Skinfaxi - 01.03.2019, Page 4
4 SKINFAXI
Á síðasta sambandsþingi UMFÍ, sem
haldið var að Laugarbakka í Mið-
firði 11. og 12. október sl., var aðild
íþróttabandalaga að UMFÍ samþykkt.
Meginrökin með inngöngu þeirra byggð-
ust á því að UMFÍ stæði þá betur undir
nafni sem landssamtök ásamt því að með
stærri fjöldahreyfingu myndaðist aukinn
slagkraftur við framkvæmd fyrirliggjandi
verkefna og samtökin hefðu sterkari rödd
gagnvart ríkisvaldi og sveitarfélögum varð-
andi aðkomu þeirra að starfseminni. Þar
sem enn eru íþróttahéruð sem eru ekki
aðilar að UMFÍ er mikilvægt að áfram
verði unnið að því að opna dyr hreyfing-
arinnar þannig að UMFÍ verði að lokum
samtök allra íþróttahéraða ásamt aðildar-
félögum þeirra.
Íþróttahreyfingin stendur á ákveðnum
tímamótum er varðar stjórnskipulag henn-
ar. Núverandi fyrirkomulag íþróttahéraða
er byggt á gamalli skiptingu og má segja
að sú skipting sé orðin barn síns tíma. Þá
má á næstu árum gera ráð fyrir frekari
sameiningu sveitarfélaga sem kann að
skekkja enn frekar þá mynd sem íþrótta-
héröðin byggja á.
Í íþróttalögum er kveðið á um að:
„Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og
Ungmennafélag Íslands annast skiptingu
og breytingu á íþróttahéruðum.“ Mikil-
vægt er að þessir aðilar hefji sem fyrst
samtal um framtíðarsýn á fyrirkomulag
íþróttahéraða. Í þeirri vinnu er ekki síður
mikilvægt að útfæra nánar hlutverk íþrótta-
héraðanna ásamt því að tryggja aukið
vægi þeirra með því að stuðla að beinum
fjárhagslegum styrkjum svo að hvert
íþróttahérað geti stutt aðildarfélög sín með
sambærilegum hætti hvar svo sem
þau eru starfandi á landinu.
Þá er ekki síður mikilvægt
að nota tækifærið og ná víð-
tækri sátt um skilgreiningar á
borð við félagsmann og iðk-
anda ásamt ýmsum öðrum
sambærilegum hugtökum þar
sem þessar skilgreining-
ar grundvalla
m.a. skiptingu
Lottótekna sem
reglulega hefur
verið rökrædd
innan íþrótta-
hreyfingarinnar. Samhliða er mikilvægt
að ÍSÍ og UMFÍ nái saman um sameigin-
legan ramma við útdeilingu Lottótekna til
að ná sem jafnastri dreifingu til íþrótta-
héraðanna og þar með aðildarfélag-
anna.
Með skýrari verkaskiptingu íþrótta-
héraða og sambandsaðila og jafnari
skiptingu Lottótekna getur íþróttahreyf-
ingin lagt að baki áratuga langa um-
ræðu og einbeitt sér enn betur að innra
starfi sínu, samfélaginu til heilla.
Jóhann Steinar Ingimundarson,
stjórnarmaður UMFÍ.
Efnisyfirlit
10 Eitt tré fyrir hverja flugferð.
34 Netnámskeið sem eykur öryggi í
íþróttum.
36 Hvernig gengur að ná til barna
af erlendum uppruna?
Leiðari Á tímamótum
12 Þrjú íþróttabandalög bættust við
UMFÍ á sambandsþingi.
6 Austfirðingar með pílur á lofti.
8 Skrifaði bók um ungmennabúðir
UMFÍ.
17 Íþróttahreyfingin fái meira vægi.
18 UMFÍ í tölum 2014–2018.
20 Ómar Kristmundsson:
Fólk vill láta gott af sér leiða.
22 Veiga Grétarsdóttir:
Líf mitt sem kona er rétt að byrja.
26 Flóahlaupið
– Kökuhlaup Markúsar.
28 Rafíþróttir hasla sér víða völl.
30 Einstök upplifun í lýðháskóla.
32 Svona er best að innleiða
verkfærakistu Sýnum karakter.
37 UMFÍ styður átak í forvörnum.
38 Þetta er Ungmennaráð UMFÍ.
41 Tímamót á afmælisári Einherja.
42 Mótaárið 2020.