Skinfaxi - 01.03.2017, Page 36
36 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Boccia er nú er í fyrsta
skipti á dagskrá á Unglinga-
landsmóti. Greinin hentar
öllum og það er um að
gera að skrá sig til leiks og
prófa að keppa í skemmti-
legri grein. Keppnin er liða-
keppni þar sem þrír
eru í hverju liði, óháð kyni.
Bogfimi er krefjandi
grein en svo sannarlega
þess virði að prófa.
Keppt er í tveimur flokk-
um, yngri flokki sem
keppir á 20 m færi á 80
sm skífu, og eldri flokki sem
keppir á 40 m færi á 80 sm skífu.
Fimleikalíf er hópaatriði/
sýningaratriði þar sem 3–6
einstaklingar eru í liði,
óháð kyni. Frekari upplýs-
ingar er að finna á heima-
síðu mótsins. Fyrir keppn-
ina verður smiðja (Work-
shop) þar sem keppendur
geta fengið aðstoð.
Fjallahjólreiðar er
skemmtileg grein þar
sem keppt er í tveimur
aldursflokkum, 11–14
ára (hjólað 2 km) og
15–18 ára (hjólað 5 km).
Keppendur þurfa að
koma með hjól og hjálm.
Frisbígolf er í miklum
vexti og vellir spretta nú
upp um land allt.
Keppt verður í flokk-
um 11–14 ára og
15–18 ára. Um er að
gera að prófa frisbígolf
á Egilsstöðum.
Frjálsíþróttir hafa ætíð skipað stóran
sess á Unglingalandsmót-
um. Keppnin er fyrir
alla, afreksungmenni
jafnt sem aðra.
Keppnisgreinarnar
eru fjölmargar og allir
geta fundið sér grein
til að taka þátt í.
Glíma hefur
verið á Unglingalandsmótum
frá upphafi. Allir geta skráð
sig og tekið þátt í skemmti-
legri íþrótt.
Golf
verður á
fimmtudegi.
Um er að ræða högg-
leik án forgjafar þar
sem allir flokkar leika
36 holur. Golf er bráð-
skemmtileg íþrótt.
Götuhjólreiðar eru keppni í
tveimur flokkum. Yngri flokkur-
inn hjólar 4,5 km og eldri flokk-
urinn 10,5 km. Nauðsynlegt er að
mæta með hjól og hjálm.
Hestaíþróttir er
keppni þar sem keppt er
í tveimur aldursflokkum,
11–13 ára og 14–17
ára. Keppt er í tölti og
fjórgangi.
Knattspyrna hefur verið
fjölmennasta greinin á Ungl-
ingalandsmótunum undanfarin
ár. Keppt er í sömu aldursflokk-
um og hjá KSÍ. Í yngri aldurs-
flokkunum eru sex leikmenn í liði
en í þeim eldri eru fimm.
Kökuskreytingar
eru ný keppnisgrein og
vissulega áhugaverð.
Allir geta skráð sig til
leiks. Keppendur fá allt
hráefnið á staðnum en
þurfa að koma með áhöld
með sér til leiks.
Körfuknattleikur hefur
ætíð verið fjörug keppni á
Unglingalandsmótunum og
ekki er ástæða til að ætla
annað en að svo verði
einnig að þessu sinni. Keppt
er í aldursflokkunum 11–12
ára, 13–14 ára, 15–16 ára og
17–18 ára. Fimm eru í hverju liði.
Motocross er gríðarlega
krefjandi keppnisgrein. Að
horfa á keppnina er ekki síður
skemmtilegt því að oftar en ekki
eru tilþrifin slík. Keppt verður í
11–15 ára flokki kvenna og karla
á 85cc 2T/150cc 4T hjólum, 14–18
ára kvennaflokki á 125cc 2T/250cc 4T
og í unglingaflokki 14–18 ára á 125cc
2T/250cc 4T.
Ólympískar lyftingar
er keppni í tveimur aldurs-
flokkum þar sem keppt er í
snörun og jafnhendingu. Ekki
er þörf á að lyfta í lyftinga-
skóm eða lyftingasamfellu.
Rathlaup er áhugaverð og
skemmtileg keppnisgrein fyrir alla.
Keppt er í tveimur aldursflokkum,
11–14 ára og 15–18
ára. Keppendur fá
kort í hendurnar
þar sem litaðir
hringir tákna pósta
sem þeir þurfa að finna.
Frekari upplýsingar eru
á heimasíðu mótsins sem
nauðsynlegt er að lesa.
Skák hefur oft verið
æsispennandi á Ungl-
ingalandsmótum.
Keppt er í tveimur
aldursflokkum, 11–14
ára og 15–18 ára.
Skotfimi er aðeins
fyrir þá sem hafa náð 15
ára aldri. Keppendur þurfa sjálfir að
koma með skotvopn og vera í fylgd
foreldra eða forráðamanns með
skotvopnaleyfi. Frekari upplýsingar
er að finna á heimasíðu mótsins.
Stafsetning er
skemmtileg keppni þar
sem keppt er í tveimur
aldursflokkum, 11–14
ára og 15–18 ára.
Keppni hjá yngri
flokknum er þannig
að lesinn er texti með
eyðufyllingum og skrifaður
texti. Fyrirkomulagið hjá eldri hópnum er
upplestur og skrifaður texti.
Strandblak er keppni í fjórum
aldursflokkum stúlkna og drengja.
Spilað verður á tíma; yngsti hópur
spilar í 10 mínútur samfleytt en
hinir hóparnir í 2x6 mínútur. Spilað
er eftir útsláttarfyrirkomulagi þar
sem hverju liði eru tryggðir tveir leikir.
Sund er hressandi
keppni sem fer fram
á laugardeginum.
Keppt er í fjórum
aldursflokkum
stúlkna og drengja.
Keppnisgreinarnar
eru níu talsins og má
sjá frekari upplýsingar á
heimasíðu mótsins.
UÍA þrekmót er keppni sem verður
haldin í Crossfit Austur á Egilsstöðum.
Keppt er í tveimur aldursflokkum, 11–14
ára og 15–18 ára. Keppnin er öllum opin
og tilvalið að skrá sig til leiks.
Upplestur fer þannig fram að
keppendur velja sér texta
sjálfir, annars vegar
óbundinn texta úr bók
eftir íslenskan höfund
(lengd 300–350
orð) og hins vegar
ljóð eftir íslenskan
höfund (lengd 8–16
línur). Keppendur
lesa ljóðið í kjölfar
óbundna textans.
Íþróttir fatlaðra eru
einstaklingskeppni þar sem
keppt er í sundi og frjáls-
íþróttum.
Hægt er að keppa í 24 mismunandi greinum
á Unglingalandsmótinu á Egilsstöðum