Skinfaxi - 01.03.2017, Blaðsíða 35
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 35
Af hverju þessar greinar? Ég hef bæði mik-
inn áhuga á fimleikum og fótbolta. Mér finnst
ekkert skemmtilegra en að hreyfa mig og að
vera í góðum félagsskap. Þegar ég var að
byrja í íþróttum á Fáskrúðsfirði var ekki í boði
að æfa mikið annað en fótbolta. Um miðja
skólagönguna var fimleikadeild Leiknis
stofnuð og ég byrjaði á fullu þar. Ári seinna
byrjaði ég að æfa með fimleikadeild Hattar.
Hver eru markmið þín með þátttökunni?
Klárlega að komast lengra en í dag, verða
betri og hafa gaman af því.
Er einhver sérstök tíska í þínum hópi? Það
er misjafnt hvað fólki finnst þægilegt. Það
er ekki mikið um liti í fötum, bara svart eða
hvítt og vítt.
Notar þú einhver öpp meira en önnur?
Nei, ég nota mest Facebook enda koma
æfingaplönin þangað inn.
Notar þú einhver öpp til að halda utan
um hreyfingu þína? Ég nota engin öpp en
skrifa stundum um hreyfinguna í Notes.
Nafn: Svanur Þór Mikaelsson
Aldur: 17 ára.
Félag: Keflavík.
Íþróttagrein: Taekwondo.
Af hverju þessi íþróttagrein – hvað gerir
hana skemmtilega? Ég fann mig betur í
einstaklingsíþrótt og þetta var bara eitthvað
fyrir mig. Það var félagsskapurinn, útrásin og
svo margt fleira henni tengt.
Hver eru markmið þín með þátttökunni?
Markmið mín eru aðallega að gera alltaf mitt
besta og reyna að bæta mig. Mig langar líka
til að komast á stóru mótin erlendis.
Er sérstök tíska í íþróttagrein þinni? Nei,
ég held það sé engin sérstök tíska í minni
íþróttagrein, allir keppendur eru svipað
klæddir en keppnisbúningar og fleira eru allt
mjög svipað.
Notar þú einhver öpp meira en önnur?
Ég er á Instagram og Snapchat undir @
svanurthor.
Notar þú einhver öpp til að halda utan
um hreyfingu þína? Xps er forrit sem ég
nota mikið sem keppandi og þjálfari. Ég nota
það til að skrá það sem ég borða og fylgjast
með æfingunum. Svo set ég æfinguna þar
inn ef ég er að fara þjálfa aðra krakka.
Nafn: Bjartey Unnur Stefánsdóttir
Aldur: 16 ára og 5 mánaða.
Félag: HSÞ – Héraðssamband Þingeyinga.
Íþróttagrein: Frjálsar íþróttir.
Af hverju þessi íþróttagrein? Ég á heima á
sveitabæ í um klukkutíma fjarlægð frá næsta
stað þar sem hægt er að æfa skipulagðar
íþróttir (Húsavík/Laugar). Áður en ég byrjaði
að æfa frjálsar voru flestir úr mínum skóla
að æfa frjálsíþróttir. Mig langaði að æfa ein-
hverja íþrótt og var spennt fyrir frjálsum því
að áður hafði ég farið í frjálsíþróttabúðir og
keppt á Ásbyrgismótinu sem er héraðsmót
haldið í Ásbyrgi. Frjálsíþróttahópurinn í HSÞ
er frábær og marga af bestu vinum mínum
eignaðist ég gegnum frjálsar. Eitt af því
skemmtilegasta sem ég geri er að fara í móts-
ferðir með þessum hópi. Ástæðurnar fyrir
því að ég elska að æfa er félagsskapurinn
og frjálsar sem er ótrúlega skemmtileg og
fjölbreytt grein.
Hver eru markmið þín með þátttökunni?
Ég hef aldrei sett mér nein skýr markmið varð-
andi árangur í frjálsum, ég hef bara gaman
af því að æfa. Auðvitað vil ég gera mitt besta
og sjá framfarir. Til að nefna eitthvert mark-
mið þá er það að sjá framfarir.
Er sérstök tíska í íþróttagrein þinni? Ég
er ekkert svaka tískuséni en þessi klassísku
merki eins og Nike, Adidas og Under Armour
eru alltaf vinsæl. Í frjálsum notast maður við
gaddaskó sem eru frá mismunandi framleið-
endum. Skór frá Nike eru vinsælir. Hvað hár-
tísku varðar held ég að hún fylgi bara hár-
tískunni sem er í gangi almennt. Þau sem eru
með sítt hár eru oftast með það í tagli eða
fléttu/m svo að það þvælist ekki fyrir manni.
Miðað við það sem ég hef séð eru Henson-
keppnisgallarnir þeir vinsælustu. Hvert félag
er auðvitað með sinn stíl. Þessi atriði eru
aðallega miðuð út frá HSÞ þar sem ég tek
mest eftir því sem er í gangi þar.
Notar þú einhver öpp meira en önnur
– og af hverju? Ég nota mest Snapchat og
Instagram. Snapchat nota ég til að spjalla við
vini mína og fylgjast með því hvað sé í gangi
á Íslandi. Ég horfi á frægu snapparana. Insta-
gram nota ég líka til að fylgjast með því sem
er í gangi. Stundum set ég sjálf inn myndir.
Notar þú einhver öpp til að halda utan
um hreyfingu þína? Ég er kannski voða
gamaldags en ég nota engin öpp til að halda
utan um hreyfinguna mína. Ég hef prófað
það en finnst það bara ekki henta mér. Ég
fylgist aðeins með frægum snöppurum sem
koma oft með góð ráð varðandi mataræði
og hreyfingu. Hins vegar skrifa ég stundum
niður einhver markmið varðandi hreyfingu
og mér finnst það miklu betra.
Hilmir
Svanur Þór
Elísabet Eir
Bjartey Unnur