Skinfaxi - 01.03.2017, Page 14
14 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Boðið hefur verið upp á opna
fjölskyldutíma á laugardögum
í Mosfellsbæ frá árinu 2015.
Um leið og heilar fjölskyldur fá
tækifæri til að stunda þar hreyf-
ingu saman eykst nýting íþrótta-
húsanna og íþróttafélögin fá tæki-
færi til að kynna starfsemi sína.
Ólafur lýsir fjölskyldutímunum.
Vorið 2015 kom á borð íþrótta- og tómstunda-
nefndar Mosfellsbæjar hugmynd um fjöl-
skyldutíma í íþróttamannvirkjum bæjarins.
Nefndin og bæjarstjórn Mosfellsbæjar sam-
þykktu hugmyndina sama haust. Verkefnið
gaf til kynna að spennandi væri að fara af
stað með það og sjá hvernig bæjarbúar
myndu taka á móti því.
Markmiðið var að kynna til sögunnar nýjan
hreyfimöguleika til að bæta lýðheilsu bæjar-
búa sem myndi miða að því að bjóða fjölskyld-
um að koma í íþróttahúsið að Varmá á laugar-
dagsmorgnum og stunda hreyfingu og
skemmta sér saman undir handleiðslu leið-
beinanda. Þar sem Mosfellsbær hefur tekið
að sér forystu í að vera heilsueflandi samfélag
í samvinnu með heilsuklasanum Heilsuvin og
Embætti landlæknis var við hæfi að fara af
stað með verkefni sem sneri að hreyfingu og
hvetja til samverustunda fjölskyldunnar.
Ólafur Snorri skrifar:
Hollt og gott að hreyfa sig
Rannsóknir hafa margoft sýnt fram á jákvæð
áhrif hreyfingar á líkamlega og andlega heilsu.
Þegar fjölskyldan sækir sér afþreyingu saman
getur það leitt til ánægjulegrar upplifunar af
samverunni og styrkt fjölskylduböndin.
Aðstaða til íþrótta og útivistar í Mosfellsbæ
er með fremsta móti og er áhugi fyrir útivist
að aukast með hverju árinu í bænum, hvort
sem það eru hjólreiðar, göngur eða hlaup.
Aðstaða fyrir hestamenn er líka til fyrirmynd-
ar og íþróttamannvirkin í bænum eru glæsileg.
Með fjölskyldutímanum var verið að bæta í
flóruna og fleiri möguleikar á hreyfiformi
opnuðust.
Tugir gesta í hverjum tíma
Með sanni má segja að bæjarbúar hafi tekið
vel í fjölskyldutímana í þau tvö ár sem verkefn-
ið hefur verið í gangi. Að jafnaði eru 50–80
gestir í tímunum sem hafa verið undir hand-
leiðslu Þorbjargar Sólbjartsdóttur íþrótta-
fræðings og Árna Freys Einarssonar.
Tímarnir hafa aðallega farið fram í sal
íþróttahússins að Varmá. Þegar ýmis íþrótta-
mót hafa verið haldin um helgar hafa tímarn-
ir verið fluttir í aðra sali, til að mynda í Lága-
fellið en líka hefur verið boðið upp á að fjöl-
skyldan færi í staðinn á skíði. Þátttakendur
fá frítt í sund eftir tímana og geta því notið
samverunnar lengur.
Kynning fyrir íþróttafélög
Þessar fjölskyldustundir hafa skapað tækifæri
fyrir íþróttafélögin í bænum til að kynna starf-
semi sína. Sumir þeirra sem mæta í tímana
hafa líka sjaldan stigið fæti inn í íþróttamið-
stöðvar. Þar opnast augu þeirra enda ljóst
hvaða möguleikar eru í boði í miðstöðvunum.
Þar sem íþróttaskóli barna á aldrinum 3–5
ára er á svipuðum tíma og fjölskyldutíminn
miðast aldur barnanna þá við grunnskóla-
aldur þar sem fjölskyldutíminn er ekki hugs-
aður sem samkeppni við félög bæjarins
heldur frekar sem samstarfsaðili og vettvang-
ur til þess að kynna sér aðstæður íþróttafélag-
anna.
Ég hvet önnur sveitarfélög til að fylgja
fordæmi Mosfellsbæjar í að bjóða upp á fjöl-
skyldutíma þar sem góðar minningar hafa
fylgt fólki eftir tímann og þetta er frábær vett-
vangur fyrir fjölskyldur og vini til að eignast
góðar stundir saman.
Fjölskyldutíminn mun hefja þriðja starfsár
sitt nú í haust í Mosfellsbæ.
Hreyfing og samvera fyrir
alla fjölskylduna í Mosfellsbæ
Fjölskyldutímarnir í Mosfellsbæ eru til fyrirmyndar
enda gefst þar íþróttafélögum frábært tækifæri
til að kynna starfsemi sína.
Hvað er í boði fyrir fjölskyldur í þínu sveitarfélagi?
Ólafur Snorri Rafns-
son er íþrótta-
kennari í Varmár-
skóla í Mosfellsbæ
og formaður
íþrótta- og tóm-
stundarnefndar
2015–2016.
Takið eftir mönnunum í hvítu skyrtunum
með svörtu bindin. Þetta eru helstu
glímudómarar landsins. Oftast eru þeir
sex. Glímudómararnir hafa dæmt á Ungl-
ingalandsmótum UMFÍ í áraraðir. Fyrir
hverja keppni í glímu setjast þeir niður
og taka nokkra umganga í bridds. Þeir
spila líka á öðrum tímum þegar þeir
dæma í glímu. Samtals setjast þeir niður
með spilin 5–10 sinnum á ári og hafa
gert það í meira en 30 ár. Hörður Gunn-
arsson er elstur, tæplega áttræður.
Mennirnir í hvítu skyrtunum
Þetta eru dómararnir
• Hörður Gunnarsson
• Þorvaldur Þorsteinsson
• Garðar Erlendsson
• Rögnvaldur Ólafsson
• Kjartan Lárusson
• Sigurjón Leifsson