Skinfaxi - 01.01.2018, Side 25
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 25
Dæmi um svör
Hefur þú orðið vitni að kynferðislegri áreitni í hreyfingunni?
- Á æfingu, í leik, af þjálfara – klappandi ungum meistara-
flokksleikmönnum á rassinn.
- Allir að rassskella mig á æfingu.
- Í utanlandsferð 2006.
Er að þínu viti til áætlun um viðbrögð við einelti og
kynferðislegri áreitni í félagi þínu?
- Já, það var til áætlun en enginn kann að fara eftir henni.
Það verða allir fyrir svo miklu áfalli að þeir fara að réttlæta
allt fyrir sjálfum sér og draga úr því sem brotaþoli er að segja.
- Við fellum okkur undir áætlanir UMFÍ og Æskulýðsvett-
vangsins. Ef upp kæmi slíkt mál yrði strax leitað þangað.
- Sérstakar siðareglur eru til staðar og handbækur fyrir hverja
deild þar sem fyrirbyggjandi aðgerðum og viðbrögðum er lýst.
Hefur þú unnið að máli í tengslum við kynbundið áreiti,
kynferðisbrot eða annað ofbeldi í starfi þínu?
- Þjálfari var í persónulegu sambandi við iðkendur í gegnum
skilaboð á Facebook. Hann sagði óviðeigandi hluti þar og
oft á æfingum.
- Andlegt ofbeldi í garð barna af hálfu þjálfara.
- Tilkynning um brot þjálfara áður en hann starfaði hjá félag-
inu. Málið unnið í samstarfi við viðkomandi deild, félags-
þjónustu sveitarfélagsins. Niðurstaðan var að ekki væri hægt
að bregðast við opinberlega þar sem engin kæra hafði verið
lögð fram. Þjálfari var ekki endurráðinn.
S tjórnendur innan ungmennafélags-
hreyfingarinnar samþykktu á sam-
bandsráðsfundi 13. janúar 2018
ályktun um að bregðast við og leggja
sitt af mörkum í baráttunni gegn hvers kyns
ofbeldi innan hreyfingarinnar. Í framhaldi af
því var staðan könnuð innan ungmenna-
félagshreyfingarinnar.
Hefur þú orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða orðið vitni að slíku?
Kynferðisbrot líðast ekki innan UMFÍ. Allar tilkynningar um
kynferðisbrot skal taka alvarlega og er óheimilt að afgreiða
ætluð kynferðisbrot innan sambandsaðila og aðildarfélaga.
Sambandsaðilar geta haft samband við þjónustumiðstöð
UMFÍ sé frekari upplýsinga óskað. Félög innan UMFÍ geta
jafnframt veitt heimild til upplýsingaöflunar um þjálfara og
starfsfólk viðkomandi aðildarfélaga úr sakaskrá ríkisins.
Karlar 55,9% Konur 44,1%
Yngri en 25 ára
26–34 ára
56 ára og eldri
35–44 ára
45–55 ára
Aldur þeirra sem tóku
þátt í könnuninni:
31,4%
20,1%21,4%
20,5%
6,6%
SV-land
Austurland
Suðurland
Norðurland
Í hvaða landshluta
starfar þú?
43,7%
30,6%
10,0%
3,1%4,4%
Vil ekki svara
Vesturland
5,7%
Vestfirðir
2,6%
Hefur þú orðið fyrir
kynferðislegri áreitni
í hreyfingunni?
Hefur þú orðið vitni að
kynferðislegri áreitni
í hreyfingunni?
Þeir sem tóku þátt
í könnuninni:
Já 6
Nei 219
Já 17
Nei 202