Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 16
16 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Stjórn Fjölnis í Grafarvogi hefur stórbætt
þjónustu við deildir félagsins á undan-
förnum árum. Þjónustan við deildirnar
hefur verið að færast inn á skrifstofuna.
Það styttir boðleiðir, eykur skilvirkni og
bætir nýtingu á aðstöðu félagsins.
Unnið hefur verið markvisst að því innan
Ungmennafélagsins Fjölnis í Grafarvogi að
gera þjónustu við deildir félagsins og iðk-
endur miðlæga. Guðmundur L. Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Fjölnis, segir að þróunin
hafi verið að starfsmenn deilda hafi nú
aðstöðu á skrifstofu félagsins og vinni þar
með og í nánu samstarfi við starfsfólk Fjölnis.
Skilvirkni félagsins eykst
„Það styttir allar boðleiðir að vera með
stjórnendur deilda í kallfæri. Skilvirkni félags-
ins eykst til muna og starfið verður betra,“
segir Guðmundur og bendir á að í raun megi
rekja þessa þróun aftur til ársins 2008. Breyt-
ingin hafi verið hægfara en örugg.
Forsendur þess að Fjölnir hefur bætt þjón-
ustuna við deildir félagsins eru ekki síst þær
að skrifstofa og starfsfólk eru komin á fast
land, ef svo má segja. Skrifstofa Fjölnis hefur
verið á svolitlu flakki innan Egilshallar vegna
framkvæmda og komst ekki fyrr en haustið
2017 í gott rými. Þar gafst að sögn Guðmund-
ar loksins tækifæri til að bæta þjónustuna
við deildirnar og ekki síður við iðkendur inn-
an félagsins. Á skrifstofunni er aðstaða til
funda, eldhús og fundaherbergi sem starfs-
menn Fjölnis, stjórnendur deilda og þjálfarar
geta nýtt sér.
Meiri samstaða
Að mati Guðmundar fæst betri nýting á hús-
næði Fjölnis með því fyrirkomulagi sem nú
hefur verið komið á. Sömuleiðis skiptir miklu
máli að áherslur skerpast hvað félagsstarfið
varðar. Guðmundur segir að þetta fyrirkomu-
lag virki þannig að skrifstofan stýri öllum
samskiptum við Reykjavíkurborg, ÍBR, UMFÍ,
sérsambönd og aðra stóra hagsmunaaðila
í stað þess að hver og ein deild sjái um það
sem hana varði. Einnig eru allt almennt
skrifstofuhald, umsýsla með æfingagjöld,
launamál, fjárumsýsla og önnur þjónusta á
einum stað.
„Með þessu móti fáum við betri samfellu í
starfið og komum alltaf fram eins og eitt stórt
félag í þessum samskiptum með skýra sýn á
hvert við stefnum.“
Geta deilt gleðinni
Guðmundur segir það ekki síður skipta máli
að starfsfólk deilda Fjölnis geti nú haft sam-
neyti við fleiri starfsmenn en áður. Það bæti
ekki aðeins upplýsingastreymi heldur einnig
líðan fólks.
„Það er auðvitað algengt að starfsmenn
einstakra deilda séu kátir eftir góðan leik eða
árangur og vilji gleðjast. En yfirleitt er það
svo að þeir sitja einir á skrifstofunni. Nú geta
þeir deilt gleðinni með öðrum,” segir hann
og bætir við að miðað við reynslu hans henti
þetta fyrirkomulag öðrum stórum félögum.
Fjölnir eykur þjónustu
við deildirnar
„Það styttir allar
boðleiðir að vera með
stjórnendur deilda í kallfæri.
Skilvirkni félagsins eykst
til muna og starfið
verður betra“
Guðmundur L. Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Fjölnis.