Skinfaxi - 01.03.2017, Síða 31
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 31
Þ
að er nóg annað að skoða en keppni
margs konar og alla viðburðina í
tengslum við Unglingalandsmót
UMFÍ. Þeir eru margir athyglisverðir
staðirnir sem hægt er að skoða á
Fljótsdalshéraði. Við hvetjum gesti
jafnt sem heimamenn til að fara út fyrir bæinn
og skoða héraðið. Hér er brot af því sem
gaman er að skoða.
Eiðastaður var áður höfuðból og kirkju-
setur. Þar var stofnaður bændaskóli árið 1883
sem varð héraðsskóli 1918. Í dag er staður-
inn í einkaeign og er unnið að uppbyggingu
alþjóðlegs mennta- og menningarseturs.
Margar skemmtilegar gönguleiðir eru um
kjarri vaxna ása.
Skriðuklaustur er í Fljótsdal. Þar er stór-
fenglegt hús rithöfundarins Gunnars Gunn-
arssonar. Húsið er safn í dag, menningar- og
fræðasetur. Á Skriðuklaustri hafa verið grafn-
ar upp rústir munkaklausturs. Þar dvöldu
munkar af Ágústínusarreglu á árunum 1493
til 1552. Klaustrið er talið það síðasta sem
stofnað var á Íslandi í kaþólskum sið. Skriðu-
klaustur er um 30 kílómetra frá Egilsstöðum.
Þar er safn um Gunnar og sýning um forn-
leifauppgröftinn og kaffihúsið Klausturkaffi
sem er opið alla daga kl. 10–18.
Atlavík er frægur áningarstaður ferðamanna.
Þar er tjaldsvæði og bátaleiga og hægt er að
taka Lagarfljótsorminn þ.e. ferjuna, þar og
sigla á fljótinu á sumrin. Þarna hélt UÍA lengi
útihátíð um verslunarmannahelgi. Frægasta
hátíðin er án nokkurs efa sú árið 1984 þegar
Bítillinn Ringo Starr kom og spilaði með Stuð-
mönnum.
Kárahnjúkastífla og Hálslón: Kára-
hnjúkar eru móbergshnjúkar austan við
Jökulsá á Brú. Jökulsá eða Jökla fellur í miklu
gljúfri, Hafrahvammagljúfri, sem er eitt dýpsta
og hrikalegasta gljúfur landsins. Kárahnjúka-
stífla er 198 m há og 700 m breið og meðal
stærstu slíkra mannvirkja í heimi. Hálslón,
ofan stíflunnar, er 57 km2 að stærð. Virkjunin
hefur verið umdeild en hún sér Fjarðaáli,
álveri Alcoa í Reyðarfirði, fyrir orku. Margur
ferðamaðurinn lagði leið sína upp að Kára-
hnjúkum til þess að taka þátt í þjóðmálaum-
ræðunni meðan framkvæmdirnar stóðu yfir.
Hallormsstaðaskógur er stærsti skógur á
landinu og liggur meðfram Leginum. Byrjað
var þar með tilraunir á trjáplöntum árið 1903.
Elsti lerkilundurinn er frá 1938, kenndur við
Guttorm Pálsson skógarvörð og heitir lundur-
inn Guttormslundur. Bæði er hægt að tína
ber og fara í sveppatínslu þarna á haustin. Á
Hallormsstað var stofnaður húsmæðraskóli
árið 1930. Hann starfar enn í dag og heitir nú
Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað. Áður fyrr
sóttu þangað aðeins konur en nú geta bæði
kynin sótt um skólavist og þykir hann henta
nemendum sem stefna á framhaldsnám á
sviði matreiðslu og hannyrða.
Kjarvalshvammur er í landi Ketilsstaða í
Hjaltastaðaþinghá. Jóhannes S. Kjarval list-
málari dvaldi í þessum hvammi í tjaldi í tvö
ár í kringum 1948. Bóndinn á Hjaltastað gaf
honum skika og byggði kofa í hvamminum.
Þarna dvaldi Kjarval oft og málaði margar af
frægustu myndum sínum. Þetta er eina fast-
eignin sem Kjarval eignaðist um ævina. Þarna
er líka bátaskýli fyrir bát sem Kjarval á að hafa
farið á niður Selfljót og til sjávar.
Gálgaás er rétt austan við Egilsstaðakirkju í
Egilsstaðabæ. Á honum er Gálgaklettur. Stað-
urinn þekktur fyrir að Valtýr á grænni treyju,
sem svo var nefndur og var bóndi á Eyjólfs-
stöðum á Völlum, var tekinn af lífi fyrir þjófn-
að og morð á vinnumanni. Hann neitaði þó
alltaf sök. Fjórtán árum seinna fannst rétti morð-
inginn sem einnig hét Valtýr og var hengdur.
Bein þeirra beggja lágu undir klettinum en
síðar var reistur skjöldur sem stendur enn.
Áhugaverðir staðir á Fljótsdalshéraði
Vallanes er kirkjustaður á Völlum. Þekktasti
prestur sem þar hefur þjónað var séra Stefán
Ólafsson skáld á 17. öld. Félagsheimilið Iða-
vellir stendur í landi Vallaness. Nú er stunduð
þar lífræn ræktun og framleiðsla á snyrtivör-
um undir nafninu Móðir jörð.
Klaustursel er bær á efra Jökuldal. Þar er
vísir að dýragarði. Hreindýr, refir, gæsir, álftir
og fleiri íslensk dýr má finna þar. Þarna er
einnig gallerí þar sem eru sýndar og seldar
ýmsar vörur, m.a. unnar úr hreindýraleðri.
Brúin yfir Jökulsá, á veginum heim að bænum,
er elsta brú landsins sem enn er í notkun.
Aðalból er bær efst í Hrafnkelsdal. Þar bjó
Hrafnkell Freysgoði Hallfreðarson sem segir
frá í sögu hans. Þar má sjá haug Hrafnkels. Í
nágrenni hafa fundist fornir gripir sem hafa
styrkt sannleiksgildi sögunnar. Á Aðalbóli er
rekin ferðamannaþjónusta.