Skinfaxi - 01.03.2017, Blaðsíða 41
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 41
M arteinn Ægisson er framkvæmdastjóri Ungmennafélagsins
Þróttar. Félagið starfar í Vogum og var stofnað 23. október
árið 1932. Það fagnar 85 ára afmæli í haust. Félagið hefur
stækkað síðustu árin en stækkun fylgja vaxtarverkir sem stjórn
félagsins hefur unnið á.
Hvað er að frétta?
Það er allt gott að frétta úr Vogum. Helstu áskoranir í rekstri félags-
ins? Að vera réttum megin við núllið, fjölga sjálfboðaliðum og bjóða
upp á faglegt starf fyrir alla iðkendur og aðra félagsmenn. Félagið
hefur stækkað hratt síðustu árin og því fylgja ný vandamál sem er
góður lærdómur til að efla félagið.
Hvað gerðuð þið til að laga reksturinn þegar þörf var á því?
Við vorum í fjárhagsvandræðum 2015. Æfingagjöldin voru hækkuð
um 20% og við fórum í mikla vinnu við að fjölga styrktaraðilum.
Hver var árangurinn?
Fjárhagsstaða félagsins lagaðist og við höfum getað staðið við allar
HVAÐ
ER AÐ
FRÉTTA?
Vaxtarverkir fylgja
stækkun félags
skuldbindingar okkar. Þrátt fyrir hækkun
æfingagjalda fjölgaði iðkendum á sama tíma.
Við höfum einnig fengið mjög hæfa þjálfara
inn í félagið og það hefur bætt starfið.
Reksturinn er þó enn viðkvæmur og má lítið
bregða út af svo að fari í fyrra horf.
Eitthvað að lokum?
Það hefur verið mikill kraftur í sundinu síð-
ustu árin og við erum að leita að sundþjálf-
ara fyrir veturinn sem er tilbúinn að halda
áfram því góða starfi sem hefur verið í gangi
og teikna upp framtíðina með okkur.
Ef einhver les þetta og getur aðstoðað er
hægt að senda okkur tölvupóst á netfangið
throttur@throttur.net eða hringja beint í mig
síma 892-6789.
Marteinn Ægisson hóf störf sem framkvæmdastjóri Þróttar
2. maí 2015. Hafði hann áður prófað flest störf hjá félaginu.
Hann var formaður knattspyrnudeildar árum saman. Þá
þjálfaði hann yngri flokka í átta ár, hafði setið í aðalstjórn
félagsins og tekið að sér fjölmörg verkefni fyrir Þrótt án
þess að vera stjórnarmaður eða starfsmaður.
Marteinn Ægisson,
framkvæmdastjóri
Umf. Þróttar í Vogum.
Félagið í hnotskurn
• Iðkendur eru í kringum 150.
• Félagið býður upp á knattspyrnu,
júdó og sund. Félagið heldur líka úti
leiklistarnámi og íþróttaskóla.
• Flestir æfa knattspyrnu. Veruleg
fjölgun hefur verið í öðrum greinum.