Skinfaxi - 01.03.2017, Page 16
16 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
T æplega 600 keppendur mættu á Landsmót UMFÍ 50+ sem haldið var í Hvera-
gerði um Jónsmessuhelgina í júní sl. Ætla má að rúmlega 1.000 utanbæjarmenn
hafi verið í bænum í tengslum við mótið sem fór afskaplega vel fram í góðu
veðri. Keppt var í fjölda greina, allt frá boccia, línudansi, þríþraut, utanvega-
hlaupum, badmintoni og pútti að stígvélakasti.
Landsmót UMFÍ 50+ hefur verið haldið árlega frá árinu 2011. Það er fyrir fólk sem verður
fimmtugt á árinu og eldri þátttakendur. Mótið er blanda af íþróttakeppni og annarri
keppni, hreyfingu og því að fá fólk á besta aldri til að hafa gaman saman.
Athygli vakti hversu stór hópur fólks á mótinu stóð á fimmtugu og rétt yfir fimmtugu.
Landsmót UMFÍ 50+ fer fram samhliða Landsmóti UMFÍ á næsta ári.
Mótið verður haldið á Sauðárkróki dagana 13.–15. júlí 2018.