Skinfaxi - 01.03.2017, Qupperneq 28
28 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Björn Ingimarsson er
bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs
og formaður unglingalands-
mótsnefndar á Egilsstöðum.
Hann hefur keppt á Lands-
móti UMFÍ og segir forvarna-
gildi mótanna vera mikið.
Hvernig leggst mótið í ykkur?
„Mótið leggst mjög vel í okkur og við bíðum
þess með eftirvæntingu að fá hingað góða
gesti og eiga þess kost að eiga með þeim
gefandi daga.“
Þið á Austurlandi eruð engir nýgræðingar
þegar kemur að mótshaldi. Hver er galdurinn
við að halda gott mót?
„Galdurinn við að halda gott mót er að fyrir
því sé raunverulegur áhugi meðal heima-
manna. Á því hefur ekki verið vöntun hér og
að undirbúningnum koma fulltrúar ung-
mennafélaganna á Austurlandi auk starfs-
manna sveitarfélagsins. Fyrir liggur einnig
að fjöldi sjálfboðaliða mun koma til starfa á
meðan á mótinu stendur og er ánægjulegt
að finna hve viljinn til þess er mikill.“
Hverjar eru helstu áskoranir?
„Áskoranirnar eru ýmsar en mestu máli
skiptir að standa þannig að málum að kepp-
endum, áhorfendum og íbúum líði öllum
vel á meðan á móti stendur. Til að tryggja að
ekkert komi mótshöldurum að óvörum hef-
ur hópur heimamanna hist vikulega síðan
snemma í vor auk þess að landsmótsnefnd
hefur fundað með reglubundnum hætti.
Þetta munum við gera fram að mótsdegi og
væntum þess að sú vinna skili árangri.“
Hafið þið fengið ráð hjá öðrum sem hafa
haldið mót á vegum UMFÍ?
„Við höfum innan vébanda okkar einstakl-
inga sem hafa komið að skipulagi svona
móta áður og eru í slíku mikil verðmæti en
einnig höfum við leitað ráða hjá þeim sem
staðið hafa að mótum undanfarin ár auk
þess að starfsmenn UMFÍ og þá sérstaklega
Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri
Landsmótsins, hafa verið okkur miklar
hjálparhellur.“
Hefurðu sjálfur keppt á mótum UMFÍ eða
einhver í fjölskyldunni?
„Já, ég átti því láni að fagna að keppa á
Landsmóti UMFÍ í Borgarnesi fyrir USVS
(4x100 m, 800 m) á sínum tíma.“
Hvernig fannst þér að keppa?
„Það var bæði skemmtilegt og gefandi og
hefur m.a. orðið til þess að ég hef ávallt verið
og verð alltaf talsmaður móta eins og Ungl-
ingalandsmóts UMFÍ. Stundum heyrir maður
að kostnaður við þessi mót sé mikill og því
sé ástæða til að endurskoða bæði aðkomu
ríkis og sveitarfélaga að þeim. Ég vil vara við
slíkum hugleiðingum því að forvarnagildi
þessara móta er þvílíkt að það réttlætir full-
komlega áframhaldandi aðkomu opinberra
aðila að verkefninu. Fljótsdalshérað hefur
nálgast verkefnið með þetta að leiðarljósi og
von mín er að slíkt muni einnig einkenna
aðkomu ríkisins í framtíðinni þó að ýmis
teikn séu á lofti um að þar á bæ séu hug-
myndir aðrar.“
Ég hef alltaf verið
talsmaður Unglinga-
landsmóts UMFÍ
Óskum keppendum á Unglingalandsmóti UMFÍ góðs gengis:
Launafl, Hraun 3, 730 Reyðarfirði
Vaskur ehf., Miðási 7, 700 Egilsstöðum
Rafey ehf. Miðási 11, 700 Egilsstöðum
Bílamálun Egilsstöðum ehf.,
Fagradalsbraut 21–23, 700 Egilsstöðum SeyðisfjörðurVopnafjörður