Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.01.2018, Qupperneq 16

Skinfaxi - 01.01.2018, Qupperneq 16
16 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands Stjórn Fjölnis í Grafarvogi hefur stórbætt þjónustu við deildir félagsins á undan- förnum árum. Þjónustan við deildirnar hefur verið að færast inn á skrifstofuna. Það styttir boðleiðir, eykur skilvirkni og bætir nýtingu á aðstöðu félagsins. Unnið hefur verið markvisst að því innan Ungmennafélagsins Fjölnis í Grafarvogi að gera þjónustu við deildir félagsins og iðk- endur miðlæga. Guðmundur L. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Fjölnis, segir að þróunin hafi verið að starfsmenn deilda hafi nú aðstöðu á skrifstofu félagsins og vinni þar með og í nánu samstarfi við starfsfólk Fjölnis. Skilvirkni félagsins eykst „Það styttir allar boðleiðir að vera með stjórnendur deilda í kallfæri. Skilvirkni félags- ins eykst til muna og starfið verður betra,“ segir Guðmundur og bendir á að í raun megi rekja þessa þróun aftur til ársins 2008. Breyt- ingin hafi verið hægfara en örugg. Forsendur þess að Fjölnir hefur bætt þjón- ustuna við deildir félagsins eru ekki síst þær að skrifstofa og starfsfólk eru komin á fast land, ef svo má segja. Skrifstofa Fjölnis hefur verið á svolitlu flakki innan Egilshallar vegna framkvæmda og komst ekki fyrr en haustið 2017 í gott rými. Þar gafst að sögn Guðmund- ar loksins tækifæri til að bæta þjónustuna við deildirnar og ekki síður við iðkendur inn- an félagsins. Á skrifstofunni er aðstaða til funda, eldhús og fundaherbergi sem starfs- menn Fjölnis, stjórnendur deilda og þjálfarar geta nýtt sér. Meiri samstaða Að mati Guðmundar fæst betri nýting á hús- næði Fjölnis með því fyrirkomulagi sem nú hefur verið komið á. Sömuleiðis skiptir miklu máli að áherslur skerpast hvað félagsstarfið varðar. Guðmundur segir að þetta fyrirkomu- lag virki þannig að skrifstofan stýri öllum samskiptum við Reykjavíkurborg, ÍBR, UMFÍ, sérsambönd og aðra stóra hagsmunaaðila í stað þess að hver og ein deild sjái um það sem hana varði. Einnig eru allt almennt skrifstofuhald, umsýsla með æfingagjöld, launamál, fjárumsýsla og önnur þjónusta á einum stað. „Með þessu móti fáum við betri samfellu í starfið og komum alltaf fram eins og eitt stórt félag í þessum samskiptum með skýra sýn á hvert við stefnum.“ Geta deilt gleðinni Guðmundur segir það ekki síður skipta máli að starfsfólk deilda Fjölnis geti nú haft sam- neyti við fleiri starfsmenn en áður. Það bæti ekki aðeins upplýsingastreymi heldur einnig líðan fólks. „Það er auðvitað algengt að starfsmenn einstakra deilda séu kátir eftir góðan leik eða árangur og vilji gleðjast. En yfirleitt er það svo að þeir sitja einir á skrifstofunni. Nú geta þeir deilt gleðinni með öðrum,” segir hann og bætir við að miðað við reynslu hans henti þetta fyrirkomulag öðrum stórum félögum. Fjölnir eykur þjónustu við deildirnar „Það styttir allar boðleiðir að vera með stjórnendur deilda í kallfæri. Skilvirkni félagsins eykst til muna og starfið verður betra“ Guðmundur L. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Fjölnis.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.