Skinfaxi - 01.03.2017, Blaðsíða 37
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 37
Motus Teeterboard
Upplýsingamiðstöð Suðurlands
Verslunarmiðstöðinni Sunnumörk,
810 Hveragerði
Sími: 483 4601. Fax: 483 4604
Netfang: tourinfo@hveragerdi.is
Hverasvæðið í miðbænum
Hveramörk 13, 810 Hveragerði
Símar: 483 5062 & 660 3905
Netfang: tourinfo@hveragerdi.is
www.hveragerdi.is
Skjálftinn 2008
Sýning í Verslunarmiðstöðinni
Sunnumörk Hveragerði
Sundlaugin Laugaskarði
810 Hveragerði
Sími: 483 4113
Sími: 483 4601
Netfang: tourinfo@hveragerdi.is
Leiðrétting
Ranglega var hermt í fyrirsögn í síðasta tölublaði Skinfaxa að Ungmenna-
félagið Reynir á Árskógsströnd væri elsta ungmennafélag landsins þótt
það hafi fagnað 110 afmæli. Nokkur eru eldri. Þar á meðal er Ungmenna-
félagið Eining í Bárðardal í Þingeyjarsveit sem er innan HSÞ. Það var
stofnað árið 1892 og er því 125 ára á þessu ári. Þá var Ungmennafélagið
Máni, sem er innan USÚ, stofnað 27. janúar árið 1907 og er því eilítið
eldra en Ungmennafélagið Reynir. Skarpir ungmennafélagar tóku fljótt
eftir rangfærslunni og létu ritstjóra heyra það. Hann biðst velvirðingar á
mistökunum.
Danski fimleika- og sýningahópurinn Motus Teeterboard mætir á Unglingalandsmót UMFÍ
2017 á Egilsstöðum í boði íslenska fyrirtækisins Motus ehf. Fimleikahópurinn samanstendur
af fjórum kraftmiklum strákum á þrítugsaldri sem slógu í gegn í dönsku hæfileikakeppninni
Danmark Har Talent á TV2 í fyrra.
Fjórmenningarnir eru þaulreyndir í fimleikum og hafa verið á meðal helsta fimleikafólks í
heimi. Þeir sérhæfa sig í því sem upp á íslensku má kalla vegasalt (e. teeterboard). Við æfingar
á vegasaltinu stendur manneskja á öðrum endanum en tvær stökkva á hinn endann. Við
þetta skýst sá eini upp og getur hann gert fimleika í loftinu. Hann lendir síðan á dýnu, öxlum
samherja síns eða gerir hvað annað sem hann ætlar sér að gera.
Búast má við heilmiklu fjöri þegar félagarnir í Motus Teeterboard sýna listir sínar því að
þeir eru ekki aðeins heilmiklir sprelligosar heldur líka ótrúlega færir í loftfimleikum. Þetta
verður einstakur viðburður.
Eldheitir
fljúgandi Danir
mæta á svæðið
Það er ekki útilokað að einhverjir hafi séð félagana í Motus
Teeterboard sýna listir sínar. Þeir hafa verið við nám og sýn-
ingar í dönskum heimavistarskólum og lýðháskólum, þar
á meðal í Ollerup og Gerlev, skólunum sem margir ungir
Íslendingar hafa sótt sem hafa farið utan í lýðháskóla fyrir
tilstyrk UMFÍ.
Sigurður Arnar Jónsson er forstjóri Motus ehf., fyrirtækisins sem styrkir komu
danska fimleikahópsins á Unglingalandsmót UMFÍ á Egilsstöðum. Sigurður er
borinn og barnfæddur á Egilsstöðum en á ættir sínar að rekja á Borgarfjörð eystra.
Faðir Sigurðar vann mikið fyrir UÍA og vann Sigurður við verkefna- og viðburða-
stjórnun hjá UÍA á sumrin frá 14 ára aldri og fram yfir háskólanám.
„Vinnan hjá UÍA var á margan hátt það skemmtilegasta sem ég hef gert. Ég
byrjaði ungur, fór átta ára gamall með pabba, sem var rafvirki, á sumarhátíðir
UÍA, en fór síðan eftir fermingu að smíða fyrir Atlavíkurhátíðina og sumarhátíðir,“
segir Sigurður sem gerðist sumarstarfsmaður UÍA árið 1987 og hætti ekki fyrr en
árið 1996. Hann kom að ýmsum verkefnum UÍA, Atlavíkurhátíðum, landsmótum
og sumarhátíðum UÍA sem voru miklar íþróttahátíðir á sínum tíma.
Sigurður kom meðal annars að hátíðunum þegar þær voru haldnar á Eiðum.
Það segir hann hafa verið góðan stað. „Þetta var merkilegur viðburður og góð
staðsetning. Eiðar var hlutlaust svæði þar sem ekkert af stóru félögunum var þar
á heimavelli. Það hjálpaði til við að gera hátíðina að sameign allra Austfirðinga.
En svo var sveitarómantíkin allsráðandi sem næst aldrei þegar hátíð er haldin
inni í bæ. Meirihluta þeirra Austfirðinga sem ég þekki í dag kynntist ég í tjald-
búðum unglinga á sumarhátíðum UÍA,“ segir hann.
Sigurður kom að fjölmörgum öðrum
verkefnum, tók meðal annars að sér fjár-
mögnun á útgáfu Snæfells fyrir UÍA. Vetur-
inn notaði hann til að selja auglýsingar í
blaðið samhliða háskólanámi.
Sigurður segir störf fyrir ungmenna-
félög oft vanmetin. Það eigi þau ekki að
vera. „Mín skoðun er sú að það að vinna
fyrir íþróttahreyfinguna sé gríðarlega
góður skóli fyrir atvinnulífið. Fólk stendur
og fellur með því sem það gerir. Það er
því pressa á að fólk standi sig,“ segir hann.
MOTUS merkir á latínu „hreyf-
ing“ eða „að hreyfa við/að hafa
áhrif á“. Hlutverk MOTUS er að
bæta fjárstreymi fyrirtækja,
allt frá sölu til þess að greiðsla
hefur átt sér stað, það er, að
skapa hreyfingu með slagorð-
um á borð við „Við komum
hreyfingu á peningana“ og
„EKKI GERA EKKI NEITT“.
Vinnan fyrir UÍA
sú skemmtilegasta