Skinfaxi - 01.01.2018, Qupperneq 10
10 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Sprettur sporlangi fylgir ætíð iðkendum
UÍA á Unglingalandsmótum og vekur gjarnan
mikla lukku. Það sama gildir því miður um
Sprett sporlanga og önnur hreindýr, hann sér
ekki vel fram fyrir trýnið á sér og því þarf
að leiða hann á íþróttavellinum.
S íðasta lukkudýrið, sem Jóhannes
Waage gerði, var Sprettur sporlangi,
lukkudýr UÍA. Sprettur er hreindýr,
aðalsmerki Austurlands. Hann var
kynntur til sögunnar árið 2011.
Gunnar Gunnarsson, formaður UÍA, segir
Sprett nýttan sem kynningarfulltrúa UÍA. Á
vefsíðu UÍA megi sjá myndbönd af honum
kynna sér ýmsar greinar sem UÍA býður upp á.
„Árið 2011 var margt í gangi hjá okkur. Við
héldum Unglingalandsmót UMFÍ og áttum
líka 70 ára afmæli. Við veltum því mikið fyrir
okkur hvað við gætum gert í tilefni alls þessa.
Ein þeirra var að taka hreindýr í fóstur. Við
Sprettur sporlangi vekur lukku
ákváðum að fara þá leið, höfðum samband
við Jóhann Waage og pöntuðum hreindýr.
Ferlið allt tók nokkra mánuði. Jóhann teikn-
aði Sprett og búningurinn var saumaður á
saumastofunni Saumsprettunni í Reykjavík,“
segir Gunnar og bætir við að Sprettur mæti
á marga viðburði UÍA, til dæmis frjálsíþrótta-
mót 10 ára og yngri, fylgi iðkendum á Ungl-
ingalandsmót og svo má lengi telja.
„Sprettur kemur aðeins fram á viðburðum
sem tengjast íþrótta- og ungmennastarfi og
vekur mikla lukku, sérstaklega hjá yngri iðk-
endum. Þar á milli er hann uppi á heiði á
beit,“ segir Gunnar og bendir á að hugsað sé
um Sprett eins og lifandi dýr. Liður í því hafi
verið að fara í Umhverfisstofnun sumarið
2011 og undirrita griðasamning sem felur í
sér að bannað er að skjóta Sprett þegar Ungl-
ingalandsmót er í gangi. Mótið er alltaf hald-
ið um verslunarmannahelgina og það er oft
sem veiðitímabilið stendur yfir um svipað
leyti.
Gunnar segir helsta gallann við Sprett þann
að búningurinn er ekkert sérlega þægilegur.
Mjög heitt er innan í honum auk þess sem
þeir sem eru í honum glími við sama vanda-
mál og alvöruhreindýr, þ.e.a.s. sá sem klæð-
ist búningnum sér lítið og illa fram fyrir sig.
LU
K
K
U
D
Ý
R