Skinfaxi - 01.03.2017, Side 38
38 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Vertu fyrirmynd á vellinum
Þ að getur verið erfitt fyrir suma að horfa
á barnið sitt í keppni og vilja stýra því
til sigurs. Börn eiga þvert á móti að fá
að iðka íþróttir á eigin forsendum en ekki
foreldra sinna. Foreldrar verða því að kunna
að draga mörkin og stíga til baka ef grunur
leikur á að of miklum þrýstingi hafi verið
beitt. Börn þurfa leiðsögn og aga en ekki
þrýsting sem þvingar þau áfram.
Hér eru ráð fyrir foreldra
sem vert er að hafa í huga
þegar börnin keppa:
• Hafðu ekki áhyggjur af úrslitum
leikja eða því hvort titlar séu að
koma heim.
• Sjáðu til þess að barnið iðki
íþróttina á eigin forsendum en
ekki til að gleðja þig.
• Taktu hlutina ekki of alvarlega.
• Kallaðu ekki á barnið á vellinum
til að leiðbeina því eða öðrum
iðkendum.
• Helltu þér ekki yfir dómara eða
þjálfara.
• Hrósaðu öllum iðkendum og
hvettu þá til dáða, sama hvernig
gengur. Börn muna ekki úrslit
leikja. Stuðningur og hvatning sitja
frekar eftir í minninu.
• Vertu jákvæð/ur í garð þjálfara,
dómara og andstæðinga í
keppnum.
UMFÍ hefur útbúið veggspjöld
þar sem foreldrar og forráðafólk
er hvatt til að vera til fyrirmyndar
á kappleikjum. Spjöldunum er
ætlað að vera utandyra, á
álplötum og þola veðurham.
Aðildarfélög UÍA
Ungmennafélagið Austri / Eskifirði – Ungmennafélagið
Valur / Reyðarfirði – Ungmennafélagið Einherji / Vopna-
firði – Íþróttafélagið Höttur / Egilsstöðum – Ungmennafélagið
Hrafnkell Freysgoði / Breiðdalshreppi – Íþróttafélagið Huginn / Seyðis-
firði – Ungmennafélagið Leiknir / Fáskrúðsfirði – Ungmennafélagið
Neisti / Djúpavogi – Samvirkjafélag Eiðaþinghár / Egilsstöðum – Skíða-
félagið í Stafdal / Stafdal á Fjarðarheiði – Knattspyrnufélagið Spyrnir /
Fljótsdalshéraði – Íþróttafélagið Þróttur / Norðfirði – Ungmenna-
félagið Þristur / Fljótsdal, Völlum og Skriðdal – Ungmennafélagið Súlan /
Stöðvarfirði – Ungmennafélag Borgarfjarðar / Borgarfirði eystri.
UÍA var stofnað á Eiðum 28. og 29. júní árið 1941. Sambandið hét
upphaflega Ungmennasamband Austurlands en síðar var nafn-
inu breytt. Starfssvæði sambandsins er Austurland frá og með
Djúpavogshreppi í suðri að og með Vopnafjarðarhreppi í norðri.
Aðildarfélög UÍA eru 41 talsins um allt Austurland. Öll íþrótta- og ungmenna-
félög á starfssvæði sambands-
ins geta gerst aðilar að því, að
því gefnu að lög þeirra séu í sam-
ræmi við lög UÍA, UMFÍ
og ÍSÍ.
Vopnafjörður
Borgarfjörður eystri
Seyðisfjörður
Neskaupstaður
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Stöðvarfjörður
Breiðdalsvík
Djúpivogur
Egilsstaðir