Skinfaxi - 01.03.2017, Side 32
32 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Unglingalandsmót UMFÍ var haldið í Borgar-
nesi um verslunarmannahelgina 2016. Ung-
mennasamband Borgarfjarðar (UMSB) var
mótshaldari. Þar innanborðs eru reynslubolt-
ar eldri en tvævetur þegar kemur að móts-
haldi.
En hvernig gekk? Sólrún Halla Bjarna-
dóttir, sambandsstjóri UMSB, svarar því
og veitir formönnum mótanefnda ráð:
Hvernig var ULM í Borgarnesi 2016? – hvernig
tókst til að þínu mati?
„Unglingalandsmót UMFÍ í Borgarnesi 2016
tókst vel og við hjá UMSB vorum mjög sátt
við mótið. Við í Borgarfirði búum yfir reynd-
um og öflugum hópi sjálfboðaliða. Það var
gaman að sjá hvernig þeir unnu saman að
því að skapa góða stemmningu á svæðinu.“
Lærðirðu eitthvað nýtt sem sambandsstjóri og
formaður unglingalandsmótsnefndar við
mótshaldið?
„Í mars 2016 tók ég við sem sambandsstjóri
UMSB en hafði þar á undan setið í stjórn UMSB.
Formaðurinn lærir eitthvað
nýtt á hverjum degi
Þar hafði ég tekið þátt í undirbúningsvinnu
fyrir Unglingalandsmótið ásamt öðrum stjórn-
armeðlimum. Í maí varð nefndin reyndar for-
mannslaus þannig að ég steig inn í það hlut-
verk. Það má alveg segja að ég hafi lært eitt-
hvað nýtt á hverjum degi. Það eru ótrúleg
verkin á bak við hvert Unglingalandsmót
UMFÍ og mikilvægt fyrir formann hverju sinni
að vera puttann á púlsinum, ekki aðeins allan
undirbúningstímann heldur líka fram yfir
mótið.“
Hefðirðu viljað gera eitthvað öðruvísi?
„Ég hefði viljað sjá strandblakið verða að veru-
leika í Borgarnesi ásamt því að mér fannst
vanta betri samræmingu á milli íþróttagreina,
svo sem hvað viðkom verðlaunaafhendingu.“
Áttu góð ráð fyrir mótshaldara ULM á Egils-
stöðum?
„Nýtið mannauðinn í kringum ykkur og skap-
ið jákvæðan brag í kringum Unglingalands-
mót UMFÍ. Þetta mót er frábært fyrir kepp-
endur, fjölskyldur þeirra og annarra til þess
að njóta tímans saman.“
Punktar frá mótinu
• Í aðdraganda Unglingalandsmóts
var haldinn fundur með íbúum og
verslanaeigendum í bænum vegna
mögulegrar röskunar á daglegu lífi
vegna götulokana og mannfjöldans.
• Íþróttaaðstaða var bætt og tjald-
svæði við bæjarmörk lagað.
• Þegar mótið hófst var nokkrum
götum í nálægð við íþróttasvæði
lokað. Strætisvagnar fluttu fólk frá
tjaldstæði inn í bæinn.
• Kvöldvökur voru á tjaldsvæði fyrir
keppendur. Fram komu nokkrir af
vinsælustu tónlistarmönnum
landsins ásamt heimafólki.
U
LM
BORGARNESI
Unglingalandsmót UMFÍ Borgarnesi 2016
* Könnun gerð eftir að mótinu lauk.
Hvað hefur þú
komið oft á ULM ?
Í fyrsta
skipti á
mótinu
2 24,8%
Hef
komið
áður
74,2%
Hvernig líkaði þér á
ULM í Borgarnesi?
Vel
30%
Mjög
vel 70%
Myndir þú mæla með
mótinu við aðra?
Já
99,6%
Nei
0,4%
Aldursskipting þátttakenda á ULM 2011–2016 Þátttaka drengja og stúlkna á Unglingalandsmótum
2011
Egilsstaðir
2012
Selfoss
2013
Höfn Hornafirði
2014
Sauðárkrókur
2015
Akureyri
2016
Borgarnes