Skinfaxi - 01.01.2018, Síða 30
30 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Æskulýðsvettvangurinn hefur
gefið út viðbragðsáætlun fyrir þau
félagasamtök sem mynda hann og
aðildarfélög þeirra. Þar er að finna
verkferla sem fylgja skal þegar upp
koma atvik eða áföll sem kunna að
hafa áhrif á starf félags.
Við spurðum Semu Erlu Serdar,
framkvæmdastýru Æskulýðsvett-
vangsins, nokkurra spurninga um
viðbragðsáætlunina.
Hvenær á að nota viðbragðsáætlunina?
„Verkferlarnir eru einfaldir og eiga við í öllum
tilvikum, óháð því hvaða ábyrgðaraðila og
atvik er um að ræða. Dæmi um atvik, sem
viðbragðsáætlunin nær til, eru agabrot,
ávana- og vímuefnanotkun, einelti, kynferð-
isbrot, alvarleg veikindi, áföll, slys og andlát.
Það eru ýmis atvik sem upp kunna að koma
í íþrótta- og/eða æskulýðsstarfi og bregðast
þarf við. Erfitt er að gera þeim öllum skil en
mikilvægt að hafa ákveðnar grunnreglur til
að fylgja.“
Viðbragðsáætlun fyrir alla iðkendur
í íþrótta- og æskulýðsstarfi
Fyrir hverja er viðbragðsáætlunin?
„Viðbragðsáætlunin tekur til allra þeirra sem
starfa á vegum Æskulýðsvettvangsins og
þeirra félagasamtaka sem mynda saman
Æskulýðsvettvanginn, þ.e. Bandalag íslenskra
skáta, KFUM og KFUK á Íslandi, Slysavarna-
félagið Landsbjörg og Ungmennafélag
Íslands. Hún nær til aðildarfélaga þeirra, allra
iðkenda í íþrótta- og æskulýðsstarfi þeirra,
stjórnenda, yfirmanna, starfsmanna, sjálf-
boðaliða og annarra ábyrgðaraðila innan
félaganna.“
Hvað var erfiðast við að búa hana til?
„Við lögðum mikla vinnu og mikinn tíma í að
vinna viðbragðsáætlunina til þess að hafa
hana sem allra besta og fengum fjölda fag-
aðila til þess að vinna hana með okkur. Ég
myndi gjarnan vilja nýta tækifærið og þakka
þeim fyrir framlag þeirra til verksins. Það
sem var kannski erfiðast við vinnuna var
að ákveða hvar ætti að nema staðar því að
það eru auðvitað alls konar hlutir sem geta
komið upp í félagsstarfi með börnum og
ungmennum og því hefði áætlunin örugg-
lega getað orðið miklu lengri. Við erum þó
afar sátt við niðurstöðuna og teljum okkur
hafa tekist að fjalla vel um þá hluti sem
mikilvægt er að vita hvernig bregðast á við
þegar þeir koma upp í starfinu. Um er að
ræða tímamótaplagg.“
Hvar er hægt að nálgast viðbragðs-
áætlunina?
„Viðbragðsáætlunin er aðgengileg á vef-
svæði Æskulýðsvettvangsins, www.aev.is.
Það er einnig hægt að nálgast prentaða
útgáfu af henni með því að hafa samband
við skrifstofu Æskulýðsvettvangsins.“
Hvað hafa margir setið námskeiðið
Verndum þau á vegum Æskulýðsvett-
vangsins?
„Æskulýðsvettvangurinn hefur boðið upp á
Verndum þau-námskeið fyrir þau félaga-
samtök sem saman mynda Æskulýðsvett-
vanginn og aðildarfélög þeirra frá árinu
2010. Námskeiðið er einnig aðgengilegt fyrir
aðra sem starfa með börnum og ungmenn-
um í gegnum Æskulýðsvettvanginn. Það er
mikilvægt fyrir alla þá sem starfa með börn-
um og ungmennum að vera meðvitaðir
um skyldur sínar og ábyrgð, að geta lesið í
vísbendingar um að vanræksla eða ofbeldi,
hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða
kynferðislegt, eigi sér stað og vita hvernig
bregðast á við ef slík mál skjóta upp kollin-
um. Frá árinu 2010 hafa hátt í 3000 einstakl-
ingar setið námskeiðið á vegum okkar.“
Hvað margir sátu það á síðasta ári?
„Á síðasta ári sátu um 350 einstaklingar
Verndum þau-námskeið á vegum Æskulýðs-
vettvangsins. Nú þegar hafa verið skipulögð
nokkur námskeið á árinu 2018. Því fleiri sem
sitja námskeiðið, því auðveldara er að stuðla
að heilbrigðum, uppbyggjandi og vönduð-
um aðstæðum í æskulýðsstarfi.“
Þú getur nálgast
eintak af viðbragðs-
áætluninni á:
www.aev.is