Skinfaxi - 01.03.2017, Blaðsíða 19
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 19
Segja bara já og amen
og ekkert væl
Handboltakapparnir Einar Sverris-
son og Teitur Örn Einarsson frá Sel-
fossi, Aron Dagur Pálsson frá Stjörn-
unni og Daníel Ingason og Grétar
Ari Guðjónsson frá Haukum fóru í
skemmtilega ævintýraferð til Japans
í vor í boði Japanska handknatt-
leikssambandsins.
Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Japans,
hafði samband við vin sinn úr boltanum, Ólaf
Stefánsson, og bað hann að finna hávaxna
leikmenn sem væru til í að koma og æfa með
japanska landsliðinu. Á þessum tíma voru
margir leikmenn enn að spila í úrslitakeppn-
inni og því ekki allir lausir. Ólafur fann því
fimm leikmenn sem voru búnir að spila og til-
búnir að fara. Ferðin tók tvær vikur í lok apríl
og byrjun maí. Ferðin var liður í undirbúningi
japanska liðsins fyrir Ólympíuleikana 2020.
Dagur fékk til sín hávaxna leikmenn og þá
aðallega skyttur til að skjóta á Japanina.
Skrítið að sjá öðruvísi bolta
Einar segir að japanski boltinn sé öðruvísi en
við eigum að venjast. Þeir skjóti ekki mikið
heldur spili sig í gegn. Dagur var því að venja
japönsku leikmennina við hávaxnar evrópsk-
ar skyttur.
„Við flugum frá Keflavík til Kaupmanna-
hafnar og þaðan til Tókýó. Flugið frá Kaup-
mannahöfn til Tókýó var 11–12 tímar þannig
að ferðalagið tók alveg sólarhring með bið-
um. Svo er 9 tíma munur á klukkunni þannig
að maður var lengi að venjast tímamismun-
inum,“ segir Einar.
Þeir félagar bjuggu á hóteli í Tókýó í ein-
hvers konar Ólympíumiðstöð þar sem allir
stóru íþróttaaðilarnir vinna að undirbúningi
fyrir leikana. Þar er skrifstofuaðstaða og topp-
aðstaða fyrir allar íþróttir.
- Hvernig var fyrir þig sem íslenskan leikmann
að æfa og spila handbolta þarna úti?
„Þetta var óneitanlega svolítið öðruvísi en
maður hefur átt að venjast. Reyndar var mað-
ur ekki að sanna sig fyrir neinum heldur var
bara að skjóta sem mest á markið. Það var
mjög gaman að þessu. Þetta var samt mjög
erfitt. Það var skrítið að sjá öðruvísi handbolta.
Maður hélt að handbolti væri bara eins alls
staðar. Þeir skjóta ekki neitt fyrir utan. Í 95%
tilfella spila þeir sig í gegn. Ef það virkar ekki
kemur bara einhver sirkus. Þá hlaupa þeir
endalaust, hlaupa bara villt og galið og gjör-
samlega sprengja mann.“
Dagur eins og kóngur í Japan
Íslensku strákarnir æfðu yfirleitt tvisvar á
dag. Um níuleytið voru lyftingar eða einhver
styrktaræfing sem stóð fram undir hádegi.
Síðan var handboltaæfing seinni hluta dags,
um fjögur leytið. Oftast voru þetta þriggja
tíma æfingar. Stundum var farið í sund í
liðkunaræfingar.
„Japönsku leikmennirnir sögðu að Dagur
væri geðveikur en gerðu samt allt sem hann
sagði. Dagur er þvílíkt vel metinn hjá þeim.
Hann er eins og kóngur þarna. Þeir gera bara
það sem hann segir, segja bara já og amen og
ekkert væl. Þó menn væru þreyttir var eng-
inn neitt að kveinka sér, það var bara sett á
fulla ferð. Þetta var hörkupúl og við fengum
meira en við höfum fengið að venjast hérna
heima. Þetta var erfitt og tók mikið á,“ segir
Einar.
- Hvernig kom Tókýó ykkur fyrir sjónir?
„Þetta er risaborg og algjörlega eins og svart
og hvítt miðað við það sem maður á að venj-
ast. Ég hef oft farið til Evrópu en þetta er allt
öðruvísi. Við skoðuðum mikið menninguna
þarna, m.a. japönsk hof og musteri sem var
mjög áhugavert. Svo var þarna turn sem
heitir Sky Tree en hann er 634 metrar á hæð
og gnæfir yfir borgina. Við fórum upp í hann
um það bil hálfan en sáum ekki enda á milli
í borginni.“
Japan ekki fyrir freka Íslendinga
„Maður tók eftir því hve kurteist fólkið er í
Japan. Það voru engin læti heldur fann mað-
ur ró yfir öllu. Þetta var eins og þjóðfélagið
væri heilaþvegið. Annars myndi það ekkert
virka. Ég veit ekki hvernig það yrði ef allir
freku Íslendingarnir væru þarna saman komn-
ir. Þegar við fórum í strætó eða tókum lest
lentum við nokkrum sinnum í því að það
þurfti tvær-þrjár tilraunir til að loka hurðun-
um. Þá komu bara fjórir á ferðinni og ýttu
öllum inn. Svo var bara lokað og allir þögðu.
Það var mikið horft á okkur. Við vorum
algjörar furðuverur í þeirra augum. Það voru
líka teknar myndir af okkur af því að við vor-
um stórir og ljóshærðir.“
- Eitthvað skemmtilegt úr ferðinni?
„Þetta var á heildina litið mjög skemmtileg
ferð og margt áhugavert sem maður sá. Við
fórum út að borða, sátum á gólfinu og feng-
um m.a. alls konar hráan fisk, sushi, túnfisk
og smokkfisk. Japanir borða allt í smáum
skömmtum. Það var áhugavert að fylgjast
með Teiti liðsfélaga mínum snæða þetta.
Hann er matvandur mjög en lét sig hafa það
að eta alls konar hráan viðbjóð. Mér fannst
krabbaheilinn ekki góður en ég hafði gaman
af því að horfa á hann. Við átum m.a. einn lif-
andi fisk, plokkuðum innan úr honum meðan
hann var enn spriklandi. Þetta var mjög
skemmtilegt og maður gerir þetta ekki á
hverjum degi,“ sagði Einar.