestfirði.“
Hvernig fannst ykkur niðurstaðan
um hreyfingu, lýðheilsu, andlegt og
líkamlegt ástand?
„Það voru nokkur dæmi um lýðheilsuvísa
þar sem tölur fyrir Vestfirði voru frábrugðn-
ar tölum fyrir landið í heild. Ánægjulegt
var að sjá að fleiri fullorðnir nota virkan
ferðamáta í vinnu/skóla á Vestfjörðum og
að hamingja fullorðinna mælist yfir lands-
meðaltali. Það helst í hendur við að þung-
lyndislyfjanotkun mælist hér lægst á
landinu. Þó er rétt að hafa í huga að það
getur einnig stafað af vangreiningu innan heilbrigðiskerfis en erfið-
ara er að nálgast sérfræðiþjónustu á geðsviði á Vestfjörðum en víða
annars staðar á landinu. Reyndar virðist önnur lyfjagjöf einnig
minni, svo sem ávísun á blóðfitulyf og sýklalyfjanotkun barna yngri
en fimm ára. Erfitt er að meta hvort það bendi til að heilsufar sé
betra á Vestfjörðum eða hvort um sé að ræða áherslur í heilbrigðis-
þjónustunni vestra eða skort á sérfræðiþjónustu. Neysla ávaxta og
grænmetis er minni á Vestjörðum og fleiri fullorðnir reykja en annars
staðar. Þessir tveir þættir eru mikilvægir í almennu heilbrigði og
mikilvægt að bæta niðurstöðu þar.“ Ísafjarðarbær hefur áhuga á að
vinna í meira mæli eftir stefnu heilsueflandi samfélags og er HSV
reiðubúið til að koma með í þá vinnu, að sögn Sigríðar Láru.
En hvað þarf að gera?
„Fyrst og fremst þarf að greina orsakir á bak við þá þætti sem eru
neikvæðari á Vestfjörðum en annars staðar. Er minni neysla á ávöxt-
um og grænmeti hér vestra vegna þess að gæði þessara vara séu
verri í verslunum hér en á fjölmennari stöðum? Eru reykingar full-
orðinna algengari hér vegna hlutfallslegra fleiri nýbúa en annars
staðar á landinu? Við þurfum að auka fræðslu um skaðsemi tóbaks
á fleiri tungumálum og höfða til breiðari hóps en líka að bæta sér-
fræðiþjónustu í heilbrigðiskerfinu á Vestfjörðum og auðvelda að-
gengi að þjónustunni. En við þurfum líka að skoða þá þætti sem
eru á bak við jákvæðu útkomuna og meta hvort nýta megi þær
upplýsingar til að vinna í þeim neikvæðu.“
Aðildarfélög HSV voru á síðasta ári 17 tals-
ins. Innan þeirra vébanda voru 4.516 félags-
menn, þar af 1.642 virkir iðkendur. Af þeim
voru 917 iðkendur yngri en 18 ára.