Skinfaxi - 01.03.2017, Síða 34
34 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Af hverju stunda ungmenni íþróttir,
að hverju stefna þau og hvaða öpp
nota þau til að fylgjast með hreyf-
ingu sinni? Við spurðum nokkra
unga íþróttamenn að því.
Nafn: Martin Bjarni Guðmundsson
Aldur: 16 ára.
Félag: Gerpla.
Íþróttagrein: Áhaldafimleikar.
Af hverju þessi íþróttagrein – hvað gerir
hana skemmtilega? Í fyrstu byrjaði ég af því
að mamma og pabbi leyfðu mér að prufa
áhaldafimleika í Gerplu en þá var ég 4 ára.
Mér finnst mjög gaman á æfingum og þarna
er líka mjög góður félagsskapur. Fimleikar
eru skemmtilegir því að maður er sífellt að
læra nýjar æfingar og gera hluti sem aðrir
geta ekki gert. Fimleikar reyna mikið á styrk,
liðleika, sjálfsaga og einnig þarf að þora að
prufa nýjar æfingar til þess að komast lengra.
Hver eru markmið þín með þátttökunni?
Markmið mín eru að bæta mig á hverjum degi
og gera æfingarnar, sem ég er að keppa með
núna, eins vel og ég get. Þetta snýst um að
gera eins erfiðar æfingar og maður ræður vel
við. Ég æfi til að komast á alþjóðleg mót en
ég er á leiðinni á Ólympíuhátíð Evrópuæsk-
unnar núna í júlí þar sem ég stefni á 24 bestu
og svo er Evrópumót unglinga á næsta ári,
svo að dæmi sé tekið. Ég stefni alltaf á að vera
með þeim bestu í mínum aldursflokki og
stefni auðvitað á Ólympíuleikana.
Er sérstök tíska í íþróttagrein þinni? Nei,
það er nú engin sérstök tíska nema Adidas er
áberandi á æfingum þessa dagana. Við erum
yfirleitt bara í stuttbuxum, bol og sokkum
þegar við erum að æfa.
Notar þú einhver öpp meira en önnur
– og af hverju? Ég nota app sem heitir Tech-
nique til þess að taka mig upp á fimleika-
æfingum og skoða hvað ég get gert betur.
Síðan nota ég líka Splice til að klippa saman
upptökurnar sem ég deili inn á Instagram-
mið mitt (martinbjarni01). Þar get ég líka séð
hvað aðrir í sömu íþrótt og ég eru að gera.
Notar þú einhver öpp til að halda utan um
hreyfingu þína? Nei, ég hef ekki gert það.
Nafn: Barbára Sól Gísladóttir Hlíðdal
Aldur: 16 ára.
Félag: Selfoss.
Íþróttagrein: Fótbolti.
Af hverju þessi íþróttagrein – hvað gerir
hana skemmtilega? Fjölskylda mín er mjög
mikil fótboltafjölskylda og þess vegna fór ég
í fótbolta þegar ég var lítil. Núna er þetta það
skemmtilegasta sem ég geri. Það sem gerir
fótboltann svona skemmtilegan er félags-
skapurinn. Mér finnst skemmtilegt að þurfa
að leggja hart að mér sem einstaklingur og í
hópi, sem þarf að gera í boltanum.
Hver eru markmið þín með þátttökunni?
Bara að hafa gaman og gera mitt besta fyrir
liðið mitt.
Er sérstök tíska í íþróttagrein þinni? Það
er eiginlega engin ein tíska í fótboltanum en
flestir eru samt í skóm frá Nike og Adidas.
Sokkaskór eru líka orðnir mjög vinsælir. Svo
er mikilvægt í minni íþróttagrein að vera góð
fyrirmynd fyrir yngri kynslóðina.
Notar þú einhver öpp meira en önnur
– og af hverju? Ég nota Snapchat og Insta-
gram mest.
Notar þú einhver öpp til að halda utan
um hreyfinguna þína? Eina appið sem ég
nota heitir Veryfit. Það er tengt við úrið mitt
og tengist m.a. hreyfingu og svefni.
Nafn: Hilmir Hallgrímsson
Aldur: 15 ára.
Félag: Vestri.
Íþróttagrein: Körfubolti.
Af hverju varð körfubolti fyrir valinu? Ég
veit það ekki. Ég var alltaf í fótbolta líka en
svo færði ég mig bara yfir í körfubolta af því
að mér fannst það skemmtilegra.
Hver eru markmið þín með þátttökunni?
Markmið mín eru að komast eins langt og
ég get í íþróttinni og verða bestur.
Er sérstök tíska í íþróttagrein þinni?
Tískan í körfubolta , ég held að það séu aðal-
lega skór og föt frá Jordan, Nike og Adidas.
Notar þú einhver öpp meira en önnur?
Ég nota bara þetta venjulega, Snapchat,
Facebook og Instagram. Ég er ekki mjög
virkur inni á þessu, skoða bara hvað aðrir eru
að gera.
Notar þú einhver öpp til að halda utan
um hreyfingu þína? Nei ég nota ekki öpp
fyrir hreyfingu mína.
Nafn: Elísabet Eir Hjálmarsdóttir
Aldur: 16 ára í desember.
Félag: Leiknir á Fáskrúðsfirði.
Íþróttagrein: Fótbolti og fimleikar. Ég hætti
í fimleikum í mars 2017 vegna þess að hvíld
á milli æfinga og leikja var nauðsynleg þar
sem lengjubikarinn var kominn á fullt.
Það er gaman að hreyfa sig
Martin Bjarni
Barbára Sól