Skinfaxi - 01.03.2017, Síða 26
26 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
UÍA-liðar hafa reynslu af mótahaldi UMFÍ
Ungmenna- og íþróttasamband
Austurlands (UÍA) hefur séð um fram-
kvæmd á þremur Landsmótum UMFÍ
auk Unglingalandsmóts 2011. Keppnin
hefur breyst talsvert í tímans rás og má
segja að hvert mót sé spegilmynd á
andrúmsloftið á hverjum tíma.
Hér eru rifjuð upp brot frá mótunum
á Austurlandi.
Lagt á borð fyrir sex
Fyrsta Landsmótið, sem var 8. Landsmót
UMFÍ, var haldið á Eiðum 5.–6. júlí 1952. Á
mótinu var bryddað upp á nýjungum. Sem
dæmi var ákveðið að láta löngu sund keppn-
irnar róa og taka þess í stað upp keppni í boð-
sundi. Ástæðan var ekki síst sú að á Eið um
var ekki jarðhiti og þótti sundfólki vorkunn
að skvampa lengi í kaldri tjörn. Hyggilegra
þótti því að bjóða upp á styttri ferðir fyrir
hvern og einn. Þá voru teknar upp starfsíþrótt-
ir og var m.a. keppt í því að leggja á borð og
dráttarvélaakstri. Til stóð að keppa í mjöltum
en hætt var við það.
Fram kemur í bókinni Vormenn Íslands,
sem fjallar um sögu UMFÍ, að menn klóruðu
sér svolítið í hausnum yfir því hvernig ætti að
keppa í því að leggja á borð. Til keppni voru
skráðar fjórar ungar stúlkur. Allar voru þær úr
héraðinu og höfðu numið við ýmsa húsmæðra-
skóla. Á endanum varð þetta að sýningu í
stað keppni og var ekki reiknað inn í heildar-
stigakeppnina. Stúlkurnar settu upp gesta-
boð fyrir sex í sveit í borðstofu Eiðaskóla,
brutu saman servíettur og skreyttu borð með
blómum. Í Vormönnum Íslands segir að kepp-
endur hafi fylgst opinmynntir með og ekki
trúað því hversu spennandi þetta var. Lilja
Þórarinsdóttir frá Hallfreðarstaðahjáleigu
varð í fyrsta sæti, að mati dómnefndar.
Vildu ekki synda í ískaldri tjörn
Landsmót UMFÍ var aftur haldið á Eiðum
13.–14. júlí árið 1968. Þetta var 13. Landsmót
UMFÍ. Vorið hafði verið með eindæmum kalt
á Austurlandi, hafís inni í fjörðum fram á sum-
ar og vellirnir á Eiðum illa farnir af kali. Var
mjög kalt þetta árið. Pokalaug var flutt frá
Laugarvatni að Eiðum og sett þar upp með
hitunartækjum enda vildi enginn etja sund-
mönnum út í ískaldar tjarnir.
Veðrið batnaði lítið um mótshelgina og
virtust hitagræjurnar hafa gert lítið gagn.
Tilhlökkun sundgarpa á Landsmótinu tók
nefnilega skjótan endi þegar þeir fyrstu
stungu sér í vatnið enda hafði hitastigið um
nóttina verið nálægt frostmarki. Í Vormönn-
um Íslands segir um hitastigið að það hafi
verið „hund-helvíti-kalt“. Engu að síður var
ákveðið að blása til keppni í sundi.
Eftirsótt landsmót
23. Landsmót UMFÍ var haldið á Egilsstöðum
dagana 12.–15. júlí 2001. Mikil uppbygging
hafði orðið í bænum í aðdraganda mótsins
og bættist nú við að varanlegt efni var sett á
atrennu- og hlaupabrautir.
Mótið á Egilsstöðum 2001 markaði tíma-
mót en ákveðið hafði verið árið 1990 að halda
mótið á Egilsstöðum. Áður hafði stjórn UMFÍ
þurft að fara bónarveg að héraðssambönd-
um og fá þau til að halda landsmót. Nú hafði
taflið snúist við og sóttust samböndin eftir
því að halda mót. Ástæðan var meðal annars
sú að mótshaldi fylgdu endurbætur á íþrótta-
aðstöðu. Kröfur til mótanna voru orðnar slík-
ar að ekki þýddi að bjóða upp á annað en
góðar sundlaugar, rúmgóð íþróttahús og
gott efni á hlaupabrautum.
Ístölt á Lagarfljóti um hásumar
Unglingalandsmót UMFÍ var haldið í fyrsta
sinn á Egilsstöðum sumarið 2011. Mörgum
brá hins vegar í brún þegar frétt birtist í
Austurglugganum og síðar á fréttavefnum
Vísi undir lok maí þetta árið að sökum snjó-
þyngsla á Austurlandi hefði mótsstjórn boð-
að til neyðarfundar. Ákveðið hafi verið að
hætta við knattspyrnu, sund og hefðbundn-
ari íþróttir en bjóða þess í stað upp á keppni
í skíðagöngu og skautadansi, ístölt á Lagar-
fljóti og bobsleðakeppni. Þá yrði gert ráð
fyrir því að keppendur muni hjálpast að við
að moka snjó af helstu götum bæjarins.
Þessi óvænta breyting á mótinu var grín
að hætti Ómars Braga Stefánssonar, fram-
kvæmdastjóra mótsins. Hann viðurkenndi í
samtali við Vísi að hafa verið að horfa á veður-
spána þarna í maí og í samræmi við hana
ákveðið að senda verkefnastjóranum breytta
mótsdagskrá sem tæki mið af veðrinu. Snjó
hafði þá kyngt niður á Austurlandi í nokkra
daga, ófært var yfir á Seyðisfjörð og benti
fátt til þess að komið væri sumar. Ómar
leiðrétti dagskrána og var hefðbundið mót
haldið um verslunarmannahelgina.
Það var kátt á hjalla hjá þessum stelpum
úr UMSK á Landsmóti UMFÍ á Eiðum árið 1968.
Lilja Þórarinsdóttir frá Hallfreðarstaðahjá-
leigu hlaut fyrstu verðlaun fyrir að leggja
á borð á Eiðum 1952.
Stoltir félagar í UÍA ganga inn á völlinn
á Landsmótinu á Eiðum 1968.
Allt til reiðu.Keppnin hafin í því að leggja á borð.
Lið UÍA gengur inn á völlinn við setningu Landsmóts UMFÍ á Egilsstöðum 2001.