Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 32
32 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Áætlað er að ný persónuverndarlög-
gjöf taki gildi hér á landi 25. maí nk.
þegar ný reglugerð Evrópusambands-
ins um persónuvernd leysir af hólmi
núgildandi Evrópulöggjöf. Öll fyrirtæki,
stofnanir og aðrir sem vinna með persónu-
upplýsingar einstaklinga verða að fylgja lög-
gjöfinni. Þetta eru umfangsmestu breytingar
í persónuvernd á síðastliðnum tuttugu árum
og eru þær sagðar marka tímamót í sögu
persónuverndarlöggjafar í Evrópu. Fyrirtæki
og stofnanir hafa undirbúið sig fyrir innleið-
ingu laganna í allt að tvö ár.
Á meðal þeirra sem nýju persónuverndar-
lögin ná til eru íþrótta- og ungmennafélög á
Íslandi. Hver er staðan, eru félögin undirbúin
fyrir nýju persónuverndarlögin?
Stjórnendur þurfa að búa sig
undir ný persónuverndarlög
Lögfræðingur hjá Greiðslumiðlun segir
fyrirtæki og stofnanir hafa undirbúið sig
lengi. Hann mælir með að forsvarsmenn
íþrótta- og ungmennafélaga vinni saman
í gegnum sambönd sín þurfi þau aðstoð.
„Miðað við hvað atvinnulífið hefur þurft að
leggja á sig fyrir lagasetninguna hef ég ekki
trú á að íþróttafélögin hafi það bolmagn sem
þarf til að gera það. Við vitum hvernig rekst-
urinn er hjá flestum. Það er mikið að gera og
eðlilega mætir undirbúningur fyrir nýja lög-
gjöf afgangi,“ segir Þorsteinn Júlíus Árnason,
lögmaður hjá Pacta lögmönnum, sem vinnur
meðal annars að þess um málum fyrir
Greiðslumiðlun. Hann er jafnframt vara -
maður í aðalstjórn Stjörnunnar. Hjá Greiðslu-
miðlun, sem á Nóra-kerfið, er eins og hjá öðr-
um fjármálafyrir tækjum unnið að því að
gera allt klárt áður en nýju persónuverndar-
lögin taka gildi.
Þorsteinn segir nýju lögin ná til íþrótta-
félaga eins og annarra. En öðru máli gegni
um þau því að íþrótta- og ungmennafélög
séu yfirleitt ekki rekin í hagnaðarskyni og
ólíklegt að þau muni selja upplýsingar um
iðkendur og viðskiptavini til þriðja aðila með
sama hætti og fyrir tæki. Engu að síður er
mikið magn upplýsinga um iðk endur mörg
ár aftur í tímann varðveitt hjá félögunum og
þarf að huga að aðgengi að þeim áður en
lögin taka gildi.
Hvað er til ráða?
„Það er alveg ljóst að íþróttafélögin eiga tölu-
vert magn persónuupplýsinga og vinna með
þær. Fyrsta skref stjórnenda íþrótta- og ung-
mennafélaga á að vera að setjast niður og
skoða stöðuna, hvernig staðið sé að söfnun
og skjölun persónuupplýsinga um iðkendur
og félagsmenn. Svo þarf líka að skoða hvernig
unnið sé með persónuupplýsingar innan-
húss,“ segir Þorsteinn og bætir við að mjög
líklega séu til hjá íþrótta- og ungmennafélög-
um persónuupplýsingar, félagaskrá og iðk-
endasögu mörg ár aftur í tímann.
„Efnislega verða ekki neinar ægilegar breyt-
ingar frá því sem verið hefur, þ.e.a.s. hvaða
persónuupplýsingar má vinna með. Það sem
breytist er utanumhaldið, vistun persónuupp-
lýsinga, aðgengi að þeim og að augljóst sé
með hvaða persónuupplýsingar er unnið.
Réttindi hins skráða aukast töluvert frá því
sem áður var.“
Þorsteinn segir það koma sér verulega á
óvart ef gefnar verði út sérstakar reglur fyrir
íþróttafélögin. Líklegra sé að þau muni sitja
við sama borð og aðrir. Af þeim sökum geti
svo farið að íþróttafélögin geti fengið sektir
gerist þau brotleg við lögin.
„Það er skammur tími til stefnu og er ljóst
að stjórnendur íþrótta- og ungmennafélaga
þurfa að vera meðvitaðir um þessar breyt-
ingar,“ segir Þorsteinn Júlíus Árnason.
Félögin þurfa að skoða hvaða gögn þau eiga Í nýju persónuverndarlögunum felast
afar umfangsmiklar breytingar á réttind-
um einstaklinga til að stjórna því hvernig
unnið er með persónuupplýsingar sem
þá varða. Margvíslegar nýjar kröfur verða
lagðar á opinbera aðila og fyrirtæki sem
vinna með slík gögn.
Fyrirtæki og stofnanir, þar á meðal ung-
mennafélög, þurfa að bæta upplýsinga-
gjöf og fá upplýst samþykki einstaklinga
fyrir allri vinnslu. Þá munu einstaklingar
og viðskiptavinir fá ríkari rétt til aðgangs
að upplýsingum, rétt til að færa upplýs-
ingarnar á milli aðila og fá meiri rétt en
áður til að láta eyða upplýsingum um sig.
Auk þessa eru gerðar auknar kröfur til
þeirra sem vinna persónuupplýsingar til
ýmissar skjölunar og skjótra viðbragða ef
til öryggisbrests kemur. Til að tryggja eft-
irfylgni með lögunum verða eftirlitsaðil-
um veittar ríkar sektarheimildir á þá sem
fara á svig við lögin. Mikið er því í húfi að
tryggja að allt verði lögum samkvæmt.
Samkvæmt nýju lögunum verður að
ákveða hvenær hver gerir hvað. Það er að
segja, öll skjölun þarf að vera rekjanleg.
Eins þurfa íþróttafélög að ákveða hvaða
starfsmaður megi sjá tilteknar upplýsingar.
Þú finnur ítarlegar upplýsingar um
nýju persónuverndarlögin á:
www.personuvernd
Þorsteinn Júlíus
Árnason.