Skinfaxi - 01.01.2018, Síða 31
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 31
Stjórn NSU – samtaka ungmenna-
félaga á Norðurlöndunum –
fundaði á Íslandi í byrjun árs.
Formaður samtakanna segir mikil-
vægt að halda út af örkinni annað
slagið og tengjast betur aðildar-
félögunum sem mynda NSU.
„Það er langt síðan við í stjórninni komum
síðast til Íslands. Við viljum heyra í ykkur, halda
samræðunni virkri og heyra hvað þið hafið
að segja um NSU og samstarfið. En svo lang-
aði okkur til að hitta stjórn UMFÍ og átta okk-
ur á hvernig við getum unnið með UMFÍ að
því að móta leiðtoga framtíðarinnar,“ segir
Rene M. Lauritsen, formaður samtaka ung-
mennafélaga á Norðurlöndunum (Nordisk
samorganisation for ungdomsarbejde,
skammstafað NSU). Rene og stjórn NSU hafa
verið á flakki um Norðurlöndin upp á síðkast-
ið í því skyni að efla samstarf ungmenna- og
æskulýðsfélaga þjóðanna sem eiga aðild
eiga að félaginu. Þau funduðu í þjónustumið-
stöð UMFÍ í janúar sl.
Rene segir NSU hafa gengið í gegnum
mikla uppstokkun frá því síðla árs 2015. Hætt
hafi verið við ýmis verkefni sem tengdust
NSU áður fyrr og fækkað verulega í stjórn.
Vonast er til þess, eins og Rene lýsir því, að
starfsemi NSU verði skilvirkari og stjórnin öfl-
ugri. Hann tekur sem dæmi að áður fyrr hafi
sextán manns setið í stjórninni. Þeir séu nú
aðeins fimm.
Formaður NSU vill efla sambandið við Ísland
„Ástæðan fyrir þessum breytingum var sú
að NSU voru orðin að litlum spjallhópi fólks
sem þekktist innbyrðis. Við vildum breyta
NSU og gera samtökin leiðandi í því að móta
ungt fólk sem leiðtoga framtíðarinnar. Þótt
liðin séu þrjú ár frá því að þetta gerðist tel ég
breytingunum ekki lokið. Auðvitað gerum
við okkur grein fyrir því að svona viðamiklar
breytingar taka tíma,“ segir Rene. Á meðal
breytinganna er að efla samstarfið við félög
meðal aðildarþjóðanna. „Ég vona að með því
að fara út á akurinn og hafa samband við aðra
getum við virkjað fólk og unnið betur saman
að verkefnum þeim sem NSU er með í gangi.“
Dansað við Jörgen NSU eru samtök 14 ungmenna-
félaga á Norðurlöndunum. Félagsmenn eru um sex hundruð
þúsund. Á þessum vettvangi er unnið mikið af sameiginlegum
verkefnum norrænna ungmenna- og æskulýðsfélaga, svo sem
ungmennaskipti, ungmennavikur og markmiðsráðstefnur, þar
á meðal um loftslagsmál, og ungbændaráðstefnur. UMFÍ hefur
tekið virkan þátt í starfi NSU í gegnum tíðina og á nú einn full-
trúa í stjórn NSU. Sá er Jörgen Nilsson, frístundaleiðbeinandi í
Ungmenna- og tómstundabúðum UMFÍ á Laugum í Sælingsdal.
„Hann kann að létta okkur lundina og gera langa og leiðinlega
fundi að skemmtilegum viðburðum. Honum hefur líka einu sinni
tekist að fá mig til að dansa. Það tekst fáum,” segir Rene
Lauritsen, formaður NSU.