Skinfaxi - 01.03.2017, Qupperneq 24
24 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Guðmundur Kári Þorgrímsson hefur slegið
í gegn í fimleikum en hann var í blönduðu
unglingaliði Íslands þegar hann vann brons
á EM í fimleikum í Slóveníu 2016. Hann hefur
farið á Unglingalandsmót UMFÍ frá unga aldri.
„Ég er úr Búðardal og þar var verslunar-
mannahelgin alltaf undirlögð í aðdraganda
Unglingalandsmóts. Systur mínar, sem eru
eldri, kepptu á mótunum og við fórum alltaf
saman. Ég var áreiðanlega 4–5 ára þegar ég
fór á Unglingalandsmót í fyrsta sinn,“ segir
Guðmundur Kári sem margir þekkja betur
sem Gumma tvíbura.
Guðmundur keppti í fyrsta sinn þegar hann
hafði aldur til og var á 11. ári. „Ég man ekki í
hverju ég keppti fyrst, líklega fótbolta, en ég
keppti líka oft í skák, hástökki, langstökki og
1200 m og 800 m hlaupum. Þegar fimleikarn-
ir komu inn á Egilsstöðum keppti ég þar í
fyrsta sinn í greininni,“ segir hann.
Guðmundur hafði ekki æft fimleika áður
en hann keppti í greininni á Unglingalands-
móti UMFÍ, síðast þegar það var haldið á
Egilsstöðum. Þess í stað hafði hann notað
trampólín sem var í garðinum heima hjá
honum á Erpsstöðum og farið í handstöður.
Þetta er eitthvað
sem allir þurfa
að kynnast
Stökkin komu síðar. Það var ekki fyrr en eftir
mótið sem Guðmundur fór að æfa fimleika.
Þá var hann í 7. bekk. Æfingar fóru fram á
Akranesi einu sinni í viku og þangað ók móðir
hans honum á miðvikudögum. Tækifærið
var nýtt til hins ýtrasta því að tvíburabróðir
Guðmundar æfði fótbolta á sama tíma.
Eignast nýja vini á
Unglingalandsmóti UMFÍ
Guðmundur segir að alltaf hafi myndast mikil
stemning fyrir Unglingalandsmóti UMFÍ í
kringum Búðardal og sveitina hans. „Flestir
í sveitarfélaginu fóru á Unglingalandsmót.
Þetta var mikið fjör og þótt ég hafi verið byrj-
aður að æfa fimleika var mamma alltaf að
reyna að ýta mér út í frjálsar. Þess vegna
keppti ég oft í langhlaupi og hástökki.“
Guðmundur segir mestu skemmtunina á
Unglingalandsmóti UMFÍ hafa falist í því að
vera með jafnöldum sínum og kynnast nýjum
krökkum.
„Þarna var maður frjáls, fékk að vaka lengur
og alltaf úti í fersku lofti með vinum sínum
að leika. Svo var ég alltaf að kynnast nýjum
krökkum. Þetta er eitthvað sem allir þurfa að
kynnast,“ segir Gummi tvíburi.
Allt klárt fyrir Unglingalandsmót UMFÍ
Gunnar Gunnarsson er formaður
UÍA. Hann segist hafa lært mikið af
því hvernig Danir halda landsmót.
Þ að hefur verið nóg að gera hjá UÍA í
sumar. Í byrjun júlí var haldin árleg
Sumarhátíð UÍA og nú eftir Unglinga-
landsmót UMFÍ fer fram hjólakeppnin Tour de
Ormurinn. Sambandið býr að mikilli reynslu
á sviði stórmóta og kann að gera gott mót.
Gunnar segir sambandið búa vel að því að
hafa haldið stórmót á vegum UMFÍ í gegn-
um tíðina. Íþróttamannvirkin í bænum séu í
fínu standi og öll aðstaða til íþróttaiðkunar
til fyrirmyndar. Hún hefur einmitt byggst
upp í áranna rás í kringum mótahaldið.
Er einhvern sérstök áskorun tengd Unglinga-
landsmóti UMFÍ?
„Stærsta áskorunin nú er sú að fá sjálfboða-
liða til starfa. En við erum ekki ein um það. Á
Unglingalandsmóti UMFÍ eru greinar sem
þurfa á mörgum að halda. Það getur verið
erfitt að manna þær nú þegar margar fjöl-
skyldur eru á faraldsfæti,“ segir hann.
Gunnar var á meðal þeirra sambandsaðila
UMFÍ sem fóru í nokkurra daga ferð til Dan-
merkur í sumar að fylgjast með framgangi
landsmóts DGI. Honum leist vel á skipulagið
þar sem sneri að þeim mikla fjölda sjálfboða-
liða sem vann við mótið. DGI hefur einmitt
gefið út að um þeir hafi verið um 5.000 talsins.
„Það var staðið að allri vinnu með sjálfboða-
liðum á mjög faglegan hátt. Þeir fá góða
þjálfun, vel er haldið utan um tíma þeirra og
vel gert við þá. DGI kann sitt fag hvað sjálf-
boðaliða snertir. Þetta var mjög lærdómsríkt
fyrir UMFÍ og UÍA,“ segir Gunnar.
Sveitarfélagið
Fljótsdalshérað
Sveitarfélagið Fljótsdalshérað varð til
1. nóvember 2004, við sameiningu
Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-
Héraðs. Sveitarfélagið er mjög víðfeðmt og
er nú það landmesta á Íslandi. Stærð þess er
8.884 ferkílómetrar.
Sveitarfélagið afmarkast af Jökulsá á Fjöll-
um í vestri að Biskupshálsi um Möðrudals-
heiði og Háreksstaðaheiði, norður Smjörfjöll
og Hellisheiði norður í Kollumúla í Héraðsflóa.
Að austanverðu afmarkast það frá Bótar-
hnjúkum sem eru á mörkum Fljótsdals-
héraðs, Fljótsdalshrepps og Djúpavogs-
hrepps, þaðan um Breiðdalsheiði og
Austurfjöll í Skriðdal yfir á Fagradal um
Gagnheiði og um Austurfjöllin í Gripdeild
í Héraðsflóa.